Heilsuvernd - 01.08.1972, Blaðsíða 15
ÁRNI ÁSBJARNARSON FORSTJÓRI
Húsavíku rferö
Eins og getið var um í síðasta hefti Heilsuverndar, er nú hafinn
undirbúningur að heilsuhælisbyggingu á Norðurlandi, að frum-
kvæði Náttúrulækningafélags Akureyrar. Á árinu 1971 leitaði
stjórn NLFA málefni þessu stuðnings hjá Sambandi norðlenzkra
kvenfélaga, sem tók þeirri málaleitan vel og hét aðstoð samtak-
anna. I framhaldi af því skrifaði formaður stjómar Sambands
norðlenzkra kvenfélaga, frú Dómhildur Jónsdóttir, stjórn Nátt-
úrulækningafélags íslands á síðastliðnum vetri og óskaði eftir
því, að á næsta aðalfundi sambandsins sem halda ætti á Húsa-
vík dagana 6. og 7. júní 1972, yrði sýnikennsla í matreiðslu græn-
metis og einnig að sagt yrði frá starfsemi heilsuhælis NLFÍ 1
Hveragerði.
Síðari hluta dags, seinni fundardaginn, hafði ungfrú Pálína R.
Kjartansdóttir, matráðskona Heilsuhælis NLFÍ, sýnikennslu og
flutti mjög fróðlegt erindi um þýðingu hinna ýmsu næringarefna
fyrir líf og heilsu mannsins. Um kvöldið var boðið til kvöldverðar
ýmsu áhrifafólki og áhugafólki um þessi mál, og sátu það boð
um 100 manns. Sá Pálína um matreiðslu og framreiðslu græn-
metismáltíðar, sem var framborin á svipaðan hátt og venja er til
í heilsuhælinu í Hveragerði. Undir borðum sagði undirritaður frá
störfum og starfsemi hælisins. Formaður Náttúrulækningafélags
Akureyrar, frú Laufey Tryggvadóttir, lýsti aðdraganda og undir-
búningi að hælisstofnun á Norðurlandi og þakkaði góðar undir-
tektir kvenfélagasambandsins við það málefni. Ýmsir boðsgesta
fluttu ræður við þetta tækifæri og lýstu áhuga á starfsemi Nátt-
úrulækningafélagsins og ekki sízt ánægju með þá hugmynd að
stofna á Norðurlandi heilsuhæli, sem starfaði á svipaðan hátt og
hælið í Hveragerði. Á milli ræðuhalda var skemmt með söng og
hljóðfæraslætti, og var þessi samkoma ánægjuleg og til sóma
þeim, sem að henni stóðu.
HEILSUVERND
111