Heilsuvernd - 01.09.1954, Page 32

Heilsuvernd - 01.09.1954, Page 32
92 HEILSUVERND Þegar bréfið var skrifað, 27. júni, voru félagsmenn orðnir 51. „Og vitað er um mjög marga, sem ætla að ganga i félagið næstu daga“, segir í bréfinu. Ennfremur segir: „Stjórnin hefir þegar fest sér húsnæði, 30m2 að stærð, við eina aðalgötu bæjarins fyrir vöruafhendingu, og þurfti það talsverðrar lagfæringar við, þar sem þetta var áður íbúðarhúsnæði. Að lagfæringu á húsnæðinu hafa einungis unnið félagar í sjálf- boðavinnu. Og þótt ekki sé nema vika liðin síðan hafin var standsetningin, þá er hún svo langt á veg komin, að gera má ráð fyrir, að hægt verði að afgreiða þar fyrstu vörurnar 5.—10. júli. Sýnir þetta nokkuð þann áhuga, sem ríkjandi er i félaginu, auk þess, sem slík samlijálp er mjög einkennandi fyrir Vestmanna- eyinga, þar sem liver hjálpar öðrum, ef þörf krefur. Slík sam- hjálp hefir gert ýmsum kleift að koma upp yfir sig húsnæði, sem ella hefði kannske ekki verið hægt. Kvörn hefir félagið þegar pantað, svo að það geti haft nýmalað mjöl á boðstólum. Við horfum bjartsýnir fram á leið, þótt ýmsir erfiðleikar séu í byrjun. Og við höfum þá trú, að með breyttum og bættum lifn- aðarháttum, — með aukinni neyzlu lifandi gróðurs mðður jarðar, skapist hraust sál í heilbrigðum líkama“. í bréfi 1. júlí segir form. félagsins: „Ég segi þér það í við- bótarfréttum, að við erum búnir að laga verzlunarhúsnæðið i sjálf- boðavinnu á kvöldin. Og ég er farinn að halda, að þú hafir verið sannspár um, að félaginu muni vel farnast". „Ber er hver að baki bróður nema eigi. Nái tíu taki, tekst þeim margt á degi.“ Fimm sinnum tíu Vestmannaeyingar — kannske eru þeir þegar orðnir tíu sinnum tíu — hafa tekið höndum saman um nýtt félag, er hefir það sem höfuðmarkmið að stuðla að hollum lifnaðarhátt- um. En öllum, sem um það hugsa, er auðskilið, að þorri þeirra sjúkdóma, sem ræna svo margan vinnuþreki, lifshamingju, fé og sjálfu lífinu löngu fyrir aldur fram, — eiga rætur sínar i röngum lifnaðarháttum. Þeim, sem gert hafa sér grein þessara ofureðlilegu staðreynda, er ljóst, að ekkert er réttum lifnaðarháttum líklegra til að viðhalda og skapa heilbrigði. Það er því enginn vafi, að Vestmannaeyingar munu almennt fljótlega læra að meta þetta nýja félag að verðleikum og stuðla að gengi þess.

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.