Heilsuvernd - 01.08.1972, Blaðsíða 8

Heilsuvernd - 01.08.1972, Blaðsíða 8
Þótt dr. Schnitzer hefði mikið að gera á stofu sinni við venju- legar tannviðgerðir, gaf hann sér samt tíma til að skoða börn á öllum aldri, enda var það nauðsynlegur þáttur í herferðinni að geta fylgzt með þeim breytingum, sem verða kynnu á tannheilsu barnanna. Hann tók upp reglulega skoðun á tönnum barnanna, þeim alveg að kostnaðarlausu, skráði allt nákvæmlega á spjald ásamt upplýsingum um mataræði barnsins, og við næstu skoðun ári síðar var nýtt spjald útfyllt, þannig að hægt var að fylgjast með breytingum frá ári til árs. Strax á öðru ári fór að koma í ljós árangur af öllum þessum aðgerðum, og verður sagt nánar frá því hér á eftir. Auk matarbrauðanna hófu bakararnir fljótt bakstur á smá- kökum, bollum og öðru kaffibrauði úr nýju heilhveitimjöli, og náði þetta vinsældum meðal barna og fullorðinna. Ofsóknir. Nú hefði mátt ætla, þegar fregnir bárust út um það sem vai að gerast í Mönchweiler, að aðrir tannlæknar tækju í sama streng og dr. Schnitzer. En í stað þess var hann kærður af þýzka tann- læknasambandinu í Suður-Þýzkalandi fyrir óheiðarlegan áróður og auglýsingastarfsemi í eigin hagsmunaskyni. Hann hafði komið fram í útvarpi og sjónvarpi, og almenningsálitið var á hans bandi. Hann varð að mæta tvívegis í margra klukkustunda yfirheyrzlum. En málaferlunum lauk með því, að hann var alveg sýknaður af ákærunum. Undirtektir tannlækna hafa annars verið með ýmsu móti. Nokkrir eru honum samdóma og hafa ásamt öðrum læknum og áhugamönnum stofnað formleg samtök málefninu til framdrátt- ar. Hinsvegar hefir hópur áhrifamikilla tannlækna lýst sig and- vígan dr. Schnitzer, og meðal þeirra eru þeir, sem berjast fyrir flúorblöndun neyzluvatns. En allur þorri tannlækna er hlutlaus í málinu, og það sumpart af ókunnugleika, enda hefir aðalmál- gagn tannlækna í Þýzkalandi tekið þann kost að þegja með öllu um árangurinn, enda þótt hann væri kominn greinilega í ljós þremur árum eftir að herferðin hófst. 104 HEILSUVERND

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.