Heilsuvernd - 01.08.1972, Page 14

Heilsuvernd - 01.08.1972, Page 14
að koma einu sinni eða tvisvar á dag, sjálfkrafa og án þess að nauðsynlegt sé að rembast. Sumir fá brjóstsviða í byrjun, en flestir losna við hann eftir hálfan mánuð, og er því engin ástæða til að gefast upp vegna þeirra byrjunaróþæginda. Þetta ráð kemur ekki að tilætluðum notum, ef sjúkdómurinn er á háu stigi eða ef hægatregðan stafar af þrengslum eða æxlum í ristlinum. Þá getur þurft að grípa til skurðaðgerða. Hexachlorophen Hexachlorophen er nafn á sótthreinsandi efni, sem um langt skeið hefir verið notað af læknum og hjúkrunarfólki, enda talið næsta meinlaust öðrum en bakteríum. 1 þeirri trú hefir þessu efni verið blandað í margvíslegar hreinlætis- og snyrtivörur, og er talið, að slíkar vörur skipti hundruðum á almennum markaði. Má þar nefna sápur, hárþvottaefni, fótaduft, þvottalög fyrir ungbörn, hreinsunarefni, munnskolunarvötn, tannsápur, sólarolíur, lykteyðandi vökva og brunasmyrsl. Einnig hefir það verið notað við meðferð aldina og grænmetis. Nú hefir komið í ljós, að hexachlorophen getur valdið margs- konar sjúklegum einkennum, sumum næsta alvarlegum, svo sem krömpum hjá nýfæddum börnum. Það hefir valdið heilaskemmd- um í rottum við tilraunir. Notkun þess á brunasár á börnum og fullorðnum hefir reynzt lífshættuleg. Það getur auðveldlega gengið inn um húð, og menn hafa vitað, að það veldur eitrunareinkennum, ef þess er neytt eða því dælt inn í líkamann. Það er talið hafa valdið húðsjúkdómum og ofnæmiseinkennum við notkun í sápum eða til lyktareyðingar undir höndum. Því miður er þess yfirleitt ekki getið, hvort þessar vörur innihalda hexachlorophen eða hvern- ig þær eru samsettar. (Úr Let's Live) 110 HEILSUVERNO

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.