19. júní - 19.06.2018, Blaðsíða 88
86 | 19. júní 2018
Nordisk Forum 1988
Arndís Á. Steinþórsdóttir
Í sumar eru 30 ár síðan norrænt
kvennaþing var haldið í Háskólanum
í Osló 30. júlí til 7. ágúst 1988 undir
heitinu Nordisk Forum. Talið er að
7–10 þúsund konur alls staðar að af
Norðurlöndum hafi tekið þátt í þinginu,
þar af 800 íslenskar konur.
Norrænt kvennaþing var hugsað
sem framhald af stórum kvenna-
ráðstefnum Sameinuðu þjóðanna sem
fram fóru á níunda áratug síðustu
aldar. Norræna ráðherranefndin hvatti
til þessa og fól grasrót kvennasamtaka
Norður landanna að undirbúa þingið
og hvetja norrænar konur til þátttöku.
Full trúar Íslands í undirbúningshópi
voru frá Kvenréttindafélagi Íslands
og framkvæmdanefnd um launamál
kvenna.
Opnunin fór fram utandyra 30.
júlí við Akershuskastala í Osló. Konur
frá öllum svæðum Norðurlandanna, á
öllum aldri, úr flestum þjóðfélagshópum
og atvinnugreinum voru saman komnar
og nutu glæsilegrar opnunarhátíðar.
Léttleiki og gleði kvennanna einkenndi
opnun ina. Listakonur komu fram á fjór-
um mismunandi sviðum, kvenna sinfóníu-
hljómsveit, íslenskur ballett, vísna söngur,
rokkatriði, dans o.s.frv. Áhersla var lögð
á að opnunin væri óhefð bundin og
skemmt ileg með söng-, dans- og leika-
trið um en engum opin berum ræðu-
höldum.
Næstu daga tók alvaran við. Á
dagskrá þingsins voru yfir eitt þúsund
mismunandi atriði sem um þrjú þúsund
skipuleggjendur stóðu að. Helst var að
konur ættu í erfiðleikum með að velja á
milli þeirra frábæru dagskráratriða sem
hægt var að sækja á sama tíma. Í stuttu
máli má segja að til umfjöllunar hafi
verið eftirfarandi málefni:
• Staða kvenna á vinnumarkaði
• Konur í stjórnmálum, þ.m.t. kvenna-
flokkar
• Heilsa kvenna
• Konur og vald
• Beiting valds gegn konum
• Friðar- og öryggismál
• Konur og tækni
• Umhverfis- og búsetumál
• Staða innflytjendakvenna
Framlag íslenskra kvenna var
mikið. Alla daga voru haldnir fyrirlestrar,
fundir, kynningar, danssýningar, messur,
listsýningar og allskonar viðburðir á
vegum kvennahreyfingarinnar, stjórn-
málaflokka, verkalýðs hreyfingarinnar og
einstaklinga. Til gamans má geta þess að
flutt var revía um vinnu kvenna sem vakti
mikla athygli.
Íslensku konurnar nýttu vel
þau tækifæri sem þarna gáfust. Þær
nutu dagskrárinnar og samverunnar,
rökræddu stöðuna, buðu í partý
o.s.frv. Undir lok kvennaþingsins bauð
íslenski forsætisráðherrann öllum 800
þátttakendunum til móttöku.
Í lok þingsins var haldin opinber
ráðstefna sem norrænir jafnréttis-
ráðherrar tóku þátt í.
UNDIRBúNINgUR ÞINgSINS
Undirbúningur að Nordisk Forum
1988 hófst árið 1986 er Norræna
ráðherranefndin samþykkti tillögu
Norðurlandaráðs og ákvað að boða
til norræns kvennaþings. Jafnframt
var ákveðið að undibúningur þess og