Morgunblaðið - 07.08.2021, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021
✝
Sigurlína Jóns-
dóttir fæddist á
Akureyri 11. janúar
1949. Hún lést á
sjúkrahúsinu á
Húsavík 29. júlí
2021. Foreldar
hennar voru hjónin
Ingibjörg Ólafs-
dóttir verkakona, f.
14.3. 1930, d. 20.10.
2010, og Jón Hann-
esson sjómaður, f.
4.9. 1924, d. 28.1. 2004. Sonur
Sigurlínu er Jón Hafþór Þór-
isson, f. 19.12. 1966, giftur Suk-
anda Kaewya, f. 22.5. 1994.
Hinn 30.5. 1971 giftist Sig-
urlína Þórarni Höskuldssyni vél-
stjóra, f. 12.12. 1949. Dætur
þeirra eru a) Tinna,
f. 26.1. 1985, gift
Ómari Þorgeirssyni,
f. 7.6. 1980. Dóttir
þeirra er Bryndís
Lína. b) Rakel, f.
2.3. 1988, gift Gesti
Einarssyni, f. 20.1.
1987. Börn þeirra
eru Einar Ari, Jónas
Þór, Ingibjörg Halla
og Hafdís Hanna.
Sigurlína ólst upp
á Akureyri en flutti til Húsavík-
ur 1971 og bjó þar alla tíð eftir
það. Hún vann lengst af á leik-
skóla á Húsavík.
Útförin verður gerð frá Húsa-
víkurkirkju í dag, 7. ágúst 2021,
klukkan 14.
Yndislega, fallega og góða
mamma mín er farin og mér
finnst það svo óraunverulegt.
Allt sem við áttum eftir að gera
saman, ferðalögin og spjallið.
Það er stórt skarð í hjarta mínu
sem aldrei verður fyllt.
Mamma var ótrúleg kona,
yndisleg mamma og frábær
amma. Minningarnar eru marg-
ar og svo endalaust margt sem
ég og við fjölskyldan getum verið
þakklát fyrir.
Það skipti mömmu og pabba
miklu máli að við systur vissum
um uppruna okkar og ég man að
mamma var dugleg að segja mér
sögur frá Sri Lanka og sögur frá
því þegar þau pabbi sóttu mig í
febrúar 1985. Sögur af því þegar
þau hittu blóðmóður mína, ferða-
lögum þeirra um eyjuna og svo
ferðalagið með mig heim til Ís-
lands. Þegar ég ákvað svo að
leita upprunans þá var mamma
minn helsti stuðningur og hún og
pabbi búin að ákveða að fara með
mér aftur út í heimsókn. Ég veit
að mamma mun vera með mér í
þeirri ferð þegar að henni kemur.
Mamma var algjört hörkutól
og lá ekki á skoðunum sínum. Við
vorum ekki alltaf sammála, en ég
verð að viðurkenna að oftast
hafði hún rétt fyrir sér.
Þegar ég var í háskólanum
hringdi mamma undantekning-
arlaust á laugardagsmorgnum
fyrir klukkan níu og sagði:
„Bíddu var ég nokkuð að vekja
þig“? Vitandi það að líkurnar á
því að ég hefði verið á djamminu
kvöldið áður voru töluverðar.
Hún þurfti alltaf að tékka á
manni.
Þó að ég hafi ekki búið á Ís-
landi þegar ég varð mamma sjálf
þá var mamma ótrúlegur stuðn-
ingur fyrir mig og Ómar. Við
heyrðumst oft á dag í síma og á
skype. Það var síðan mamma
sem fann það, þúsund kílómetra í
burtu, að ekki væri allt í lagi hjá
mér eftir fæðingu dóttur minnar
og taldi mig vera með fæðing-
arþunglyndi sem reyndist svo
hárrétt hjá henni. Ég verð henni
ævinlega þakklát fyrir að ýta
mér út í það að leita mér hjálpar
og vera til staðar fyrir mig og
mína.
Mamma barðist hetjulega við
ólæknandi krabbamein í meira
en fjögur ár. Naglinn sem hún
var lét veikindin ekki stoppa sig
á neinn hátt og fór t.d. í sjö utan-
landsferðir á þremur árum. Það
hefur verið aðdáunarvert að
fylgjast með mömmu og pabba í
gegnum þessa baráttu, allt gert
til að nýta tímann vel og búa til
góðar minningar fyrir okkur öll
og þá ekki síst barnabörnin.
