19. júní - 19.06.2018, Blaðsíða 51
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 49
heimilisofbeldis, kynferðisofbeldis og
jafnvel mansals, er markvisst haldið í
viðkvæmri stöðu sem jafnvel er notuð
gegn þeim. Gáfaðar, menntaðar, sterkar
og fallegar konur flytja hingað til lands
ala með sér sömu drauma og vonir
og íslenskar konur um bjarta framtíð
og velgengni. Þegar þessar konur sjá
drauma og vonir verða að engu vegna
kerfisbundinna fordóma, vanrækslu
og mismununar, er þeim þröngvað í
hlutverk fórnarlambs sem oftar en ekki
er upp á kvalara sinn komið.
Konur af erlendum uppruna
krefjast nú sömu athygli og íslenskar
kynsystur þeirra og að samfélagið
bregðist við þeirra frásögnum með
sama hætti og frásögnum íslenskra
kvenna. Fyrirtæki, samtök, íþróttafélög
og sveitarfélög setja nú saman
aðgerðaáætlanir og verkferla sem
útrýma eiga kynferðislegri mismunun,
misnotkun og áreiti. Innan þessara
áætlana og ferla þarf að vera pláss fyrir
konur af erlendum uppruna. Þar þarf að
horfa sérstaklega til valdeflingar þessa
viðkvæma hóps, sem þarf ekki bara
að eiga sína rödd. Sú rödd þarf líka að
njóta skilnings og virðingar. Við viljum
að vinnuveitendur tryggi það að við
séum upplýstar um réttindi okkar og að
verkferlar séu skýrir og boðleiðir greiðar
þegar við þurfum að vernda réttindi
okkar sjálfra.
Innan heilbrigðiskerfisins, vel-
ferð ar kerfisins og dómskerfisins þurfa
íslensk stjórnvöld, bæði ríki og sveitar-
félög, að tryggja það að konur af
erlendum uppruna eigi greiða leið að
úrræðum til að vernda viðkvæma stöðu
sína. Margar okkar hafa þjáðst í þögn
þegar við höfum hvorki haft þekkingu á
eða borið traust til þessara þriggja kerfa
sem eru uppistaða öryggisnetsins sem
hvert heilbrigt samfélag passar að séu
aðgengileg fyrir alla þá sem á þurfa að
halda. Til að grípa þá sem minnst mega
sín. Og til að tryggja að grundvallar
mannréttindi séu virt þannig að enginn
þurfi að líða fyrir uppruna sinn eða
litarhátt, trú sína eða kynhneigð.
Við ætlum ekki lengur að standa
hjá í þögn. Við höfum fundið okkur
vettvang til að standa saman og teygjum
okkur nú til samfélagsins sem við búum
í, elskum og vinnum í, til að standa með
okkur. #MeToo er #VIÐlíka hreyfing
þar sem við stöndum stoltar til að bjóða
mismunun og misnotkun byrginn. Konur
af erlendum uppruna geta líka látið í sér
heyra.
Þær frásagnir sem koma hér
á eftir þarf að lesa með gleraugum
virðingar, skilnings og varfærni. Þessar
hugrökku konur hafa valið að deila
þessum sársaukafullu frásögnum undir
nafnleysi. Við biðjum um að lesendur
nýti þær tilfinningar sem kunna að
vakna við lesturinn til að finna leiðir
til að bæta stöðu okkar og brúa það
bil sem myndast hefur á milli okkar og
annarra í samfélaginu.