Heilsuvernd - 01.09.1954, Side 28
88
HEILSUVERND
að ræða rétt andlegt og líkamlegt fæðuval. 1 raun og veru
eru þetta tvær hliðar á sama hlut. Þess vegna telja margir
Guðspekinemar sig ekki hafa ráð á að ganga fram hjá mata-
ræðisvísindunum, eins og þau væru þeim með öllu óvið-
komandi. Og sumir þeirra leyfa sér jafnvel að staðhæfa,
að meðan mennirnir halda áfram að forherða hjörtu sín
og sjá ekkert ljótt eða rangt við hinn hryllilega hernað, sem
rekinn er gagnvart dýrarikinu, muni þess ekki vera að
vænta, að þeir láti af því að fara með hernað hver gagn-
vart öðrum, og ég er ekki fjarri þvi að halda, að þessu
kunni að vera svo farið. Ein syndin býður stundum ann-
arri heim, þó að lítið beri á, og mörgum sjáist yfir orsaka-
sambandið. — En hvað sem því líður, eru bendingar Guð-
spekinnar alveg ótvíræðar í þessu efni: Dýrafæðan er út-
leiðarfæða. Menn hljóta að vaxa frá henni smátt og smátt,
um leið og þeim skilst betur og betur, að líkami þeirra er
musteri musteranna á þessari jörð, musteri, þar sem dag-
leg guðsþjónusta getur farið fram og á að fara fram, —
en án allra blóðfórna. Gretar Fells.
Þess er vænzt, að lesendur Heilsuverndar séu svo frjálslyndir, að
þeir hneykslist ekki á því, þótt hér sé litið á manneldismál í ljósi
guðspekilegra fræða. Þeir, sem á annað borð aðhyllast kenningar
náttúrulækninastefnunnar, ættu að fagna þvi, að unnt sé að styðja
hana hinum margvíslegustu rökum og renna sem flestum stoðum
undir boðskap hennar. — Ýmsir sértrúarflokkar innan kristin-
dómsins hafna dýrafæðu, eftir því sem þeim er unnt, og bera þeir
fyrir sig sitt af hverju í Biblíunni. Þvi er og ekki að leyna, að þangað
má sækja sterk meðmæli með jurtafæðunni — meðmæli, er trú-
mennirnir a. m. k., komast varla hjá að rekja til Drottins sjálfs. Væri
vissulega ekki úr vegi að athuga þetta betur við tækifæri og koma
niðurstöðunum á framfæri við Heilsuvernd.
Hugsað þegar ungur höfðingi reyndi að kenna mér
íeykingar. Heimskir reykja höfðingjar
hamingjuna brenna.
Já, villimensku veraldar
þeir vilja öðrum kenna.
Bjarni Guömundsson frá Hörgsholti.