Elsku mamma, takk fyrir alla
ástina, ráðin og minningarnar
sem ylja. Ég elska þig og ég mun
halda minningu þinni hátt á lofti.
Þín að eilífu,
Tinna.
Elsku mamma. Hvar skal
byrja? Ég á mér ótal minningar
um þig sem kæta og ylja á þess-
um erfiða tíma. Það sem er mér
efst í huga er þakklæti, ást, kær-
leikur, umhyggja, samhygð,
traust, vinátta og söknuður. Í
september árið 1988 var ég svo
ótrúlega lánsöm að fá tækifæri til
þess að eiga betra líf en ég ann-
ars hefði fengið. Þið pabbi lögðuð
af stað í ferðalag til Indlands að
sækja sex og hálfs mánaðar
stelpuskott sem þið elskuðuð frá
fyrstu kynnum. Þú gafst mér alla
þá ást og umhyggju sem ég
þurfti, fæddir mig og klæddir, í
sérhönnuð föt „made by Lína“ og
ólst mig og systur mína upp á
góðu heimili. Ég minnist þess að
hafa átt frábæra æsku. Þú lagðir
mikið upp úr því að við systur
værum vel tilhafðar og gættir
þess að við hefðum allt til alls.
Þegar kom að því að ég fór að
eiga mér áhugamál studdir þú
mig alla leið og fylgdir mér í einu
og öllu. Þú tókst þátt í sundstarf-
inu þegar ég æfði sund, fylgdir
mér á tónleika þegar ég æfði á
píanó og þverflautu og ég tala nú
ekki um það að þú saumaðir á
mig fallega kjóla sem ég klædd-
ist stolt á tónleikum. Þegar ég
verð 16 ára hefst langt tímabil
hjá mér þar sem ég var í enda-
lausu læknastússi. Og ég vil taka
það fram að því er ekki lokið. En
þú fylgdir mér hvert fótmál í
þeim málum fram á síðasta dag.
Það er svo margs að minnast.
Við áttum endalausar stundir
saman, bæði mislöng samtöl sím-
leiðis sem og þær stundir þegar
við hittumst eftir að ég flyt suð-
ur. Oft vorum við ósammála og
höfðum mjög misjafnar skoðanir
á málum. Þér fannst ég oft ekki
vera að hlusta á þínar ráðlegg-
ingar en án þess að þú vissir tók
ég þær inn í lífið og velti fyrir
mér hvernig stæði á því að
mömmur hafa alltaf rétt fyrir
sér. Þú tókst móðurhlutverkið
alla leið. Varst góður hlustandi,
leiðbeinandi, mjög ráðagóð og
komst alltaf með skynsamleg-
ustu úrlausn vandamála sem upp
komu. Þú vildir alltaf það besta
fyrir mig og fjölskyldu mína og
stóðst eins og klettur í gegnum
bæði slæma tíma jafnt sem þá
góðu sem ég og mín fjölskylda
þurftum að takast á við. Það fá
engin orð lýst því hversu ynd-
isleg og frábær amma þú varst.
Alltaf svo dugleg að spjalla, spila,
leika, baka og kenna börnunum.
Við viljum þakka þér fyrir allt, að
vera til staðar fyrir okkur, hugga
okkur og styrkja, hvetja og
gleðja og við munum sakna þín
endalaust mikið og halda fast í
minningar okkar að eilífu. Takk
fyrir allt elsku mamma mín. Ég
sakna þín og elska þig.
Kveðja til mömmu
Eitt ljós í hjarta mér hefur slokknað nú,
þetta bjarta fallega ljós varst þú.
Aðeins minningarnar lifa í hjarta mér,
móðurástin svo sterk, hún aldrei fer.
Þú allt fyrir barnabörnin gerðir,
um allt land og allan heim lagðir þínar
ferðir.
Fyrir samveru með þínu nánasta liði,
og dugleg varstu að kenna okkur góða
siði.
Nú komið er að kveðjustund,
en síðar við fáum okkar endurfund.
Takk fyrir allt, ég mun sakna þín,
ég mun geyma þig í hjarta mér, elsku
mamma mín.
(Rakel Þ., 2021)
Ástarkveðja, þín dóttir,
Rakel.
Við andlát tengdamóður minn-
ar lýkur stórum kafla í mínu lífi
og barna minna. Í huganum
hrannast upp minningar frá
þessum stutta tíma sem við átt-
um saman. Nærvera þín var svo
einstök og hlý ásamt því að vera
alltaf hrein og bein, ekkert að
skafa af hlutunum.
