Heilsuvernd - 01.08.1972, Blaðsíða 5

Heilsuvernd - 01.08.1972, Blaðsíða 5
meltingarfæranna hálfu voru sjaldgæfar, aðrar en sultar- tilfmning.“ Við berklaveiJci varð Mc- Carrison ekki var á þessum slóðum. Landið, sem þessir þjóðflokkar byggðu, var fremur hrjóstrugt og þó þétt- býlt, og höfðu þeir ekki önn- ur húsdýr en geitur, sem gengu á beit i fjállshlíðunum. Maturinn var af svo skornum skammti, að ekki voru ráð á því að hafa hunda. Fæðið var hveitikorn, bygg, hafrar o. s. frv., sem var grófmálað og gert ■ úr brauð. Ennfremur geitamjólk, smjör og geita- kjöt örsjáldan. Þessir menn ræktuðu mikið af œpríkósum og neyttu þeirra nýrra, en þurrkuðu auk þess mikiS af þeim til vetrarforða. McCarrison hefir síðan gert margvislegar fóðrunartil- raunir á dýrum, þar á meðál öpum. Aparnir hafa mjög svipaða byggingu og menn. Árangurinn af þessum rann- sóknum varð sá, að þegar dýr voru fóðruð á svipuðu fóðri og fjállaþjóðirnar i Húnza- héraðinu lifðu á, þá höfðu þau beztu þrif og heilsu, en þegar dýrin voru aftur á móti fóðruð á svipuðu fóðri og menningarþjóðirnar hafa, þá fengu dýrin flesta þá kvilla, sem tíðastir eru meðal þeirra þjóða. (BERKLAVEIKIN OG MATAR- ÆÐIÐ, Eimreiðin 1936. Nýjar leiðir 2. rit NLFÍ) ER HÆTTA Á FÓSTURLÁTUM HJÁ FLUGFREYJUM? Sá orðrómur hefir komizt á kreik, að flugfreyjur, sem verða þungaðar innan sex mánaða frá því þær hættu flugi, geti átt á hættu að missa fóstrið. Athugun hefir verið gerð á þessu, bæði í Rússlandi og Sviss, og eftir því að dæma hefir grunur þessi við engin rök að styðjast. (The Practitioner) HEILSUVERND 101

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.