19. júní


19. júní - 19.06.2018, Side 23

19. júní - 19.06.2018, Side 23
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 21 Á lokakvöldinu 13. nóvember ræddu þátttakendur framtíðaráform sín og mark miðin sem sett höfðu verið við upphaf námskeiðs ins og hvernig þau hefðu þróast. Rætt var um þátttöku inn flytjenda í fjölmiðlum, gerðar æf- ingar í framkomu í fjölmiðlum og kon- urn ar veltu fyrir sér hvað þær væru reiðubúnar að tala um við fjölmiðla. Þátttakendum bauðst á því kvöldi einnig að skrá sig á lista til að taka þátt í ársþingi Women Political Leaders sem sjálfboðaliðar. WPL eru alþjóðasamtök starfandi þingkvenna og dagana 28.–30. nóvember 2017 sóttu 400 þingkonur og konur sem gegna eða hafa gegnt starfi þjóðarleiðtoga ársþing samtakanna sem haldið var í Hörpu í Reykjavík. Bauðst þátttakendum námskeiðsins að gegna störfum fundarritara á lokuðum fundum þingkvenna. Fimm konur skráðu sig sem sjálfboðaliða og tóku þær því þátt í ársþingi WPL. Könnun sem gerð var undir lok námskeiðsins leiddi í ljós að konurnar töldu að það myndi nýtast þeim í framtíðinni og helsta gagnrýnin var sú að námskeiðið hefði verið allt of stutt. En eitt stóð upp úr í svörum þátttakenda og það var að allar töldu þær líklegra en áður að þær myndu taka þátt í umræðum um stjórnmál. Eftir að námskeiðinu lauk hefur hópurinn haldið sambandi í gegnum Facebook-hópinn sinn. Það hefur verið þvílíkur innblástur að fá að fylgjast með þessum hugrökku konum! Allmargar hafa tekið virkan þátt í störfum ýmissa stjórnmálaflokka, ein er meira að segja í framboði til sveitarstjórnarkosninga í vor, önnur tók forystu í kjarabaráttunni, ein bauð sig fram til stjórnar í frjálsum félagasamtökum, önnur hefur haft sig í frammi í fjölmiðlum og þannig mætti lengi telja. Ég lærði svo mikið af þeim og er ofurspennt að fá að fylgjast áfram með þeim í framtíðinni.  Ú ts kr if t st jó rn m ál as kó la n s. M yn d : K ve n ré tt in d af él ag Ís la n d s
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.