Fyrsta skiptið er ég hitti þig
sagðist ég heita „Gestur frá
Hæli, og mun ég plata dóttur
þína í búskap og flytja hana á
Suðurlandið“. Svarið sem ég
fékk: „Ef þú klárar plokkfiskinn
frá mér mun ég samþykkja þig
sem tengdason en ekki plata
Rakel í búskap.“ Fiskurinn var
mjög vel matreiddur líkt og allar
þær veitingar sem þú bauðst upp
á og kláraði ég hann af bestu
lyst.
Þú tókst rosalega vel á móti
Einari Ara sem ég átti áður en ég
kynntist Rakel og komst fram
við hann af alvöru „ömmuást“
líkt og hann hefur orðað það og
voru maturinn og kleinurnar þín-
ar í uppáhaldi hjá okkur öllum
sem enginn mun geta leikið eftir.
Ég vil þakka þér fyrir allar
þær frábæru stundir sem við átt-
um saman ásamt samtölunum og
ráðunum sem þú gafst mér.
Í lokin þótti mér æðislegt er
við kvöddumst með hlýleika og
þú vissir allt um börnin okkar
Rakelar ásamt búskap.
Takk fyrir allt elsku Lína mín,
listinn er ótæmanlegur af góðum
minningum sem munu lifa meðal
okkar um aldur og ævi.
Við sjáumst síðar þar sem ég
mun stríða þér áfram.
Að lokum kemur þetta frá
okkur og barnabörnunum Einari
Ara, Jónasi Þór, Ingibjörgu
Höllu og Hafdísi Hönnu:
Ég fel í sérhvert sinn,
sál og líkama minn,
í vald og vinskap þinn,
vörn þar og skjól ég finn.
(Hallgrímur Pétursson)
Með kærleikshjarta.
Þinn tengdasonur,
Gestur Einarsson.
Auður stóll er í Sérríklúbbn-
um. Lína okkar er farin en við
höfum um nokkurn tíma vitað að
það stefndi að leiðarlokum.
Áfram verður hún í anda alltaf
með okkur sérrísystrum.
Sérríklúbburinn á sér langa
sögu, allt frá því að flestar okkar
byggðu hús og fluttu í hverfið
okkar á Húsavík, þær fyrstu fyr-
ir rúmum 40 árum. Fljótlega
varð nafnið til á klúbbnum sem
hefur verið haldinn á miðviku-
dagsmorgnum, aðra hverja viku
yfir vetrartímann. Fyrstu ára-
tugina sáu allar til þess að kom-
ast úr vinnu á þessum tíma,
margt var spjallað og dýrmætur
vinskapur þróaðist í gegnum
gleði og sorg. Síðustu ár, eftir að
við höfum minnkað við okkur
vinnu, höfum við hist oftar og
fundið hversu ómetanlegt það er
að eiga hver aðra að, ekki síst
Línu sem alltaf var tilbúin að
hjálpa. Það sem hún tók að sér
gerði hún einnig af mikilli alúð.
Heim til okkar kom hún og ræddi
málefni líðandi stundar – engin
lognmolla þar. Takmarkanir sem
núverandi heimsfaraldur hefur
sett á samskipti dýpkuðu sam-
heldni og vinskap, og við hitt-
umst þá í okkar „sérríkúlu“.
Við munum sakna elsku Línu
okkar. Hún var falleg, vel gefin
sterk kona, mikil húsmóðir – allt
lék í höndum hennar. Borðið sem
lagt var fallega á, í sérríklúbbi
hjá Línu, bar þess líka merki.
Hún prjónaði og gat gert við allt
sem þurfti og hjálpaði sérrísyst-
um við gardínusaum og fleira.
Hún átti alltaf eitthvað til að
gefa, t.d. eigin barnabörnum og
einnig okkar hinna.
Lína var saumakona, breytti
flíkum og lagaði og saumaði fyrir
vini og vandamenn. Fyrir eina
okkar gerði hún meira að segja
fallega dýrindis dragt. Hún
saumaði sinn eigin brúðarkjól en
þau Þórarinn áttu gullbrúðkaup
á þessu ári. Kvenfélag Húsavíkur
og þar með samfélagið allt naut
krafta hennar og var hún t.d.
leiðandi í laufabrauðsgerð, átti
fallegustu kökur, fór fyrir þorra-
blótum og var lengi í stjórn.
