Heilsuvernd - 01.08.1972, Blaðsíða 4
JÓNAS KRISTJÁNSSON LÆKNIR
McCarrison
um heilsufar
Húnzabúa
Yfirmaður þeirrar deildar
Rockefellerstofnunarinnar á
Indlandi, sem fæst við fóðr-
unarrannsóknir, Sir Robert
McCarrison, segir frá því, að
hann hafi um nærfellt 9 ára
skeið fengizt við lœknisstörf
meðal þjóðflokka nyrst á Ind-
landi, uppi i fjalldölum Hima-
laya, í héraðinu Húnza og
víðar. Þessir þjóðflokkar
voru þá ósnortnir af áhrifum
menningarþjóðanna. Flestir
voru þessir menn miklir
vexti, vel byggðir, hinir
hraustustu og kvillakmsir.
McCarrison segir svo frá:
„Meðan ég var læknir þess-
ara þjóðflokka, varð ég aldrei
var við algengar meltingar-
truflanir, sár í maga eða
skeifugörn, botnlangabólgu,
ristilbólgu eða krábbamein.
Hafði ég þó mikla yfirferð,
kynni og yfirlit um heilsufar
fullrar milljónar manna og
gerði yfir J/OO skurðaðgerðir
árlega að meðaltali. Flestar
voru þær við áverkum og
kviðslitum, en ekki við þeim
kvillum, sem nú leggja sjúkl-
inga tíðast á skurðarborðið
hjá lœknum. Ég skal að vísu
ekki fullyrða, að þessir kvill-
ar hafi alls ekki verið þar til,
en ég hefi mikla ástæðu til að
halda, að þeir hafi verið mjög
fágætir. Umkvartanir frá
100
HEILSUVERND