Morgunblaðið - 07.08.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.08.2021, Blaðsíða 32
32 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021 Norska kvennalandsliðið í hand- knattleik, undir stjórn Þóris Her- geirssonar, mun leika um brons- verðlaun á Ólympíuleikunum í Tókýó rétt eins og liðið gerði á leik- unum í Ríó árið 2016. Þórir mátti sætta sig við súrt tap í gær fyrir liði Rússlands 27:26 en rússneska liðið mætir því franska í úrslitaleiknum. Sömu lið mættust í úrslitum í Ríó. Noregur minnkaði muninn í 27:26 þegar um ein og hálf mínúta var eftir en rússneska liðinu tókst að halda boltanum út leiktím- ann án þess að skjóta á markið. Noregur leikur um brons AFP Alvarlegur Þórir Hergeirsson fylgist með gangi mála í gær. Gestgjafarnir eru komnir í úrslit í kvennaflokki í körfuknattleik- skeppni Ólympíuleikanna í Tókýó. Japan lagði Frakkland að velli í undanúrslitum 87:71 og fær verð- ugt verkefni í úrslitaleiknum. Þar mætir Japan liði Bandaríkjanna sem vann Serbíu í undanúrslitum. Þær bandarísku unnu með sann- færandi hætti 79:59. Sigurganga Bandaríkjanna er ævintýraleg á Ólympíuleikum en fara þarf aftur til leikanna 1992 til að finna annan sigurvegara en Bandaríkin í kvennaflokki. AFP Í úrslit Gleði Maki Takada leik- manns Japan var ósvikin. Þær japönsku leika til úrslita STJARNAN – ÞÓR/KA 1:1 1:0 Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir 12. 1:1 Karen María Sigurgeirsdóttir 89. M Málfríður Sigurðardóttir (Stjörnunni) Anna María Baldursdóttir (Stjörnunni) Betsy Hassett (Stjörnunni) Hildigunnur Benediktsdóttir (Stjörn.) Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA) Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA) Margrét Árnadóttir (Þór/KA) Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson – 7. Áhorfendur: 78 VALUR – ÍBV 1:0 1:0 Fanndís Friðriksdóttir 90. M Málfríður Anna Eiríksdóttir (Val) Dóra María Lárusdóttir (Val) Ásdís Karen Halldórsdóttir (Val) Ída Marín Hermannsdóttir (Val) Fanndís Friðriksdóttir (Val) Guðný Gestsdóttir (ÍBV) Annie Williams (ÍBV) Clara Sigurðardóttir (ÍBV) Helena Jónsdóttir (ÍBV) Dómari: Helgi Mikael Jónsson – 8. Áhorfendur: 181. TINDASTÓLL – BREIÐABLIK 1:3 1:0 Jacqueline Altschuld 2. 1:1 Karitas Tómasdóttir 17. 1:2 Ásta Eir Árnadóttir 55. 1:3 Karitas Tómasóttir 68 M Jasqueline Altschuld (Tindastóli) Karitas Tómasdóttir (Breiðabliki) Áslaug M. Gunnlaugsdóttir (Breiðabliki) Ásta Eir Árnadóttir (Breiðabliki) Dómari: Eðvarð Eðvarðsson – 7. Áhorfendur: 150. KEFLAVÍK – FYLKIR 1:2 1:0 Tina Marlot 15. 1:1 Bryndís Arna Níelsdóttir 35. 1:2 Bryndís Arna Níelsdóttir 73. MM Bryndís Arna Níelsdóttir (Fylki) MNatasha Anasi (Keflavík) Dröfn Einarsdóttir (Keflavík) Tina Marlot (Keflavík) Tinna Brá Magnúsdóttir (Fylki) Shannon Simon (Fylki) Sæunn Björnsdóttir (Fylki) Þórhildur Þórhallsdóttir (Fylki) Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 7. Áhorfendur: 110. