19. júní


19. júní - 19.06.2018, Blaðsíða 19

19. júní - 19.06.2018, Blaðsíða 19
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 17 tæknistörfin. Sólrún kom á samstarfi við Árbæjarskóla þar sem nemendum gefst kostur á að taka áfanga í OR, mæta einu sinni í viku til að fræðast um starfsemina og gera verkefni um iðn- og tæknistörf með góðum árangri. „Fjöldi nemenda, bæði strákar og stelpur, hefur farið í kjölfarið í iðn- og tækninám og flestir segjast líta öðrum augum á slíkt nám eftir áfangann. Við fjölguðum líka nemastöðum hjá fyrirtækinu, eyrna- merkjum nú nemastöður ákveðnum fjölda kvenna og höfum verið í ýmsu samstarfi við háskólana til að vekja athygli á okkar geira. En því miður virðist þetta átak, að fjölga konum í raungreinum og iðnstörfum, ekki skila fleiri konum inn í þessa geira. Miðað við hvernig aukin fjölbreytni innan OR hefur skilað okkur betra fyrirtæki og breytt fyrirtækjamenningunni til hins betra, þá er það synd,“ segir Sólrún. Fólust einhverjir erfiðleikar eða hindr anir í að innleiða jafnlauna­ staðal inn og útrýma kynbundna launa­ muninum? „Það er ríkjandi viðhorf fyrirtækja, bæði hér á landi og erlendis, að það sé bæði kostnaðarsamt og erfitt að inn- leiða jafnlaunastaðal innan fyrirtækis og leiðrétta kynbundinn launamun. Mér finnst þetta mjög fyndin umræða í ljósi þess að það hafa gilt lög á Íslandi frá árinu 1961 sem kveða á um að fyrirtæki eigi að greiða jöfn laun óháð kyni. Ef fyrirtæki er staðið að því að brjóta lög í öðrum málaflokki en þessum væri ekki annað til umræðu en að laga það. Ég skil ekki að það sé til umræðu hve kostnaðarsamt og erfitt það sé að laga það sem er ólöglegt. Ef verið er að mis- muna ákveðnum hópi innan fyrir tækis, þá ber einfaldlega að laga það, það er ekkert spurning um kostnað. Eins er ég líka algjörlega ósammála umræðu um hve erfiðar þessar aðgerðir séu. Þær eru ekkert erfiðari en ýmsar aðrar kröfur sem settar eru á fyrirtæki um aðbúnað, uppsetningu vinnustaða, framkomu við starfsfólk og svo framvegis. Ekki er kvartað svona mikið yfir slíkum aðgerðum. Mér finnst í raun ótrúlegt að fólk leyfi sér að hrópa svona hátt um þetta en þessar háværu raddir eru einmitt hluti af því kynbundna misrétti sem þrífst á vinnumarkaðnum. Ef fyrirtæki gera ekki neitt, þá breytist ekki neitt. Þótt flestir styðji eflaust jafnrétti er það ekki nóg. Til að ná árangri þarf að fremja jafnrétti,“ segir Sólrún að lokum. 
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.