Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1975, Page 111

Strandapósturinn - 01.06.1975, Page 111
I spretthlaupinu kepptu Halldór Ólafsson og Hendrik Theódórs, og vann Halldór. Þá kom að því atriði, sem mestan áhuga vakti, en það var reipdráttur milli Staðhreppinga og Bæhreppinga. Hendrik kom með nýja kaðalrúllu alldigra. Tíu menn röðuðu sér á hvorn enda. Hjá Staðhreppingum var endamaður Ingþór Björnsson bóndi að Óspaksstöðum, en hjá Bæhreppingum Ólafur Ólafs- son, Borgum. Merki var gefið og kaðallinn strengdist. Brátt drógu Bæhreppingar kaðalinn til sín og varð þá óp mikið. Ekki vildu Staðhreppingar þessu una, og varð nú skipt um aðstöðu. Fóru Staðhreppingar þangað sem Bæhreppingar höfðu verið, en Bæhreppingar í stað Staðhreppinga. Nú var löng barátta, sem endaði með því að Staðhreppingar sigruðu. I þriðja sinn var togið þreytt. En þá gerðist það, að svo margir áhorfendur hlupu á kaðalinn að ég vissi aldrei hver úrslitin urðu. Varð ólga mikil í mönnum og lá við heitingum. Þó urðu engin handalögmál, enda sást ekki vín á neinum. Bæhreppingar höfðu úr stærri hóp að velja, en sögur gengu um, að Staðhreppingar hefðu seilst eftir kraftamönnum austur um Húnavatnssýslur og jafnvel austur í Skagafjörð. Veit ég engar sönnur á þessu, en heyrði þetta sagt. Þegar frá leið höfðu margir gaman af. Við bræður fórum nú út í sláturhús. Þar voru veitingar í suðurenda hússins. Gaf Brandur mér súkkulaði og kökur, sem ég gerði góð skil. Þá kom ræðan, sem ég man ekkert úr. Held að hún hafi verið fyrir minni fslands. En ég man eftir Páli Isólfssyni er hann lék á orgelið, Jón Dungal fletti fyrir hann blöðunum með nótunum. Finnbogi Theódórs söng a.m.k. Eldgamla ísafold og eitt- hvað fleira. Þá var þessi skemmtiskrá tæmd, að því síðasta undanskildu, dansinum. Ég kunni ekki að taka sporið á þessum árum, en horfði á fyrstu dansana. Bróðir minn dansaði við eina ljóshærða, sem bauð mér að dansa við sig, en þó að 109
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.