Morgunblaðið - 07.08.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 07.08.2021, Qupperneq 10
2021 ALÞINGISKOSNINGAR10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er mikil umferð af gangandi fólki hérna og mannlífið líflegt. Okkur fannst þetta því kjörinn staður,“ segir Aðalsteinn Haukur Sverrisson, formaður Framsókn- arfélags Reykjavíkur og frambjóð- andi í öðru sæti flokksins í Reykja- víkurkjördæmi suður. Framsóknarflokkurinn hefur tryggt sér húsnæði fyrir kosn- ingaskrifstofu á jarðhæð Borg- artúns 26, þar sem Vínbúðin var lengi til húsa. Aðalsteinn segir að ekki sé búið að ákveða nákvæmlega hvenær skrifstofan verði opnuð en kveðst búast við að það verði ein- hvern tímann á milli 15. og 20. ágúst. Kosið verður til Alþingis 25. september næstkomandi og ljóst að kosningabaráttan er að hefjast. „Við erum komin í starthol- urnar,“ segir Aðalsteinn við Morg- unblaðið. Hann kvaðst ekki vita til þess að aðrir flokkar væru komnir jafn langt við undirbúning kosn- ingaskrifstofa, en skrifstofa Fram- sóknar fer ekki fram hjá nokkrum manni. Stórar myndir af frambjóð- endum blasa við vegfarendum, rétt eins og slagorð flokksins; framtíðin ræðst á miðjunni. „Við hlökkum til að opna dyrnar og bjóða fólki í kaffi. Það er mikill hugur í okkur og við erum spennt að kynna okkar stefnumál og hvað við stöndum fyrir. Hér ætlum við að gera umhverfið skemmtilegt, nóg er af plássi og við getum boðið bæði upp á fræðslu og skemmtun en um leið virt þennan raunveruleika sem við þekkjum í dag vegna Covid.“ Morgunblaðið/sisi Skrifstofa Framsóknarflokkurinn opnar brátt miðstöð í Borgartúni 26. Framsókn ríður á vaðið í Borgartúni - Opnar fyrstu kosningaskrifstofuna Laugavegur 114, 116 og 118b Rauðarárstígur 10 • U.þ.b. 8.200 m2 fasteign í hjarta miðbæjarins sem býður upp á mikla framtíðarmöguleika • Fasteignin er eitt af kennileitum Reykjavíkur og er staðsett á horni Laugavegar og Snorrabrautar • Staðsetning er við Hlemm, miðpunkt fyrirhugaðrar Borgarlínu • Fjölbreytt mannlíf, veitingastaðir, kaffihús og hótel í nágrenninu • Við Hlemmtorg eru fyrirhugaðar spennandi breytingar sem auka notkunargildi svæðisins • Fasteignin við Laugaveg 114-118b var teiknuð af Gunnlaugi Helgasyni arkitekt • Bílastæðahús með 191 stæðum er í göngufæri • Aðgangsstýrt bílastæði í bakgarði með 91 stæði • Burðarvirki hússins samanstendur af steyptum bitum og súlum • Lagnakerfi hússins þarfnast endurnýjunar samhliða breyttri notkun og uppbyggingu Tækifæri fyrir fjárfesta eða þróunaraðila til að finna byggingunni nýtt og nútímalegt hlutverk. Frekari upplýsingar um eignina er hægt að nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa www.rikiskaup.is. Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið fasteignir@rikiskaup.is. Fyrirspurnum verður svarað í ágúst eftir sumarleyfi. Aðilar eru hvattir til að kynna sér fyrirliggjandi gögn. Mat verður lagt á tilboð sem berast um miðjan ágúst. Boðið verður upp á skoðunarferð áður. Seljandi áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum. TIL SÖLU „Það hefði verið óábyrgt að ætla að halda slíkan fund í þessu ástandi,“ segir Þórður Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Miðstjórn flokksins ákvað í gær að fresta landsfundi flokksins sem fyr- irhugað var að halda 27. ágúst næstkomandi. Ekki hefði verið unnt að halda fundinn með hefð- bundnum hætti vegna sam- komutakmarkana. „Það hafa um 1.800 manns setu- rétt á landsfundi og þetta er jafnan um 1.200-1.300 manna samkoma. Slíkt rúmast ekki innan núverandi takmarkana,“ segir Þórður. Hann segir jafnframt að í staðinn verði boðað til formanna- og flokksráðs- fundar um sömu helgi. Sá fundur verður rafrænn og hafa um 700 manns seturétt á honum. Framsóknarflokkurinn hyggst halda flokksþing um sömu helgi. Samkvæmt upplýsingum frá Helga Hauki Haukssyni, framkvæmda- stjóra flokksins, má gera ráð fyrir að í næstu viku verði tekin umræða um fyrirkomulag flokksþingsins. Framhaldslandsfundur VG verð- ur frestað, upplýsir Björg Eva Er- lendsdóttir, framkvæmdastjóri flokksins. Hún segir framhalds- fundinn, sem átti að fara fram 27. ágúst, hafa verið komið á fyrr á árinu í þeim tilgangi að tryggja að fólk geti hist. Nú er ljóst að svo verður ekki. Þá á eftir að kjósa stjórn, flokksráð og trúnaðarráð og mun kosning fara fram með raf- rænum hætti. Fresta landsfundi vegna samkomutakmarkana - Tveimur landsfundum frestað - Framsókn skoðar málið Morgunblaðið/Eggert Formaður Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á landsfundi Morgunblaðið/Árni Sæberg Landsfundur Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, á landsfundi fyrr á árinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.