Strandapósturinn - 01.06.1975, Qupperneq 41
við. Þessi bátur hét „Norden“ og var skipstjórinn norskur.
Þetta vor var ég í vinnu á ísafirði.
Daginn sem við fórum frá Isafirði var ágætt veður, sem hélst
alla leiðina á enda. Þegar við komum norður fyrir Straumnes,
þá setti yfir okkur sótþoku eins og oft vill vera fyrir Strandirn-
ar, að öðru leyti var veðrið gott, hægur á austan.
Einn af þeim, sem með okkur var í þessum hóp, var
þaulvanur maður af Isafjarðar-bátunum og oft stýrimaður á
þeim, traustur úrvalsmaður, stór og föngulegur. Hann hét Jón
Magnússon frá Gjögri, sonur Magnúsar Jónssonar frá Tungu-
gröf, sem fórst með Helluskipinu, einn af þeim úrvalsmönn-
um, sem þá fóru í sjóinn út á Gjögursmiðum í hákarlalegu.
Það var 5. apríl 1894.
Jón Magnússon var við stýrið alla leiðina að Gjögri, en þar
fór hann af. Það var að sjá, að hann væri vanur við að vera í
dimmu á sjó, því ekki fór hann af réttri leið. Hann hefur tekið
strik djúpt fyrir Horn til að vera viss. Við munum hafa verið
um það bil fram af Geirólfsgnúp, þegar grisjaði ofurlítið í
þokuna. Þá sáum við skip alllangt frá okkur landmegin við
okkur. Það var Esja á vesturleið. Til þess að taka Norðurfjörð
hefur Jóni þótt vissara að vera djúpt fyrir, því ekki var gott að
lenda of nálægt Selskeri, sem er út af Ófeigsfjarðarflóa.
Fyrsti viðkomustaður var Norðurfjörður, því þar ætluðu
nokkrir að fara af. Það fyrsta sem við sáum land, frá
Kögurhlíð, var Krossnesfjall, sem kom þarna eins og ferlíki út
úr þokunni á stjórnborða. Þá vorum við að fara inn á
Norðurfjörð. Þetta fannst mér snilldarlegt, þetta er að vera viss
og þó var bara kompás til að fara eftir, því ekki var radarinn
þá kominn til sögunnar. Næsti viðkomustaður var Gjögur, en
þar fór Jón Magnússon af og þar með hans leiðsögn búin. Eftir
það var þokulítið og bjart eftir að kom inn að Eyjum, en þar
fóru nokkrir menn af, og því næst var haldið að Drangsnesi.
Frá Gjögri voru þaulkunnugir menn til leiðsagnar, því víða
eru grynningar sem varast þarf, þegar farin er grunnleið.
Frá Drangsnesi var haldið að Smáhömrum, sem var síðasti
viðkomustaðurinn, og þá vorum við úr Tungusveitinni komnir
heim í okkar sveit, komnir á leiðarenda. Það var hressandi og
39