Morgunblaðið - 07.08.2021, Síða 16
16 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021
WWW.ASWEGROW.IS
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
7. ágúst 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.91
Sterlingspund 173.97
Kanadadalur 99.9
Dönsk króna 19.902
Norsk króna 14.176
Sænsk króna 14.514
Svissn. franki 137.9
Japanskt jen 1.1403
SDR 178.19
Evra 148.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.4461
« Flugfélagið Ice-
landair flutti tæp-
lega 200 þúsund
farþega til og frá
landinu í júlí sam-
kvæmt frétta-
tilkynningu sem
fyrirtækið sendi
frá sér í gær. Þeg-
ar horft er bæði
til alþjóðaflugsins
og innanlands-
flugsins flutti félagið samtals um 220
þúsund farþega á tímabilinu.
Farþegafjöldinn í alþjóðafluginu er
umtalsvert meiri en á sama tíma á
síðasta ári en þá flutti félagið rúm-
lega 73 þúsund farþega. Í júní síðast-
liðnum var farþegafjöldinn 72 þús-
und.
Sé rýnt nánar í tölurnar má sjá að
félagið flutti 117 þúsund farþega til
Íslands í júlí sl. en rúmlega 58 þús-
und á sama tíma í fyrra. Farþegar frá
Íslandi voru tæplega 28 þúsund í júlí
en rúmlega 13 þúsund í júlí í fyrra.
Farþegar sem flugu í gegnum Ís-
land á leið til annarra landa voru um
51 þúsund, sem er mesti fjöldi slíkra
farþega síðan í febrúar á síðasta ári.
Þegar horft er nánar á innanlands-
flugið þá voru farþegar þar rúmlega
24 þúsund í júlí síðastliðnum. Það er
aukning um tvö þúsund farþega frá
mánuðinum á undan og aukning um
tæplega tíu þúsund farþega frá júl-
ímánuði í fyrra.
200 þúsund flugu
með Icelandair í júlí
Flug Mikil aukning
varð í júlí.
STUTT
BAKSVIÐ
Baldur S. Blöndal
baldurb@mbl.is
Heildarkostnaður við uppsetningu
og kaup á þriggja fasa 22 kw hleðslu-
stöð á Íslandi með hleðslukapli er á
bilinu 250.000 til 300.000. Þar er mið-
að við eina hleðslustöð í sérbýli. Af
því hleypur uppsetningarkostnaður-
inn á bilinu 75.000 til 150.000 krónur.
Hér er miðað við snjallstöðvar sem
er hægt að stjórna með þar til gerðu
snjallforriti í farsímum.
Aflmestu heimahleðslustöðvar
sem bjóðast neytendum í dag eru 22
kw/h og það mætti segja að þær séu
framtíðartrygging fyrir nægri
hleðslu, sé ætlunin að ferðast langar
vegalengdir á hreinum rafbíl ef stóla
þarf á hleðslu yfir nótt við heimili.
Aflmesti kosturinn í dag
Orka náttúrunnar, dótturfyrir-
tæki OR, býður sérbýlum upp á þann
kost að vera með hleðslustöð í áskrift
hjá félaginu. Áskriftargjaldið er
2.990 krónur á mánuði en innifalið í
því er leiga á hleðslustöð og þjónusta
ON en enginn kapall. Þá fá viðskipta-
vinir ON 10% aflsátt á raforkuverði
heimilisins.
Uppsetning stöðvarinnar er ekki
innifalin í gjaldinu en ON áætlar að
hún sé á bilinu 75.000 til 150.000 eftir
aðstæðum hverju sinni. Fimm metra
kapall kostar á bilinu 20 til 30 þúsund
krónur sem bætist við kostnað not-
enda sem velja þjónustuna hjá ON.
Fjögur ár að borga sig
Neytendur standa því frammi fyr-
ir þeim kosti að kaupa hleðslustöð
eða leigja hana af ON gegn mánaðar-
gjaldi. Flestar 22 kw/h hleðslustöðv-
ar kosta á bilinu 120 þúsund til 170
þúsund. Það tekur því 4 til 5 ár fyrir
hleðslustöðina að borga sig upp mið-
að við 2.990 krónur greiddar til ON
að ótöldum þeim afslætti og fríðind-
um sem fylgir þeirri áskrift. Flestar
hleðslustöðvar eiga að endast 10 ár
hið minnsta og hleðslustöðvarnar
sem N1 selur eru með 5 ára ábyrgð
gegn verksmiðjugalla svo dæmi sé
tekið.
