19. júní - 19.06.2018, Page 39
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 37
#ekkiþagnarskylda
Í siðareglum lækna segir í 22. grein: „Læknar
skulu hafa góða samvinnu sín á milli og sýna hver
öðrum fulla virðingu ...” Langflestir samstarfsmanna
okkar eru heiðursmenn sem virða þessar reglur í
hvívetna.
Síðastliðnar vikur hafa konur í læknastétt
deilt reynslusögum úr starfi í lokuðum hópi á
samfélagsmiðlum. Frásagnirnar bera því miður vitni um
kynbundið áreiti, mismunun og kynferðislegt ofbeldi
í starfi, jafnvel þannig að áhrif hafi haft á starfsferil
viðkomandi konu. Það er óásættanlegt.
Gerendur eru oftast karlkyns samstarfsmenn sem
eru ofar í valdastiganum, en einnig eru dæmi um áreiti
frá yngri samstarfsmönnum og frá skjólstæðingum.
Þá eru dæmi þess að aðrar starfsstéttir taki þátt
í kynbundnu áreiti og mismunun. Svo virðist sem
yngri kvenlæknar verði mest fyrir barðinu á kyn-
bundnu áreiti og ofbeldi, en áreitni og mismunun
gagnvart sérfræðilæknum birtist oftar í þöggun og
jaðarsetningu.
Til þessa hefur kynbundið áreiti, mismunun og
kynferðisofbeldi sjaldan verið tilkynnt, líklega vegna
þess að sá sem fyrir áreitinu verður er oft í veikri stöðu
gagnvart geranda. Þessu verður að breyta og er mikil-
vægt að verkferlar séu aðgengilegir og tekið sé á
málum af festu.
Við væntum þess að allir samstarfsmenn okkar og
stjórn endur taki höndum saman til að uppræta þenn-
an ósóma. Kynbundið ofbeldi, áreiti og mismunun á
ekki að líðast, hvorki á vinnustöðum né annars staðar
í sam félaginu.
Undir þessa yfirlýsingu rita 354 konur í læknastétt.
Konur í læknastétt