Heilsuvernd - 01.08.1972, Page 17
sé aðalfæða okkar Islendinga, eru mjög á villigötum. Þessar fæðu-
tegundir eru aðeins um 15% af allri fæðutekju íslendinga. Nær
sanni væri að tala um mjólk sem aðalfæðu okkar, og það er rétt
að því er varðar innlendar matvörur, því að mjólk og mjólkur-
afurðir nema um 20% af fæðutekjunni. En hver er þá aðalfæða
okkar? Því er fljótsvarað: Sykur 20% og hvítt hveiti 20%. M.ö.o.
eru sykur og hveiti um 40% eða 2/5 hlutar af öllu því, sem ís-
lenzka þjóðin leggur sér til munns. Og allt er þetta reiknað eftir
hitaeiningamagni fæðunnar. Hvítt hveiti og sykur eru einhæfustu
fæðutegundir, sem á matborð okkar koma og valda meiri heilsu-
spjöllum en menn gera sér ljóst. Gegn þessum meinvættum heil-
brigðs lífs barðist Jónas Kristjánsson af alefli, og fyrsta bókin.
sem Náttúrulækningafélag íslands gaf út, var einmitt „Sann-
leikurinn um hvíta sykurinn“ eftir Are Waerland.
3. Það er næsta eðlilegt, að þeir sem koma í Heilsuhæli NLFÍ
í Hveragerði og að matborði þess, líti svo á, að náttúrulækninga-
stefnan gangi aðallega út á það að bannfæra kjöt og fisk. En það
er hinn mesti misskilningur. Sjálfur Are Waerland segir þannig
í bók sinni „Matur og megin“: „Það er hægt að halda góðri heilsu
og ná háum aldri þótt lifað sé á kjöti, ef menn aðeins neita
sér um kaffi, hvítasykur og hvítt brauð. En jafnskjótt og menn
taka að neyta þessara fjörefna -og málmsaltasnauðu fæðutegunda
er fótunum kippt undan heilbrigðinni.“
Á matborði heilsuhælisins taka allir eftir því, að þar er ekki
kjöt eða fisk að finna og draga af því þá ályktun, að þessar fæðu-
tegundir séu skaðlegustu matvælin í augum náttúrulækninga-
manna. Hitt vekur enga sérstaka athygli, að hvítur sykur og hvítt
brauð kemur þar aldrei á borð, heldur ekki salt eða annað venju-
legt krydd, og ekki heldur niðursuðuvörur, sem jafnast ekki á við
nýjan mat hvað hollustu snertir. Þá vita fáir, að grænmetið,
sem mikinn hluta ársins kemur nýtt úr gróðurhúsum og görðum
hælisins, er ræktað með lífrænum áburði án gerviáburðar og
eitraðra varnarlyfja, sem víðast þarf að nota gegn sjúkdómum
í matjurtum. Og loks er mjólk og mjólkurmatur á borðum á
öllum matmálstímum. Allur brauðmatur og grautar eru úr ný-
möluðu korni, þar með talinn hafragrauturinn.
HEILSUVERND
113