Heilsuvernd - 01.08.1972, Blaðsíða 13

Heilsuvernd - 01.08.1972, Blaðsíða 13
Pokamyndanir f ristli 1 1. hefti þessa árgangs var smágrein um orsakir þess, að í ristli manna myndast oft útbunganir, einskonar pokar, sem stundum valda óþægind- um og geta bólgnað, líkt og botnlanginn. Upplýsingar þessar voru teknar úr enska læknaritinu „The Practitioner". Hér fer á eftir grein um þetta efni, og úr sama riti, eftir enskan skurðlækni, N. S. Painter að nafni, í lauslegri þýðingu, Pokamyndanir í ristli stafa af því, að fæða manna er svipt nátt- úrlegum grófefnum sínum. Gildir þetta aðallega um hvítt hveiti og sykur, sem náðu útbreiðslu í iðnaðarlöndum kringum 1880 með þeim afleiðingum, að í byrjun tuttugustu aldar tók að kveða að þessum sjúkdómi. Hann er enn mjög sjaldgæfur í sveitahéruðum í Afríku og Asíu, og stafar það ekki af kynþáttamismun eins og m.a. mjá sjá á því, að meðal Japana í heimalandi sínu er hann sjaldgæfur, en hjá Japönum og negrum, sem búa í Ameríku, er hann jafntíður og meðal hvítra manna. Orsakir Orsakir þessara pokamyndana eru úrgangslítið fæði, enda þótt slíkt fæði sé jafnan notað til að reyna að lækna sjúkdóminn. Gróf fæða gengur gegnum meltingarveginn, frá munni til endaþarms, á um það bil 28 klukkustundum, en fín úrgangslítil fæða þarf til þess helmingi lengri tíma, og til þess að flytja hana áfram niður eftir ristlinum þarf miklu sterkari samdrætti en þegar fæðan er gróf og fyrirferðamikil. Þetta er talið geta leitt til djúpra fellinga eða poka í ristlinum. RáS Þau eru einfaldlega í því fólgin að neyta grófmetis, svo sem heilhveitis, aldina og grænmetis, en draga sem mest úr hvítu hveiti og sykri, jafnt hvítum sem brúnum. Nokkur bót er að því að borða hveitihýði, allt að einni matskeið á dag, og þurfa hægðir HEILSUVERND 109

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.