Morgunblaðið - 07.08.2021, Page 17

Morgunblaðið - 07.08.2021, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021 . up.is Úrval útiljósa Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Fyrsta héraðshöfuðborg Afganistan hefur fallið í hendur talíbana. Um er að ræða verslunarborgina Zaranj í Nimroz-héraði sem er nærri landa- mærum Afganistan við Íran. Yfirráð talíbana í borginni er þungt högg fyrir ríkisstjórn landsins. Einn af talsmönnum talíbana sagði á Twit- ter að sigurinn á Zaranj væri upp- hafið, nú myndu önnur héruð falla fljótlega í hendur þeirra. Frá því í maí hafa talíbanar sótt í sig veðrið í Afganistan á sama tíma og herlið Bandaríkjanna og annarra ríkja undirbúa brottför úr landinu. Stefnt er á að allir hermenn verði farnir í þessum mánuði. Mikil átök hafa verið í landinu og áætla Sameinuðu þjóðirnar að um 1.600 almennir borgarar hafi látið lífið vegna átakanna frá byrjun árs. Þá óttast stjórnvöld að talíbanar muni sigra fleiri héraðshöfuðborgir, svo sem Herat í vestri og Lashkar Gah í suðri. Myrða embættismenn Í gær myrtu talíbanar yfirmann upplýsingamála ríkisstjórnarinnar, Dwa Khan Menapal, en hann var skotinn til bana í Kabúl, höfuðborg landsins. Talíbanarnir sögðu morðið vera „refsingu fyrir gjörðir hans“. Á þriðjudag slapp Bismillah Mo- hammadi varnarmálaráðherra naumlega undan tilræði þar sem árásarmenn beittu sprengju og byssum á hann í Kabúl. Var það fyrsta árásin sem hefur átt sér stað í höfuðborginni í marga mánuði. Talíbanar segjast munu halda áfram árásum sínum á stjórnarher- inn og fulltrúa stjórnvalda en þeir ráða nú yfir meira landsvæði en þeir hafa gert síðan árið 2001. Talíbanar auka umsvif sín - Fyrsta héraðshöfuðborg Afganistan hefur fallið í hendur talíbana - Þungt högg fyrir ríkisstjórn landsins - Myrtu yfirmann upplýsingamála ríkisstjórnarinnar AFP Eyðilegging Mikil átök geisa á milli talíbana og stjórnarhersins. Bandaríska fréttastofan CNN hefur rekið þrjá starfsmenn fyrirtækisins fyrir að vera óbólusettir gegn Cov- id-19. Jeff Zucker, forstjóri CNN, greindi frá þessu í minnisblaði til starfsmanna. Þar segir að bólusetn- ing sé skylda fyrir alla starfsmenn, hvort sem þeir vinni úti á vettvangi eða innan veggja fyrirtækisins. „Svo ég tali alveg skýrt: við leyf- um engar undantekningar frá þess- ari reglu,“ skrifar Zucker. Í Banda- ríkjunum er löglegt að fyrirtæki krefjist bólusetningar starfsmanna. Meðal fyrirtækja sem hafa þessa stefnu eru Google og Facebook. Sagt upp fyrir að vera óbólusettir BANDARÍKIN AFP Bólusetning Fréttastofan CNN rak þrjá óbólusetta starfsmenn. Leikfangaframleiðandinn Mattel hefur látið hanna barbídúkku eftir breska prófessornum Söruh Gil- bert, sem átti þátt í þróun bóluefn- isins AstraZeneca. Dúkkan er hluti af herferð Mattel sem nefnist „fyr- irmyndir“. Gilbert er prófessor við Oxfordháskóla og segir það und- arlega tilfinningu að dúkkan sé af henni. Hún segist vona að dúkkan hvetji ungar stelpur til starfsframa í vísindum. Dúkka í líki bólu- efnaframleiðanda Dúkka Gilbert og barbídúkkan. BRETLAND Tveir hvítrússneskir þjálfarar hafa verið sviptir leyfum sínum til að þjálfa á Ólympíuleikunum í Tókýó vegna tilraunar til að þvinga frjáls- íþróttakonuna Krystinu Tim- anovskayu til að yfirgefa leikana. Al- þjóðaólympíunefndin staðfesti í gær að Artur Shimak og Yury Maisevich hafi yfirgefið ólympíuþorpið og að rannsókn á málinu standi yfir. Mál Timanovskayu vakti mikla at- hygli fyrr í vikunni eftir að hún neit- aði að fljúga heim til Hvíta-Rúss- lands samkvæmt fyrirskipunum þjálfara sinna og óskaði eftir aðstoð lögreglunnar. Hún sagðist óttast um öryggi sitt ef hún sneri aftur til Hvíta-Rússlands en hún er á meðal tvö þúsund hvítrússneskra íþrótta- manna sem undirrituðu opið bréf þar sem kallað er eftir nýjum kosningum í Hvíta-Rússlandi og frelsun póli- tískra fanga í landinu. Þá gagnrýndi hún þjálfara sína á Instagram fyrir að skrá hana í hlaup á Ólympíuleik- unum að henni forspurðri. Þjálfar- arnir gáfu hins vegar þá skýringu að Timanovskaya hafi verið dregin úr keppni að læknisráði vegna „tilfinn- ingalegs og sálræns ástands“ henn- ar. Timanovskaya er nú stödd í Pól- landi þar sem hún hefur fengið landvistarleyfi af mannúðaraðstæð- um. Fá tækifæri til að andmæla Í tilkynningu frá Alþjóðaólympíu- nefndinni segir að þjálfararnir hafa tækifæri til að andmæla aðgerðun- um en að nefndinni ynni í þágu hags- muna keppenda. Ólympíusamband Hvíta-Rússlands gaf frá sér tilkynn- ingu þar sem óskað er eftir nánari útskýringu frá Alþjóðaólympíusam- bandinu á ákvörðuninni og heitið því að hvítrússneska liðið yrði varið gegn hvers konar mismunun. Þá segir að þjálfararnir séu á leið heim. Þjálfararnir sviptir leyfum - Rannsókn á málinu stendur nú yfir AFP Vernd Krystina Timanovskaya fékk landvistarleyfi í Póllandi. Margir stórir skógareldar brenna enn í Vest- urríkjum Bandaríkjanna og hafa tugir þúsunda þurft að yfirgefa heimili sín vegna þeirra. Einn af stærri gróðureldunum kallast Dixie-eldurinn sem brennur í Kaliforníu-ríki. Hann hefur meðal annars lagt sögufræga þorpið Greenville í rjúk- andi rúst eins og sjá má á myndinni. Smábærinn átti blómaskeið sitt í gullæðinu mikla á seinni hluta 19. aldar. AFP Sögufrægt þorp brunnið til kaldra kola

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.