Heilsuvernd - 01.09.1954, Qupperneq 31

Heilsuvernd - 01.09.1954, Qupperneq 31
HEILSUVERND 91 TVÖ NÝ FÉLÖG. Sumarið 1953 voru meðal annarra dvalargesta í Hressingarheim- ili N. L. F. í. í Hveragerði 3 konur frá Vestmannaeyjum. í byrjun munu þær ekki hafa hugsað sér þar meira en vikudvöl. En þeim féll vistin svo vel, að vikurnar urðu 6. Og árangurinn af dvölinni varð svo mikill, að athygli vakti, er þær komu heim til Eyja. Árangrinum lýsti maður einnar konunnar í bréfi á þessa leið: „Það er ekki ofsagt, hvað heilsu konu minnar snertir, að Jónas Kristjánsson hafi skapað nýja konu“. Áður en konurnar kvöddu í Hveragerði, óskuðu þær eindregið eftir því, að stofnað yrði félag í Vestmannaeyjum. Sömu óskir bárust þaðan, eftir að þær komu heim. En ýmsra atvika vegna, gat ekki orðið af för austur fyrr en 29. maí 1954. Þá flaug forseti N.L.F.I., Jónas læknir Kristjánsson, ásamt framkvæmdastjóra fé- lagsins, Sigurjóni Danivalssyni, austur. Áhugamenn í Eyjum höfðu undirbúið fund, og var hann haldinn í samkomuhúsi bæjarins. Jónas Kristjánsson hélt þar erindi um nauðsyn bættra lifnaðar- hátta. Og að erindinu loknu var stofnað náttúrulækningafélag, og skráðu sig í það á fundinum 25 manns. í stjórn fyrir félagið voru kjörnir: Sigurður Guðmundsson, for- maður; Sigurbjörg Benediktsdóttir, varaformaður; Óskar Jónsson, ritari; Reykdal Jónsson, gjaldkeri; Páll Eyjólfsson, aðstoðar- gjaldkeri. Varastjórn: Þorsteinn Steinsson, Hörður Sigurgeirsson, Þuríður Sigurðardóttir. Þegar fundurinn var haldinn, var Sigurður Guðmundsson, er kjörinn var formaður félagsins, hér í Reykjavík. Eftir að hann kom heim, var haldinn framhaldsstofnfundur og gengið frá lög- um fyrir félagið, 21. júní. I fréttabréfi segir Sigurður: „Þar sem stjórnin leit svo á, að flestir óskuðu, að reynt yrði að útvega félagsmönnum þær nauð- synjar, sem félagssamtökin mæla með, hafði stjórnin sér til stuðn- ings lög Pöntunarfélags N.L.F.R.“ Félaginu var valið nafnið: Pöntunarfélagið Heilsurækt. Og hefir það ákveðið að sækja um upptöku í samtök N.L.F.Í. „Á framhaldsstofnfundinum voru mættir 35 manns, sem undir- rituðu lög félagsins og greiddu félagsgjöld sín, 110,00 kr. í stofn- sjóð félagsins auk ársgjaldsins.“

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.