19. júní


19. júní - 19.06.2018, Page 26

19. júní - 19.06.2018, Page 26
24 | 19. júní 2018 Upp frá þessu stigu hóparnir fram hver af öðrum í lok nóvember og byrjun desember. 330 konur í vísindum deildu 106 sögum ásamt yfirlýsingu 30. nóvember. Konur í réttarvörslukerfinu birtu 45 reynslusögur ásamt yfirlýs- ingu undir myllumerkinu #þögninrofin 7. desember. Sama dag sendu 265 konur í tækni-, upplýsinga- og hug- búnaðariðnaði frá sér yfirlýsingu og 54 sögur auk þess sem fjölmiðlar birtu yfirlýsingu frá KÍTÓN, félagi kvenna í tónlist, sem 333 konur skrifuðu undir og með fylgdu 25 sögur. Þann 11. desember stigu þrír hópar fram. Fjölmiðlakonur sendu frá sér yfirlýsingu undir myllumerkinu #fimmtavaldið sem var undirrituð af 258 konum og innihélt 72 sögur. Konur í flugstétt sendu frá sér yfirlýsingu með 28 sögum undir myllumerkinu #lending sem 600 konur höfðu skrifað undir og 354 konur í læknastétt stigu fram með yfirlýsingu og 10 sögum undir myllumerkinu #ekkiþagnarskylda. 737 konur í menntageiranum sendu frá sér 34 sögur ásamt yfirlýsingu 15. desember og 627 konur í heilbrigðisgeiranum sendu frá sér yfirlýsingu og 53 sögur sama dag. Tæplega tvöhundruð konur í iðngreinum birtu átta sögur og yfirlýsingu þann 22. desember og konur í verkalýðshreyfingunni sendu forystu allra heildarsamtaka launafólks á landinu bréf um miðjan desember þar sem þær kröfðust aðgerða. Íþróttakonur komu fram 11. janúar 2018 undir myllumerkinu #jöfnumleikinn en 462 nú verandi og fyrrverandi íþróttakonur skrif uðu undir yfirlýsinguna sem innihélt 62 reynslusögur. Konur í prestastétt sendu frá sér áskorun 15. janúar sem 65 kvenprestar höfðu skrifað undir og fylgdi henni á sjöunda tug frásagna. 25. janúar birtu konur af erlendum uppruna 34 sögur sem safnast höfðu í lokuðum hópi þeirra. 660 voru í hópnum en aðeins 97 undirrituðu yfirlýsinguna vegna ótta um öryggi sitt. Enn fleiri hópar urðu til sem ekki hafa birt yfirlýsingar opinberlega ennþá en eru vettvangur stuðnings og samstöðu fyrir konur og flestir hóparnir sem hafa sent frá sér yfirlýsingar og sögur eru enn virkir sem stuðningssvæði þar sem konur geta deilt reynslu sinni og spurt ráða. Fleiri hópar sem ekki voru tengdir starfsgreinum eins og #MeToo sögur af djamminu og #MeToo fjölskyldutengsl eru til og rauf síðarnefndi hópurinn þögnina á áhrifaríkan hátt þann 23. apríl með yfirlýsingu undirritaðri af 143 konum sem fylgdu 53 frásagnir undir yfirskriftinni „Fyrir luktum dyrum“ og myllumerkinu #aldreiaftur. Þá var í mars stofnaður hópur undir myllumerkinu #karlmennskan þar sem karlmenn voru hvattir til að deila sögum sem snúa að staðalímyndum þeirra og hvernig karlmennskan hefur þvælst fyrir þeim í gegnum tíðina. M yn d : F ili p J ed ra sz ak / sh u tt er st o ck .c o m
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.