Morgunblaðið - 07.08.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.08.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er ógeðslega pirrandi fyrir borgandi kúnna að lenda í þessu en sem betur fer tóku langflestir þessu vel, sýndu okkur þolinmæði og skilning og nutu tónleikanna,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson, tón- leikahaldari hjá Senu. Eins og kom fram í Morgun- blaðinu á þriðjudag voru brögð að því að fólk sem keypti miða á brekkusöng í Vestmannaeyjum og á tónleika Helga Björns frá Hótel Borg lenti í vandræðum með streymið. Engin vandræði virðast hafa verið hjá þeim sem horfðu á tónleikana í Sjónvarpi Símans eða í myndlyklum Vodafone. Hnökrar í byrjun Sena sá um framkvæmd brekku- söngsins og segir Ísleifur að straumurinn hafi reynst tímabund- ið í byrjun tónleika ótraustur að þessu sinni. „Þrátt fyrir endalausar prófanir fyrr um daginn þar sem allt var 100% voru truflanir þegar upphitun byrjaði klukkan 21. Höktið var verst í svona 15 mínútur en klukk- an 21.30 var búið að laga þetta og hélst straumurinn góður út tón- leikana. Brekkusöngurinn sjálfur hófst klukkan 23 og lauk um mið- nætti,“ segir hann. Um 15% þeirra sem keyptu sér miða horfðu í streymi sem þýðir að um 85% af áhorfendum urðu ekki fyrir neinum truflunum. Segir Ís- leifur að margir hafi haft samband við Senu meðan á truflunum stóð. „Fólk hafði samband og við út- skýrðum að unnið væri að lagfær- ingu, flestir tóku því vel og biðu ró- legir. Sumir urðu hins vegar gríðarlega reiðir og beindu reiðinni gegn því ágæta fólki sem situr fyrir svörum, en það er mikill minnihluti fólks og við sýnum því skilning og tökum því bara. Það sem skiptir máli er að það tókst að laga þetta og frá 21.30 voru engar truflanir.“ Ísleifur segir að þar sem trufl- anir hafi aðeins náð til hluta af þriggja tíma dagskrá sé ekki tilefni til endurgreiðslu, óski fólk þess. „Það hafa komið einhverjar endur- greiðslubeiðnir vegna tæknilegra vandamála en þær eru ekki margar og við getum því miður ekki orðið við þeim. Meðal skilmála Tix.is fyr- ir streymisviðburði er eftirfarandi klausa: „Meira en 80% af viðburð- inum var sannarlega með gæða- vandamál (ekkert hljóð, léleg hljóð & myndgæði) í beinu útsending- unni og ekki var hægt að horfa á upptöku af viðburðinum án gæða- vandamála innan 12 klukkustunda eftir að útsendingu lauk.“ Hvorugt á við hér og því eru engar endur- greiðslur vegna tæknilegra vanda- mála hjá okkur. Ef einhver upp- lifði tæknileg vandamál eftir 21.30 þá getur ýmislegt valdið því; hug- búnaður, stýrikerfi, tæki eða teng- ing. Allir þekkja það að netið get- ur verið óstöðugt og mismunandi gott eftir því hvaða forrit, tæki og tengingar er verið að nota og höf- um talað skýrt um það að við get- um ekki borið ábyrgð á öllum þessum hlutum. Við lendum öll í því að hlutir á netinu virka ekki af og til, m.a.s. hjá risafyrirtækjum eins og Netflix og YouTube. Ég verð líka að halda því til haga að við vorum að selja miða á „brekku- söng“ og hann hófst kl. 23 og var í fullkomnu lagi allan tímann. Dag- skrá milli 21 og 23 var einstaklega glæsileg, og því skiljanlegt að þetta hafi valdið pirringi, en hér var samt um upphitun að ræða,“ segir Ísleifur og bendir á að upphitun sem þessi nýtist vel til að taka á vandamálum sem kunna að koma upp áður en kemur að viðburðinum sjálfum. Ódýrara að kaupa streymi Ísleifur segir enn fremur að vita- skuld komi fyrir að miðar séu end- urgreiddir vegna tæknilegra örðug- leika. Óraunhæft sé hins vegar að ætlast til þess að tónleikahaldarar endurgreiði alla streymismiða ef 15 mínútna hökt kemur í upphitun. „Við erum til í að fjárfesta enda- laust í því að gera strauminn betri, lærum alltaf af reynslunni og ger- um sífellt betur en það eru einfald- lega óraunhæfar væntingar að straumur á netinu sé alltaf fullkom- inn og við erum hreinskilin með það. Einmitt þess vegna erum við að selja miða á streymi ódýrara en inni í kerfi símafyrirtækjanna.