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti. FÓTBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Fanndís Friðriksdóttir var hetja toppliðs Vals er liðið vann torsótt- an 1:0-sigur á ÍBV á heimavelli í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta í gærkvöldi. Fanndís kom inn á sem varamaður á 64. mínútu og skoraði sigurmarkið í uppbót- artíma. Valur er því enn með fjögurra stiga forskot á Breiðablik í spenn- andi toppbaráttu, þegar efstu liðin eiga fjóra leiki eftir. Breiðablik og Valur mætast í næstu umferð og fara Valskonur langt með að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri. „Undir lokin varð pressan mikil á Eyjakonum og þreytan mikil en þær hentu sér enn á alla bolta og fyrir öll skot. Í blálokin komst Clara Sigurðardóttir í frábært færi en Sandra Sigurðardóttir í marki Vals kom vel út á móti. Valskonur geystust í sókn og hver önnur en Fanndís skoraði sig- urmarkið,“ skrifaði Stefán Stef- ánsson m.a. um leikinn á mbl.is. Svöruðu eftir áfall í byrjun Breiðablik gerði góða ferð á Sauðárkrók og vann 3:1-sigur á Tindastóli eftir áfall strax í byrj- un. Jacqueline Altschuld kom Tindastóli yfir strax á 2. mínútu en Breiðablik svaraði með tveimur mörkum frá Karitas Tómasdóttur og einu frá Ástu Eir Árnadóttur og vann að lokum sanngjarnan sigur. Sigurinn var nauðsynlegur fyrir Breiðablik í eltingarleiknum við Val. Tindastóll er hins vegar kom- inn í fallsæti á nýjan leik. „Eftir þriðja mark Blikakvenna voru þær líklegri til að bæta við fleiri mörkum en sú varð ekki raunin. Lokatölur urðu því 3:1 fyr- ir Blikakonur sem reyndust vera númeri of stórar fyrir Króksarana sem gáfu þeim þó ágætan leik,“ skrifaði Sæþór Már Hinriksson m.a. um leikinn á mbl.is. Bryndís hetjan í botnslagnum Fylkir vann gífurlega mik- ilvægan 2:1-útisigur á Keflavík. Fyrir leik voru liðin í tveimur neðstu sætunum með níu stig hvort en ljóst var að sigurliðið færi úr fallsæti, svo lengi sem Tindastóll myndi ekki vinna óvæntan sigur á Breiðabliki. Tina Marolt kom Keflavík yfir á 15. mínútu en Fylkir svaraði með tveimur mörkum frá Bryndísi Örnu Níelsdóttur. „Sigurinn gefur Fylki byr undir báða vængi fyrir harðan fallslag sem fram undan er, en sigrarnir verða að vera fleiri. Tapið er áfall fyrir Keflavík sem hefur nú tapað sex leikjum í röð,“ skrifaði und- irritaður m.a. um leikinn á mbl.is. Skorað í byrjun og í lokin Þá skildu Stjarnan og Þór/KA jöfn, 1:1, í Garðabænum. Hildi- gunnur Ýr Benediktsdóttir kom Stjörnunni yfir snemma leiks en Karen María Sigurgeirsdóttir jafnaði fyrir Þór/KA á 89. mínútu. Stjarnan er áfram í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig og Þór/ KA er áfram í sjöunda sæti deild- arinnar með 15 stig. Sigurmark Fanndísar gulls ígildi Morgunblaðið/Árni Sæberg Hlíðarendi Hanna Kallmaier fyrirliði ÍBV og Ásdís Karen Halldórsdóttir. - Valskonur áfram með fjögurra stiga forskot - Fylkir vann botnslaginn Ljósmynd/Jóhann Helgi Sauðárkrókur Karíatas Tómasdóttir skoraði tvívegis í gær. Pepsi Max-deild kvenna Stjarnan – Þór/KA ................................... 1:1 Valur – ÍBV............................................... 1:0 Tindastóll – Breiðablik ............................ 1:3 Keflavík – Fylkir ...................................... 1:2 Staðan: Valur 14 11 2 1 39:15 35 Breiðablik 14 10 1 3 49:21 31 Stjarnan 13 6 2 5 16:18 20 Þróttur R. 12 5 3 4 26:23 18 Selfoss 13 5 3 5 18:17 18 ÍBV 13 5 1 7 20:28 16 Þór/KA 14 3 6 5 15:21 15 Fylkir 13 3 3 7 13:30 12 Tindastóll 13 3 2 8 10:21 11 Keflavík 13 2 3 8 11:23 9 Lengjudeild kvenna Grótta – Víkingur R. ................................ 