Morgunblaðið - 07.08.2021, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.11-15
BRALETTAR
í miklu úrvali
og öllum stærðum
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
M
arkmiðið með þessu
átaksverkefni er að al-
menningur taki þátt í
að kolefnisbinda sig
með því að rækta gróður og planta
hjá sér. Við viljum reyna að auka
áhuga, þekkingu og þátttöku fólks
og sýna því fram á að allur gróður og
græn svæði binda
kolefni og allir
geta lagt sitt af
mörkum,“ segir
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir,
verkefnisstjóri
Þinn garður – þín
kolefnisbinding.
Félag garð-
plöntuframleið-
enda stendur að
átaksverkefninu
og á vefsíðu þess, gardplontur.is, er
að finna yfir tvö þúsund plöntur
ásamt fræðslu um ólíkar plöntu-
tegundir. Fræðsla um val á plöntum
og ræktun stendur til boða með
þjónustu sem veitt er við kaup á
plöntum í garðplöntustöðvum.
Gott að planta síðsumars
„Skilaboð okkar eru þau að
framlag hvers og eins skiptir máli
því allar plöntur sem almenningur
ræktar og plantar binda kolefni. Við
höfum undanfarið staðið fyrir leikj-
um á samfélagsmiðlum og hafa við-
tökur verið góðar, það er greinilegt
að almenningur hefur mikinn áhuga
á að hafa grænt og vænt í kringum
sig. Það er mjög jákvætt,“ segir Erla
Hjördís.
Sala á garðplöntum hefur verið
talsvert mikil í sumar, bæði norðan-
og sunnanlands, og virðist sem veð-
urfar hafi ekki endilega úrslitaáhrif í
þeim kaupum. Ástand í kjölfar
heimsfaraldurs spilar líka inn í að
sögn garðplöntusala. Fólk er meira
heima við, hefur fé á milli handanna
sem hefði ella verið eytt í útlöndum
og hefur líka nægan tíma til að gera
fallegt í kringum sig.
Katrín Ásgrímsdóttir, eigandi
Sólskóga á Akureyri, segir sumarið
norðan heiða hafa verið einstakt.
Sölutíð hafi byrjað seint, enda maí-
mánuður kaldur og frostnætur stóðu
yfir fram í miðjan júní.
„Salan í sumar hefur samt verið
mjög góð og ekki síðri en í fyrrasum-
ar. Fólk nýtur þess að vera heima
við og gera fínt í kringum sig,“ segir
hún.
Viðrar vel til garðvinnu
Helst megi finna fyrir sam-
drætti í sölu matjurta, en sala
sumarblóma, runna og fjölærra
blóma sé heldur á uppleið. „Fólk
hefur gaman af því að skoða úrvalið
og er óhrætt við að prófa eitthvað
nýtt,“ segir hún. Síðsumarssalan er
fram undan og segir Katrín að æ
fleiri átti sig á því hve góður tími það
sé til að planta í garðinn og sum-
arbústaðalöndin. Guðmundur Vern-
harðsson, eigandi gróðrarstöðv-
arinnar Markar í Fossvogsdal í
Reykjavík, segir að þótt veðrið
sunnan heiða framan af sumri hafi
ekki verið sérstakt sé salan ekki
síðri en var í fyrra. Íslendingar séu
flestir heima við, fari lítið til útlanda
og greinilegt að margir kjósi að eyða
dögunum í garðinum.
„Veðrið hefur ekki haft neikvæð
áhrif, salan hefur verið góð. Það hef-
ur í sjálfu sér viðrað ágætlega til úti-
vinnu í görðum, sólarlítið vissulega,
en ekki mikil rigning og rok.“
„Það hefur gengið vel hjá okkur
ef mið er tekið af tíðarfarinu. Aðeins
minni umferð almennings en sumar-
bústaðaeigendur og garðeigendur úr
nágrannabyggðum hafa verið dug-
legir að koma,“ segir Helga Ragna
Pálsdóttir, eigandi garðyrkjustöðv-
arinnar Kjarrs í Ölfusi. Hún segir
söluna hafa farið seinna af stað en
oft áður, enda vorið kalt.
„Plöntusalan tók vel við sér
þegar kom fram í júní og enn er tölu-
verð garðplöntusala. Það er greini-
lega verið að planta mikið í sum-
arbústaðalóðir, töluverð vinna er í
kringum nýbyggingar með tilheyr-
andi lóðavinnu og eins er fólk dug-
legt að vinna í heimagörðum,“ segir
Helga.
Þinn garður, þín kolefnisbinding
Garðplöntuframleið-
endur með átaksverkefni
í garðyrkju. Framlag
hvers og eins skiptir máli.
Allar plöntur binda kol-
efni. Mikil sala í sumar.
Fólk heima við og gerir
fínt í kringum sig.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Garðyrkja Katrín Ásgrímsdóttir, eigandi Sólskóga á Akureyri, segir sumarið norðan heiða hafa verið einstakt. Sölutíð hafi byrjað seint og vorið kalt.
Erla
Gunnarsdóttir
Kjarnorkusprengju var varpað á jap-
önsku borgina Nagasakí hinn 9.
ágúst árið 1945. Þremur dögum fyrr
hlutu íbúar Hírósíma sömu örlög.
Í 36 ár hefur samstarfshópur frið-
arhreyfinga staðið fyrir kertafleyt-
ingu á Reykjavíkurtjörn til að minn-
ast fórnarlambanna og til að leggja
áherslu á kröfuna um heim án kjarn-
orkuvopna, segir í fréttatilkynningu.
Safnast verður saman við suðvest-
urbakka Tjarnarinnar, við Skot-
húsveg, mánudagskvöldið 9. ágúst kl.
22:30. Flotkerti verða seld við Tjörn-
ina á 500 krónur.
Fundarstjóri verður Kolbeinn H.
Stefánsson félagsfræðingur og ávarp
flytur Ingibjörg Hjartardóttir rithöf-
undur.
Vegna smitvarnaráðstafana verður
einungis hleypt inn í tvö hólf á að-
gerðinni, sem hvort tekur að hámarki
200 manns. Rík áhersla verður lögð á
að þátttakendur gæti að fjarlægðar-
takmörkunum.
Kertafleyting fer einnig fram á Ak-
ureyri að venju undir merkjum sam-
starfshóps um frið. Hún hefst kl. 22
við Leirutjörn. Ávarp flytur Tryggvi
Hallgrímsson félagsfræðingur.
Kertafleyting á Tjörninni og við Leirutjörn á Akureyri
Minnast fórnarlamba spreng-
inga í Nagasakí og Hírósíma
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kertafleyting Athöfn verður í Reykjavík og á Akureyri á mánudagskvöld.