Strandapósturinn - 01.06.1975, Qupperneq 49
hvikatimburs, Arnarsonar, Geirmundssonar heljarskinns. (sjá
Grettissögu),
Þá er komið að Arndísi auðgu Steinólfsdóttur hins lága, en
hún er eina iandnámskonan á Ströndum. Um hana er því
miður fátt vitað. Hennar er aðeins getið í stuttri frásögn í
Landnámu, eins og fyrr er getið, en það er lítið á því að græða
og þó. Það virðist nokkuð öruggt, að hún hefur fengið
landnám sitt frá Bálka Blængssyni á Bálkastöðum. Son þann
átti Amdís, er Þórður hét, hann mun hafa verið sonur Bálka
Blængssonar.
Eigi er getið fleiri barna Amdísar, en ekki er heldur getið
konu Bálka, aðeins barna hans. Og nú vakna ýmsar spurning-
ar, sem aldrei munu fást viðhlýtandi svör við. Freistandi væri,
að álykta, að Amdís hafi verið móðir barna Bálka. Hún fær
land hjá Bálka. Hún á son með Bálka. Þau búa í næsta
nágrenni hvort við annað. Og síðast, en ekki síst, að þegar
Bálki fer að eldast, flytur hann að Bæ til Arndísar og deyr þar.
Hvað valdið hefur því, að þau Arndís og Bálki urðu ekki
hjón að landsins lögum, verður aldrei upplýst. En ástæðan
fyrir því gæti verið mismunur á ættgöfgi. Arndís er auðug og
stórættuð, afi hennar er hersir í Noregi. Um ættgöfgi Bálka er
ekki vitað, aðeins að hann er Bálki Blængsson, Sótasonar.
Aftur á móti er Arndís, með auð sinn og ættgöfgi, sjálfráð
gerða sinna að öðru leiti en því, að þá gátu konur ekki gengið
að eiga mann, nema með samþykki föður eða nánasta
forsjármanns. Þá var ekki léð máls á því, að ættstórar konur
gengi að eiga ættsmáa menn, í því efni var heiður ættarinnar í
veði.
Á hitt benda svo allar líkur að þarna hafi verið um ást að
ræða af beggja hálfu. Að þarna hafi gerst ein af þeim mörgu
ástarsögum, sem aldrei verða skráðar.
Þórður sonur Arndísar og Bálka Blængssonar bjó í Múla í
Saurbæ. Að síðustu verða taldir hér nokkrir af afkomendum
landnámskonunnar á Ströndum, Arndísar auðgu.
Arndís auðga, hennar sonur Þórður, hans dóttir Þorgerður,
er átti Odd, en sonur Þorgerðar og Odds, var Hrafn
47