Heilsuvernd - 01.08.1972, Blaðsíða 21

Heilsuvernd - 01.08.1972, Blaðsíða 21
enda skýrt ítarlega frá umræðum, sem þar urðu um félagsmál, en hann var sjálfur ritari á þeim fundi. Björn L. Jónsson flutti erindi um sinadrætti og fót- og hand- kulda og svaraði fyrispurnum. Erindið var birt í síðasta hefti Heilsuverndar. Að því loknu urðu langar umræður um félagsmál; snerust þær aðallega um fyrirætlanir NLFl um stofnun bama- heimilis í Sogni og voru um það skiptar skoðanir. Flygill Heilsuhælis NLFÍ Heilsuhæli NLFÍ hefir eignazt lítinn flygil, sem er hið bezta hljóðfæri, og stendur hann í hinum nýja samkomusal hælisins. Skúli Halldórsson tónskáld var með í ráðum um val flygilsins, og fimmtu- daginn 2. júní 1972 kom Skúli til að vígja hann ásamt Magnúsi Jónssyni óperusöngvara. Björn L. Jónsson yfirlæknir bauð hina vinsælu listamenn vel- komna, og síðan settist Skúli að hljóðfærinu og lék tónverk eftir Schubert og Chopin. Þá söng Magnús nokkur lög, innlend og er- lend, með undirleik Skúla, sem lék svo að lokum verk eftir Mozart og frumsamið lag að auki. Frú Amheiður Jónsdóttir, forseti NLFÍ .þakkaði listamönnunum með nokkrum orðum og færði þeim blómvendi. Viðstaddir hljómleikana voru, auk dvalargesta og starfsfólks hælisins, stjóm NLFÍ og nokkrir aðrir gestir. Samkomusalurinn var fullskipaður þakklátum áheyrendum, sem lengi munu minnast þessarar ánægjulegu kvöldstundar. HVAÐ ER MENNING? Menningin er gljái, sem þvæst af með áfengi. HEILSUVERND 117

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.