Heilsuvernd - 01.09.1954, Qupperneq 34

Heilsuvernd - 01.09.1954, Qupperneq 34
94 HEILSUVERND fóru að meira eða minna leyti að lifa eftir kenningum stefnunnar. Þetta er því athyglisverðara sem þeir sjúklingarnir eru fleiri, er þá fyrst hurfu að Náttúrulækningastefnunni, er þeir höfðu geng- ið lækna milli árum, jafnvel áratugum saman og notað legio af lyfjum með litlum, engum eða minni en engum árangri. Náttúru- lækningastefnan hefir verið þeim þrautalending, síðasta tilraun í vonlítilli baráttu við sjúkdóma. Og reyndin er sú, að fjöldi sjúkl- inga hefir fengið meiri eða minni l)ata á skemmri eða lengri tím^ með því að semja sig að kenningum hennar, þ. e. ineð þvi að hverfa að hollum iifnaðarháttum og þá fyrst og fremst hollara mataræði. Einn þessara manna er Eggert Lárusson, form. félagsins i Bol- ungarvík. Þar sem það er óhrekjanleg staðreynd, að fjöldi sjúkra hefir öðlazt heilbrigði með því að breyta lifnaðarháttum sinum til sam- ræmis við kenningar Náttúrulækningastefnunnar, hversu mikið heilsuleysi og þjáningar mætti þá ekki byggja fyrir, ef menn hyrfu að hollum lifnaðarháttum, áður en þeir eru orðnir sjúkir, að ég ekki tali um, ef bernska landsins væri alin upp í góðum skilningi á gildi hollra lifnaðarhátta og hún fengi að tileinka sér þá af for- dæmi hinna eldri, sem hún lítur upp til og vill likjast. Og hversu mikil útgjöld myndu þá ekki einnig sparast einstaklingi og ríki. Það er víst, að mikið myndi vinnast. Heilsuvernd óskar einnig Vestmannaeyingum og Bolvíkingum til víðsýnn, síleitandi, óbókstafsbundinn andi brautryðjandans og mannvinarins, Jónasar Kristjánssonar, megi ávallt verða þeim leiðarljós. Heilsuvernd óskar einnig Vestmannaeyingum og Bolvíkengum til heilla með liin nýstofnuðu félög. Vonandi tekst þeim, livoru á sín- um stað, að glæða almennan skilning á gildi hollra lifnaðarhátta. Þá verða þau heimastöðvum sínum sannköluð heillafélög. Og í þeim tilgangi eru þau stofnuð. M. M. Sk. LÆKNIRINN HEFIR ORÐIÐ. „Það má teljast orðinn ríkjandi skilningur meðal lækna, að læknisstarfið eigi ekki fyrst og fremst að vera fólgið í meðhöndlun einstakra líffæra, þótt þess þurfi stundum, heldur sjúklingsins í heild, bæði líkamlega og sálarlega, og leiðir sá skilningur m. a. af því, ihve athyglin hefir beinzt að sálrænum orsökum sjúkdóma. Sérfræðingar á ýmsum sviðum eru nauðsynlegir menn, en jafn- framt hættulegir leiðtogar, af þvi að sjóndeildarhringur þeirra þrengist við stöðuga rýni á takmarkað svið. Það þarf venjulega menn með yfirsýn, „syntetiskt“ viðhorf, til þess að vinna úr niðurstöðum þeirra“. (Páll V. G. Kolka, læknir, í Mbl. 24. nóv 1953).

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.