Heilsuvernd - 01.09.1954, Page 29

Heilsuvernd - 01.09.1954, Page 29
HEILSUVERND 89 Sigurlaug er fædd 25. sept. 1919. Foreldrar hennar eru Kristín Guðjónsdóttir og Jón Bjarnason, skipstjóri á Akur- eyri. Sigurlaug hefur aflað sér mjög góðrar menntunar í sinni grein. Var fyrst í Húsmæðraskóla Reykjavíkur, sigldi sið- an til Danmerkur og var þar 2 ár við nám í Skárup á Fjóni og síðan % ár í hótel Kilden í Álaborg og lærði þar fram- reiðslu á smurðu brauði og köldum réttum. En hún lét ekki hér við sitja. Þegar hún kom heim, fór hún í Hús- mæðrakennaraskólann. Síðan hefur hún starfað sem mat- reiðslukennari við Kvennaskólann í Hveragerði. Sumarið 1953, var hún forstöðukona Hressingar- hælis N. L. F. 1. í Hveragerði. Innti hún það starf af hendi með slíkum ágætum, að athygli vakti. Dvalargestir, sem höfðu víða verið, töldu fæði og framreiðslu standast fyllilega samanburð við það bezta, sem þeir hefðu kynnzt erlendis. Ýmsir gestir höfðu einnig orð á hinni sérstaklega prúðmannlegu og alúðlegu framkomu Siguiiaugar. En það

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.