“ Hrefna Sif Jónsdóttir, fram- kvæmdastjóri Tix.is, segir að ein- hverjir sem keyptu miða á tónleika Helga Björns hafi fengið endur- greitt. Mismunandi ástæður hafi þó legið þar að baki og ekkert stór- vægilegt hafi komið upp á með strauminn. Hafna beiðnum um endurgreiðslu - Truflanir á streymisútsendingu á brekkusöng innan marka skilmála Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Brekkusöngur Þekktir tónlistarmenn á borð við Pálma Gunnarsson, Ragnhildi Gísladóttur, Sverri Bergmann og Guðrúnu Árnýju Karlsdóttur hituðu upp. Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 5812141 // hjahrafnhildi.is Ný sending! Skipholti 29b • S. 551 4422 Skoðið laxdal.is Opið laugardag kl. 11-15 50-70% ÚTSÖLULOK Hildigunnur Svavarsdóttir hefur verið skipuð í starf forstjóra Sjúkra- hússins á Akureyri. Embætti for- stjóra Sjúkrahússins á Akureyri var auglýst þann 25. júní og voru sjö umsækjendur um embættið. Í fram- haldi af álitsgerð- ar hæfnisnefndar ákvað Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráð- herra að skipa Hildigunni Svav- arsdóttur í emb- ættið til fimm ára. Hildigunnur hefur BS-próf í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri og MS-próf í heilbrigðis- vísindum frá Glasgow Caledonian- háskóla. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðs- ins segir að Hildigunnur hafi yfir- gripsmikla þekkingu og reynslu á sviði heilbrigðisþjónustu ásamt víð- tækri reynslu á sviði stjórnunar. Hún hefur verið framkvæmdastjóri hjúkrunar á SAk frá árinu 2012 ásamt því að vera klínískur fram- kvæmdastjóri á bráða- og þróunar- sviði frá sama ári. Í störfum sínum sem framkvæmdastjóri hefur Hildi- gunnur öðlast víðtæka reynslu af rekstri og stjórnun svo og mann- auðsstjórnun. Hún var forstöðumaður deildar kennslu, vísinda og gæða á SAk um tíu ára skeið, sem framkvæmdastjóri og forstöðumaður tók Hildigunnur mjög virkan þátt í uppbyggingu gæðastarfs sem síðan leiddi til al- þjóðlegrar gæðavottunar á SAk. Þá hefur hún verið virk í stefnumótun bæði innan hjúkrunar og fyrir SAk í heild sinni. Hún var skólastjóri Sjúkraflutningaskólans um í tíu ár og átti ríkan þátt í því að nám sjúkra- flutningamanna fluttist á lands- byggðina. Hildigunnur var formaður Landssambands heilbrigðisstofnana í þrjú ár. gso@mbl.is Hildigunnur nýr forstjóri SAk - Skipuð af ráðherra í embætti til fimm ára Hildigunnur Svavarsdóttir Athuganir á gosstöðvum í gær sýndu að í gígnum er hrauntjörn sem situr aðeins neðar í gígnum en undanfarnar vikur, rís og hnígur eins og áður, þó ekki eins hátt. Af þeim sökum hefur dregið verulega úr sýnilegri kvikustrókavirkni og yfirborðsflæði hrauns. Frá þessu greinir eldfjallafræði- og nátt- úruvárhópur Háskóla Íslands. Bent er á að streymi stóru gas- bólanna hafi verið hægara á fimmtudag en verið hefur í hrin- unum undanfarið, sem sé í góðu samræmi við óróann. Virknin í gígnum hafi náð sér upp aðfaranótt gærdagsins, frá um 23 til sex að morgni, með nokkurri kvikustróka- virkni og nokkru hraunflæði á yf- irborði. „Án efa hefur flæði um innri rás- ir hraunsins aukist á þessum tíma, þó svo að við höfum ekki beina vitneskju um það á þessu augna- bliki,“ segir í færslu hópsins. „Virknin í gígnum og flæði yf- irborðshrauns virðist hafa náð há- marki upp úr kl. 5:00 í [gær]morg- un, en því miður getum við ekki staðfest að dregið hafi úr þessari virkni samfara falli óróhraðans um 8:00, þar sem ekki sást til gígsins.“ Gosið mögulega á nýtt stig - Dregið úr sýnilegri virkni Skapti Hallgrímsson Akureyri Sjúkrahúsið gegnir stóru hlutverki í heilbrigðiskerfinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.