Heilsuvernd - 01.09.1954, Síða 33

Heilsuvernd - 01.09.1954, Síða 33
HEILSUVERND 93 Það verður ekki annað sagt en að Pöntunarfélagið Heilsurækt hafi farið vel af stað. Samstarfs- og samhjálparhugur stofnendanna getur verið öllum til fyrirmyndar, og atorka þeirra ekki síður. Um leið og þeir stofna félagið, ráðast þeir í framkvæmdir, sem sýna glögglega, að þeir hafa fullan skilning á því, að maðurinn lifir ekki á órðinu einu saman. Þeir vita, hvað þeir vilja og keppa markvisst frá byrjun að því, að félagið kafni ekki undir nafni. Og maður þarf ekki að vera sérlega spámannlega vaxinn til að sjá fyrir, að þar sem samhugur fer saman með atorku og fram- sýni, muni öllu vegna vel. Heilsuvernd óskar hinu nýja félagi allra heilla. Megi þar ávallt ríkja sá áhugi, raunsæi og samheldni, sem í upphafi einkennir félagið. ________________ Skv. ósk nokkurra áhugamanna i Bolungavík, flaug fram.kv.- stjóri N. L. F. í. vestur 19. ágúst. Daginn eftir var stofnað þar nátt- úrulækningafélag. í stjórn voru kjörnir: Eggert Lárusson, form., og meðstjórnend- ur Henrik Linnet, héraðslæknir, Álfheiður Einarsdóttir, Jón Þór- arinsson og Páll Sólmundarson. — Stofnfélagar voru 14. Sérstaklega ber að fagna því, að héraðslæknirinn gekk í félagið. Er hann fimmti læknirinn, sem gengur samtökunum á hönd. Og þegar þetta er skrifað, eru þeir orðnir sex. Það eru ekki mörg ár siðan hent var gaman að fylgjendum Nátt- úrulækningastefnunnar. Hún var af flestum talin stefna öfga og ofstækis. Og það var í raun og veru alveg eðlilegt. Umbótastefnur, sem brotið hafa í bága við ríkjandi venjur, hafa ávallt og alls staðar verið stimplaðar sem öfgar og ofstæki. Unnendur þess, sem hefur verið og er, fella dóm gegn hverri nýbreytni. Dómurinn er gripinn á lofti af mörgum samunnendum. Og fyrr en varir er hann orðinn almenn afstaða, mótuð án skoðunar af venjum, sem almenningur telur goðgá að hagga við. Það er því ekkert undarlegt, þótt sá, er iifað hefir á kjöti og fiski sem aðalfæðu og lært hefir að trúa þvi, að kjöt og fiskur sé allri annarri fæðu kjarnmeiri og betri, bregðist hart við, þegar því er haldið fram, að jurtafæða sé átrúnaðarfæðu hans hollari. Það er engin furða, þótt almenningur taki slíkum kenningum fálega og hendi gaman að þeim, sem leyfa sér að fylgja þvílíkum firrum. Nú er samt svo komið, að óhætt mun að fullyrða, að það séu öfgamenn og ofstækis einir, sem viðurkenna ekki Náttúrulækn- ingastefnuna i grundvallaratriðum. Er það bæði að þakka þeirri fræðslustarfsemi, sem haldið hefir verið uppi, og hinu ekki síður, hve margir óvéfengjanlega hafa hlotið heilsubætur cftir að þeir

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.