0:3 Staða efstu liða: FH 13 9 2 2 34:11 29 KR 13 9 2 2 33:17 29 Afturelding 12 7 4 1 29:11 25 Víkingur R. 13 5 4 4 23:22 19 Lengjudeild karla Grindavík – Vestri .................................... 1:2 Afturelding – Þór ..................................... 2:0 Þróttur R. – Kórdrengir .......................... 0:3 Staðan: Fram 14 12 2 0 38:10 38 ÍBV 14 9 2 3 27:13 29 Kórdrengir 13 7 4 2 22:14 25 Vestri 15 8 1 6 25:28 25 Fjölnir 15 7 2 6 19:18 23 Grótta 15 6 2 7 30:29 20 Grindavík 15 5 5 5 27:30 20 Afturelding 14 5 4 5 29:26 19 Þór 15 5 4 6 29:26 19 Selfoss 15 3 3 9 22:34 12 Þróttur R. 15 3 1 11 25:36 10 Víkingur Ó. 12 0 2 10 15:44 2 2. deild karla Njarðvík – Kári......................................... 2:2 KF – Völsungur ........................................ 2:2 Haukar – Þróttur V.................................. 1:2 Rúmenía Mioveni – CFR Cluj.................................. 0:1 - Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik- mannahópi CFR Cluj. Pólland Lech Poznan – Cracovia ......................... 2:0 - Aron Jóhannsson var ekki í leikmanna- hópi Lech Poznan. Danmörk Midtjylland – Vejle .................................. 4:1 - Elías Rafn Ólafsson var ónotaður vara- maður hjá Midtjylland en Mikael Anderson var ekki í leikmannahópnum. Silkeborg – Viborg .................................. 4:1 - Stefán Teitur Þórðarson lék fyrstu 75 mínúturnar hjá Silkeborg. Bröndby – Kolding .................................. 5:1 - Barbára Sól Gísladóttir var ekki í leik- mannahópi Bröndby. B-deild: Horsens – Helsingör................................ 0:1 - Ágúst Eðvald Hlynsson var ónotaður varamaður hjá Horsens. >;(//24)3;( Ólympíuleikarnir Konur, undanúrslit: Frakkland – Svíþjóð............................. 29:27 Noregur – Rússland............................. 26:27 E(;R&:=/D Ólympíuleikarnir Konur, undanúrslit Bandaríkin – Serbía ............................. 79:59 Japan – Frakkland ................................87:71 >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsí Max deildin: Domusvöllurinn: Leiknir R. – Valur ......S17 Víkingsvöllur: Víkingur R.– KA .............S17 HS Orku völlur: Keflavík – Fylkir ....S19:15 Meistaravellir: KR – FH....................S19:15 Norðurálsvöllurinn: ÍA – HK ............S19:15 Lengjudeild karla: Ólafsvík: Víkingur – ÍBV ........................L14 Lengjudeild kvenna: Ásvellir: Haukar – Afturelding ..............L14 Kópavogsvöllur: Augnablik – HK ..........S15 2. deild karla: Eskjuvöllur: Fjarðabyggð – KV ............L14 BLUE-völlurinn: Reynir S – Leiknir F.L14 Hertz völlurinn: ÍR – Magni...................L14 FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Bikarkeppni Frjálsíþróttasambandsins fer fram í Kaplakrika í dag. Keppt verður í flokkum fullorðinna en einnig 15 ára og yngri. Keppni hjá fullorðnum hefst kl 13. GOLF Íslandsmótið í golfi heldur áfram á Jað- arsvelli á Akureyri um helgina og lýkur á morgun. Þriðji keppnisdagur er í dag og lokadagurinn á morgun. UM HELGINA!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.