Morgunblaðið - 07.08.2021, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021
Vorum að fá í einkasölu fasteignina Egilsgötu 3 ( Domus Medica).
Um er að ræða u.m.þ.b 60% af heildareigninni. Skráð 2.540 fm ( brúttó).
Fasteignin er frábærlega staðsett í hjarta borgarinnar í nálægð við
miðborgina og helstu stofnbrautir. Stutt er á Háskólasvæðið og hinn
nýja Landsspítala. Gert er ráð fyrir afhendingu innan 6 mánaða eða
eftir nánara samkomulagi.
Fasteignin gæti hentað undir ýmiskonar starfsemi, svo sem heilbrigðis-
þjónustu, skrifstofur, hótel og jafnvel íbúðarhúsnæði. Þetta er þó háð
samþykki byggingaryfirvalda. Allur mögulegur byggingarréttur sem
fæst með eigninni hlutfallslega, fylgir með í sölunni.
Húsið er í góðu standi og hefur verið haldið vel við.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður
og sýnir eignina eftir samkomulagi:
Stefán Hrafn Stefánsson
lögm, lögg.fasteignasali.
Sími 895 2049 – stefan@storborg.is
TIL SÖLU
DOMUS MEDICA
HÚSIÐ
EGILSGATA 3
101 Reykjavík
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Veiðin í þremur laxveiðiánna er kom-
in yfir þúsund laxa markið, þar á með-
al í Rangánum báðum en veiðin er þó
mun dræmari í þeim systurám en á
sama tíma í fyrra, sérstaklega í þeirri
eystri. Á miðvikudagskvöldið var
höfðu svo 1.030 laxar veiðst í Norðurá
þar sem veiðin er mun betri en síð-
ustu sumur og fleiri ár á Vesturlandi
eru að lyfta sér upp úr niðursveiflu
síðustu ára, eins og Þverá-Kjarrá og
Laxá í Leirársveit.
Árnar í Húnavatnssýslu eru hins
vegar ekki að ná þeirri viðspyrnu sem
vonast hefur verið eftir. Veiðin í Víði-
dalsá er þó á ágætu róli, 351 lax veidd-
ur og síðasta vika gaf 92, en í Vatnsdal
er afar rólegt, bara 194 veiddir og 39 í
vikunni. Þá voru 100 komnir á land í
Hrútafjarðará á miðvikudag, eftir 29
laxa viku.
Einnig er rólegt í ám á norðaustur-
horninu. Í Selá höfðu á miðvikudag
veiðst 395, sem er talsvert minni veiði
en á sama tíma í fyrra, og veiddust 65
þar eystra í vikunni, en í Hofsá og
Sunnudalsá höfðu veiðst 283 eftir 62
laxa viku. Þá hefur heyrst að gang-
urinn sé hægur í Þistilfjarðaránum –
„það er lítið að gerast,“ sagði viðmæl-
andi sem veiddi í einni ánna þar á
dögunum. Á miðvikudag höfðu 136
veiðst á stangirnar þrjár í Svalbarðsá
og 109 á fjórar stangir í Hafralónsá.
Þrjár með meira en tvo á stöng
Það er vissulega athyglisvert að
horfa á heildarveiðitölur í bestu ám
landsins en sú tala sem segir þó meira
um það sem kalla má gæði veiðinnar í
hverri á er hversu margir laxar veið-
ast að meðaltali á stöng á dag. Og þar
breytist listinn talsvert. Á toppnum
trónir veiðin í Urriðafossi í Þjórsá þar
sem veiðimenn hafa að meðaltali
fengið 3,13 laxa á stöng á dag. Í öðru
sæti er Haffjarðará, með 2,18 laxa að
meðaltali á dagsstöngina. Í Miðfjarð-
ará er meðalveiðin 2,1 lax á dags-
stöng, Í Eystri-Rangá 1,92, í Laxá á
Ásum 1,84 laxar, í Selá 1,66 laxar, í
Laxá í Kjós 1,55 og í Laxá í Leirár-
sveit 1,52 laxar á stöng á dag.