Lína var oft þungamiðjan í
fjörugum hreinskilnum um-
ræðum þar sem heiðarleiki henn-
ar kom svo vel í ljós og þá var
líka oft mikið hlegið. Hún stóð
föst á sínu og það var aðdáun-
arvert hvernig hún höndlaði bar-
áttuna við krabbameinið, með til-
heyrandi vanlíðan, á svo
jákvæðan hátt. Ljóslifandi er
mynd í huganum af Línu fara
hjólandi úr Árholtinu, staðföst og
ljómandi á svip.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð.
Lifðu sæl á ljóssins friðarströnd
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Við sendum Þórarni, Hafþóri,
Tinnu, Rakel og fjölskyldum
þeirra okkar innilegustu samúð-
arkveðjur. Megi minningin um
Línu lifa.
Hildur Baldvinsdóttir
(Hilla), Hólmfríður
Benediktsdóttir (Hóffý),
Svala Hermannsdóttir,
Björg Sigurðardóttir,
Ólöf Ásta Ólafsdóttir.
Sigurlína
Jónsdóttir
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og
frændi,
SIGURÐUR RAGNAR KRISTJÁNSSON
Siggi Raggi,
lést á Borgarspítalanum sunnudaginn
1. ágúst. Útför hans fer fram frá
Vídalínskirkju í Garðabæ fimmtudaginn 19. ágúst klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni, hlekk á streymi má nálgast á
mbl.is/andlát. Þeim sem vilja minnast Sigga er bent á
Handverkstæðið Ásgarð, reikningur: 528-26-123456,
kennitala 610396-2679.
Kristján Guðni Hallgrímsson Steinhildur Sigurðardóttir
Edda Björk Kristjánsdóttir Jón Trausti Ólafsson
Dilja Björk Örvarsdóttir
Arnar Ingi Traustason
Hildur Karitas Traustadóttir
Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓN BORGÞÓR SIGURJÓNSSON,
Boggi,
Nestúni 6, Hvammstanga,
lést á Heilbrigðisstofnun Akraness
þriðjudaginn 27. júlí. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 12. ágúst klukkan 13. Einnig verður streymt frá
athöfninni í gegnum mbl.is/andlat. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er
bent á Félag áhugafólks um Downs-heilkenni, www.downs.is.
Sylvía Marta Borgþórsdóttir
Rósa Karen Borgþórsdóttir Dagur Hilmarsson
Kristín Björg Borgþórsdóttir
Sigríður Kling
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HANNES PÉTURSSON,
prófessor í geðlækningum,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
miðvikudaginn 4. ágúst.
Hann verður jarðsunginn í Dómkirkjunni 16. ágúst
klukkan 15 og verður athöfninni streymt á www.sonik.is/hannes.
Færum starfsfólki Markar þakkir fyrir allan kærleikann
og einstaka umönnun.
Júlíana Sigurðardóttir
Sólveig Guðrún Hannesd. Jónas Páll Jónasson
Kristín Inga Hannesdóttir Hilmar Hauksson
Þórunn Hannesdóttir Jason Andrew Doyle
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
SIGURÐUR ÓLAFSSON
fv. póst- og símstöðvarstjóri
Hrísmóum 1, Garðabæ,
lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu,
Hraunvangi, Hafnarfirði, miðvikudaginn 4. ágúst.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju klukkan 15 þriðjudaginn
10. ágúst. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
krabbameinsfélög.
Guðbjörg Þorleifsdóttir
Sigurborg Sigurðardóttir Ljótur Ingason
Svanhvít Sigurðardóttir Ragnar Jörundsson
María Sigurðardóttir Páll Sigurðsson
Halldór Ó. Sigurðsson Margrét H. Hjaltested
Þóra Sigurðardóttir Sigurður G. Jóhannsson
Ingvar E. Sigurðsson Edda Arnljótsson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞORBJÖRG ÁGÚSTA BIRGISDÓTTIR
Vesturbergi 78, Reykjavík,
lést á Landspítalanum v/Fossvog,
mánudaginn 2. ágúst. Útförin fer fram frá
Hvalsneskirkju, fimmtudaginn 12. ágúst klukkan 14.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur
vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á
https://www.facebook.com/groups/thorbjorg
Vilhjálmur Jón Gunnarsson Svanfríður Sturludóttir
Gunnar G. Gunnarsson Hafdís Sigurjónsdóttir
Rósalind María Gunnarsd. Ágúst Erling Gíslason
Einar Þór Haraldsson
barnabörn og barnabarnabörn