19. júní - 19.06.2018, Page 109
Ársrit Kvenréttindafélags Íslands | 107
stóð að halda kynjaþing 28. október 2017 en
Alþingiskosningar voru boðaðar með stuttum
fyrirvara þann sama dag. Ákveðið var að fresta
kynjaþingi fram í mars 2018.
Kvennafrí 2016
Kvenréttindafélag Íslands stóð, ásamt
fjölda annarra samtaka kvennahreyfingarinnar
og samtaka launafólks, fyrir mótmælafundi á
Austurvelli 24. október 2016 til að mótmæla
kjaramun kynjanna. Félagið hafði umsjón með
gerð lokaskýrslu kvennafrísins sem kom út 30.
janúar 2017.
Kvenréttindafélagið framleiddi á árinu
stuttmynd um kvennafríið, Income Equality
Now! Women in Iceland Walk Out, sem
leikstýrt var af Leu Ævarsdóttur. Brynhildur
Heiðar- og Ómarsdóttir skrifaði handrit,
Alexander Hrafn Ragnarsson sá um klippingu
og hljóð og Alexander Hrafn Ragnarsson,
Eyjólfur Jónsson, Nicola Santoro og Steinunn
Ýr Einarsdóttir sáu um kvikmyndatöku. Lagið
„Salt“ eftir hljómsveitina Mammút er leikið
undir myndinni. Ljósmyndir og annað myndefni
fékkst frá RÚV, Zorro2212 hjá Wikimedia
Commons, Colores Mari hjá Flickr og Mobilus
In Mobili hjá Wikimedia Commons. Sérstakar
þakkir við framleiðslu stuttmyndarinnar fá
velferðarráðuneytið, Una Torfadóttir, Dögg
Mósesdóttir, Halla Kristín Einarsdóttir, Randi
Stebbins og Justyna Grosel.
Opið hús – Kvennaheimilið
Hallveigarstaðir
Kvenréttindafélag Íslands býr svo vel
að reka Kvennaheimilið Hallveigarstaði í
samstarfi við Bandalag kvenna í Reykjavík og
Kvenfélagasamband Íslands. Árið 2012 var farið
í sérstakt átak til að nýta húsið í þágu kvenna
og Kvenréttindafélagið kynnti Hallveigarstaði
fyrir ýmsum hópum og veitti milligöngu um að
þeir fengju ókeypis aðstöðu fyrir fundarhöld,
viðburði og geymslu.
Síðastliðinn vetur funduðu meðal
annars í húsinu Fjöruverðlaunin – félag um
bókmenntaverðlaun kvenna á Íslandi, Rótin
– félag um málefni kvenna með áfengis- og
fíknivanda og W.O.M.E.N. in Iceland – Samtök
kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.
16 daga átak gegn
kynbundnu ofbeldi
Kvenréttindafélagið tók, í samstarfi
við fjölda félagasamtaka hér á landi og
erlendis, þátt í að skipuleggja 16 daga átak
gegn kynbundnu ofbeldi 25. nóvember til 10.
desember 2017.
Ásta Jóhannsdóttir félagskona
í Kvenréttindafélaginu skrifaði grein í
Fréttablaðið í tilefni átaksins, „Stöðvum
stafrænt ofbeldi!“, sem birtist 26. nóvember
2017.
Vefir
Kvenréttindafélagsins
Vefsíða Kvenréttindafélagsins er
vistuð undir léninu kvenrettindafelag.
is. Síðan er hönnuð af Brynhildi Heiðar-
og Ómarsdóttur, myndskreytt af Þóreyju
Mjallhvíti H. Ómarsdóttur og hýst hjá 1984.
Nokkrar undirsíður eru vistaðar á síðunni,
mmk.kvenrettindafelag.is sem varðveitir
upplýsingar um Menningar- og minningarsjóð
kvenna, nam.kvenrettindafelag.is sem
hýsir námsefni fyrir framhaldsskólanema í
kynjafræði og grunnskoli.kvenrettindafelag.is
sem hýsir verkefni ætluð til kennslu í kynjafræði
á grunnskólastigi. Kvenréttindafélagið
heldur úti vefgátt þar sem erlendir gestir
og blaðamenn geta nálgast upplýsingar um
stöðu kvenna á Íslandi og jafnrétti kynjanna:
kvenrettindafelag.is/useful-resources.
Félagið heldur einnig utan um lénin:
stodvumhrelliklam.is, kynjathing.is, kvennafri.is
og feministinn.is.
Fylgjendum Kvenréttindafélagsins á
Facebook fjölgar stöðugt og voru 3.931 í árslok
2017. Fylgjendur félagsins á Twitter voru á
sama tíma 464.
Umsagnir og skýrslur
Kvenréttindafélagið skrifaði á árinu níu
umsagnir um lagafrumvörp og eina umsögn
um reglugerð á vegum velferðarráðuneytisins.