N1 er í eigu Festis sem á auk þess
Íslenska orkumiðlun sem sinnir raf-
orkusölu í smásölu. Viðskiptavinir
N1 fá þó engan afslátt á rafmagni
eins og ON býður sínum notendum.
Sigurður Ástgeirsson eigandi Ís-
orku segir það ekki hlutverk hleðslu-
stöðvasala að selja rafmagn: „Við
skiptum okkur ekki af raforkusölu-
markaði. Við viljum meina að rekst-
ur hleðslustöðva og sala á rafmagni í
gegnum hleðslustöðvar sé ekki hluti
af raforkusölumarkaði. Við viljum
meina að svo sé þótt ekki séu allir
sammála okkur. Sem dæmi þarftu
ekki raforkusöluleyfi til þess að að
setja upp hleðslustöð og selja raf-
magn til viðskiptavina.“
Kaupendur leita hleðslustöðva
Bjarni Gnýr Hjarðar, sérfræðing-
ur hjá Eignaumsjón, heldur því fram
að bílahleðlustöðvar séu gulls í gildi
fyrir fasteignir og segir þær skila sér
margfalt til baka í fasteignaverði.
Margar leitarvélar fasteignavefja
eru nú með haka sem síar út eignir
án hleðslustöðva fyrir kaupendur
sem gera þessa kröfu.
Rafbílaeigendur geta
keypt eða leigt sér stöðvar
22 KW, 32 ampera snjallstöðvar
með 5 m kapli
Stöð og snúra og
uppsetning*
Hleðslan 169.900 kr. 299.900 kr
N1 145.900 kr.** 245.900 kr.
ON 2.900 kr. á mánuði 75.000-150.000 kr.
Ísorka 159.900 kr. 284.900 kr.
*Viðmiðunarverð,
getur verið hærra ef
aðstæður eru erfiðar
Kunnuglegir kostir
» Rafbílaeigendur geta keypt
sér hleðslustöð fyrir á þriðja
hundrað þúsund krónur og
þannig sennilega aukið verð-
gildi fasteignarinnar.
» ON býður upp á leigu sem
inniheldur afnot af stöð og
þjónustu í appi og afslátt af
rafmagni heimilisins.
» Aðilar á markaði segja
spurnarvert að raforkusölufyr-
irtækin séu komin inn á
hleðslustöðvamarkaðinn.
- Raforku- og hleðslustöðvarsölur bjóða rafbíleigendum margvíslegar ívilnanir
Morgunblaðið/Baldur
Orkugjafi N1 og ON bjóða notendum upp á Zaptec-hleðslustöðvar.
Hvorki Reykjavíkurborg né Orka
náttúrunnar vilja gefa upp til hvaða
ráða þau hyggjast grípa eftir að
kærunefnd útboðsmála hafnaði
beiðnum um frestun réttaráhrifa og
endurupptöku máls Ísorku gegn
Reykjavíkurborg um útboð hleðslu-
stöðva í borginni. Borgin taldi sér
ekki skylt að bjóða verkið út, enda
væri samningurinn undir viðmiðun-
arfjárhæðum kærunefndar útboðs-
mála.
Reykjavíkurborg hélt því fram að
sérstakar ástæður réttlættu einnig
beiðni um frestun réttaráhrifa yrði
tekin til greina. Skyldan um upp-
setningu stöðvanna væri nánast að
öllu leyti uppfyllt og því væri þessi
niðurstaða verulega íþyngjandi,
bæði fyrir samningsaðilana ON og
Reykjavíkurborg, en sér í lagi raf-
bílaeigendur sem treysti á þjónustu
stöðvanna.
Ákvörðun kærunefndar var kunn-
gjörð borginni og ON fyrir viku en
var ekki birt á vefsíðu hennar.
ON harmar niðurstöðuna í skrif-
legri yfirlýsingu: „Í góðri trú og höf-
um að fullu staðið við okkar samn-
inga.Varðandi það að kærunefndin
hafni kröfu okkar um endurupptöku
á málinu er eitthvað sem við erum að
skoða með okkar lögmanni og ótíma-
bært að tjá sig um næstu skref hvað
það varðar.“
Reykjavíkurborg segist nú skoða
næstu skref en ekkert er vitað um
hver þau verði að svo stöddu.
Ef annað útboð verður fram-
kvæmt gæti það tekið rúmt hálft ár
samkvæmt Guðmundi B. Friðriks-
syni, skrifstofustjóra umhverfis-
gæða hjá Reykjavíkurborg.
Morgunblaðið/Hari
Vonbrigði Ætlunin var að tryggja
lóðarlausum hleðslumöguleika.
Reykjavíkurborg
og ON undir feldi
- ON segir lokun
hleðslustöðva stein
í götu orkuskipta