19. júní - 19.06.2018, Qupperneq 105
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 103
mið stöðvar Íslands og Þorsteinn Víglundsson
félags- og jafnréttismálaráðherra. Bryn-
hild ur Björnsdóttir stýrði umræðum og
Fríða Rós Valdimarsdóttir formaður Kven-
réttindafélags Íslands sagði nokkur orð.
öLL STöRF eRU KVeNNASTöRF
8. mars var haldinn hádegisverðarfundur
á Grand Hótel Reykjavík í tilefni af alþjóðlegum
baráttudegi kvenna. Þátttakendur voru Auður
Magnúsdóttir formaður Samtaka kvenna
í vísindum, Ágústa Sveinsdóttir fulltrúi
átaksins #kvennastarf, Birna Björnsdóttir
slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, Eva
Björk Sigurjónsdóttir fulltrúi Félags kvenna
í karllægum iðngreinum, Eyrún Eyþórsdóttir
lögreglumaður og Lára Rúnarsdóttir formaður
Félags kvenna í tónlist. Brynhildur Björns-
dóttir fjölmiðlakona stýrði umræðum. Að
fundinum stóðu ASÍ, BHM, BSRB, Jafn rétt-
is stofa, Kennarasamband Íslands, Kven-
réttindafélag Íslands og Samtök starfs manna
fjármálafyrirtækja.
KONUR gegN AFTURFöR
8. mars var Kvenréttindafélag Íslands í
hópi fjölda félaga kvenna og launafólks sem
stóð á bak við fundinn Konur gegn afturför
í Iðnó á alþjóðlegum baráttudegi kvenna
fyrir friði og jafnrétti. Þemað í ár var vaxandi
þjóðernisfasismi og bakslag í réttindabaráttu
kvenna og minnihlutahópa. Hvernig getur
femínisminn verið andsvar við þessari
afturför? Til máls tóku Elín Björg Jónsdóttir,
Justyna Grosel og Una Torfadóttir. Kolbrún
Halldórsdóttir stýrði fundi.
SKÁLDKONUR SeM HeITA KRISTÍN
8. mars var haldið skáldakvöld þar
sem skáldkonur sem heita Kristín lásu
upp úr verkum sínum, bæði útgefnum og
óútgefnum. Kristín Marja Baldursdóttir, Kristín
Eiríksdóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Kristín
Ómarsdóttir og Kristín Steinsdóttir komu
fram. Að fundinum stóðu Bandalag kvenna
í Reykjavík, Kvenfélagasamband Íslands og
Kvenréttindafélag Íslands. Félögin fögnuðu
því á árinu að 50 ár voru liðin frá því að
Kvennaheimilið Hallveigarstaðir opnaði dyr
sínar.
geNDeR eqUALITy IN THe LABOUR
MARKeT AND eqUAL PAy: THe
IceLANDIc APPROAcH
14. mars var haldinn hliðarviðburður á
fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna í
New York, CSW 61. Skipuleggjendur við burðar-
ins voru íslensk stjórnvöld, aðgerða hópur
um launajafnrétti á vinnu markaði og Kven-
réttindafélag Íslands. Til máls tóku Þorsteinn
Víglundsson félags- og jafnréttismála ráð-
herra, Maríanna Traustadóttir sérfræðingur
hjá ASÍ, Ólöf Júlíusdóttir doktors nemi í
félagsfræði við Háskóla Íslands og Bergur
Ebbi rithöfundur og uppistandari. Á fundinum
var sýnd stuttmyndin Income Equality Now
– Women in Iceland Walk Out, framleidd af
Kvenréttindafélagi Íslands.
19. JúNÍ
19. júní var haldið upp á 50 ára
afmæli Kvennaheimilisins Hallveigarstaða.
Kvenréttindafélagið stóð ásamt Bandalagi
kvenna í Reykjavík og Kvenfélagasambandi
Íslands fyrir hátíðarfundi á Hallveigarstöðum.
Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður hús-
nefndar Hallveigarstaða, ávarpaði fundinn.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands flutti
kveðju. Hallveigarstaðir afhentu gjöf til
Veraldar – húss Vigdísar Finnbogadóttur en
Vigdís Finnbogadóttir og Auður Hauksdóttir
forstöðu maður Veraldar veittu henni viðtöku.
Ragnheiður Gröndal söng.
Seinna sama dag stóðu Kvennakirkjan,
Kvenfélagasamband Íslands og Kvenréttinda-
félag Íslands fyrir kvennamessu í Laugar-
dalnum. Tatjana Latinovic flutti kveðju frá
Kvenréttindafélaginu.
FRÁ RAUÐSOKKUM TIL
BRJóSTAByLTINgAR – HVAR
STöNDUM VIÐ Nú?
31. ágúst hélt Fríða Rós Valdimarsdóttir
erindi á málþingi Jafnréttisstofu um stöðu
og framtíð kvennabaráttunnar sem haldið
var í Veröld – húsi Vigdísar Finnbogadóttur.
Málþingið var haldið til heiðurs Kristínu
Ástgeirsdóttur sem lét af störfum sem
framkvæmdastýra Jafnréttisstofu eftir tíu ára
starf.