Á þremur veiðisvæðum hafa því
veiðst að meðaltali yfir tveir laxar á
stöng í sumar. Á svæðinu við Urriða-
foss, sem er tiltölulega nýtt í stang-
veiðinni og býður upp á fjölbreytilegt
agn í jökulvatni, hafa veiðst yfir þrír á
dag, og í Haffjarðará og Miðfjarðará
þar sem árum saman hefur mátt
ganga að þessum gæðum vísum.
„Mikið af laxi í ánni“
Eins og sjá má þá hefur verið góður
gangur í Laxá í Leirársveit og veiði-
menn sem þar hafa verið hafa verið
lukkulegir. 62 laxar veiddust í Laxá í
síðustu viku en í vikunum þar á undan
100 og 122.
„Það er mikið af laxi í ánni og það
hefur líka gengið mikið af stórum sjó-
birtingi eins og verið hefur. Hann er
líka skemmtilegur flugufiskur,“ segir
Haukur Geir Garðarsson staðar-
haldari í Leirársveitinni.
„Þetta hefur verið mjög gott í sumar
og góð dreifing á veiðinni,“ bætir hann
við og að vatnsstaðan hafi verið nokk-
uð góð í sumar, sem hefur líka hjálpað.
Eftir lélegar smálaxagöngur í fyrra
gekk lítið af tveggja ára laxi í ár
landsins nú og Haukur Geir segir það
einnig hafa verið svo í Laxá. „Þetta er
meira eins árs lax og það var áberandi
framan af hvað hann var vel haldinn,
mikið 64 til 68 cm, og hængar áber-
andi. Flottur fiskur.“
Haukur Geir segir að í gegnum ár-
in hafi virst sem Laxárnar í Leirár-
sveit og í Kjós séu nokkuð samstiga í
upp- og niðursveiflum og skeri sig
líka nokkuð hvað það varðar frá ánum
í Borgarfirði. Og á miðvikudaginn var
voru veiðitölur í þessum ám nánast
þær sömu.
Veiðin er oft mjög góð í Leirársveit
seinnipart sumars og á haustin. „Við
eigum því talsvert inni,“ segir hann
og væntir þess að ná að minnsta kosti
meðalveiði í sumar, um eitt þúsund
löxum.
„Við eigum því talsvert inni“
- Besta laxveiðin að meðaltali á stöng er við Urriðafoss og í Haffjarðará og Miðfjarðará - Upp-
sveifla í ánum á Vesturlandi en dræmari veiði á norðausturhorni - „Mjög gott“ í Laxá í Leirársveit
Lukkulegur Nicolas Hill-Norton hampar 104 cm löngum hæng sem hann
landaði eftir 40 mínútna baráttu í hnum gjöfula veiðistað Gretti í Haffjarð-
ará, með aðstoð Þóris Halldórssonar. Laxinn tók Frances-míkrókón.
Aflahæstu árnar Staðan 4. ágúst 2021
Heimild: www.angling.is
*Tölur liggja ekki fyrir 0 250 500 750 1.000 1.500
Veiðistaður
Stanga-
fjöldi Veiði
5. ágúst
2020
7. ágúst
2019
Eystri-Rangá 18 1.492 3.981 1.823
Ytri-Rangá&Hólsá,vesturbakki 20 1.059 1.385 707
Norðurá 15 1.030 705 241
Þverá + Kjarrá 14 883 617 470
Miðfjarðará 10 819 920 767
Urriðafoss í Þjórsá 4 790 874 705
Haffjarðará 6 588 669 348
Langá 12 494 494 235
Laxá í Kjós 6 475 431 103
Laxá í Leirársveit 6 470 269 *
Selá í Vopnafirði 6 395 620 794
Elliðaárnar 8 376 325 390
Blanda 8 371 410 541
Laxá á Ásum 4 361 363 358
Víðidalsá 8 351 292 *