Morgunblaðið - 07.08.2021, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021
Náttúruskoðun Grasagarðurinn í Laugardal geymir fjölda blóma og plantna sem gaman er að skoða. Hér eru flottir feðgar á ferð og synirnir ungu forvitnir að sjá.
Árni Sæberg
Fyrirsögnin hér að
ofan er óbein þýðing
á aðvörunarorðum
C.S. Lewis um „vel-
viljað alræði“. Önnur
ummæli sem urðu
mér hvatning til að
setja þessar línur á
blað féllu fyrir stuttu
í fésbókarhópnum
Heildarmyndinni. Þau
voru sett fram af
manni sem kvaðst vera hræddari
við aðgerðir stjórnvalda gagnvart
kórónuveirunni en veiruna sjálfa.
Þessar tvær setningar hafa ásótt
mig síðustu daga, því mér finnst
sérstakt til þess að hugsa að veira
sem 99,9% Íslendinga undir sjö-
tugu lifa af – og veldur nú engum
eða vægum einkennum hjá 97%
smitaðra – skuli verið búin að um-
turna öllu daglegu lífi okkar, ekki
aðeins hérlendis, heldur víðs veg-
ar um heim. Í þessu ljósi má velta
því fyrir sér hvort veiran sé í raun
stærsta vandamálið eða hvort
vandinn liggi mögulega annars
staðar, t.d. í undirmönnun í heil-
brigðiskerfinu eða að forvörnum
sé ábótavant. Þótt grímur komi að
litlu ef nokkru gagni við út-
breiðslu kórónuveirunnar hafa
þær verið gerðar að hluta daglegs
lífs og að skilyrði fyrir aðgengi að
verslunum, veitingastöðum o.fl.
Gagnsemi þeirra er hugsanlega
mest fyrir þá sem vilja deila og
drottna, því grímurnar eru stöðug
áminning um það að
við séum heilsufar-
sógn hvert við annað.
Tækniveldi í stað
lýðveldis?
Þetta ástand grefur
undan trausti í sam-
félagi okkar. Í sögu-
legu samhengi er slík
þróun fyrsta skrefið í
átt til eyðileggingar
lýðræðislegra stjórn-
mála. Frammi fyrir
þessu er þörf á því að
við höfum allan vara á, því á sama
tíma og lýðræðinu hnignar rís upp
tækniveldi, þ.e. stjórnarfyr-
irkomulag þar sem sérfræðingar
og vísindamenn fara með völd.
Eitt meginmarkmið tækniveldisins
er að halda völdum. Pólitísk
stefnumörkun er ekki tæknilegt
viðfangsefni. Sérfræðingar og vís-
indamenn byggja á þröngu sér-
sviði fremur en heildarmynd. Svið
náttúruvísinda og siðfræði skarast
svo sjaldan að hætt er við að síð-
arnefnda sviðið verði út undan við
„vísindalega ákvarðanatöku“, sbr.
þau ummæli Werners von Braun
að hann velti ekki fyrir sér hvar
kjarnorkusprengjurnar lentu:
„That’s not my department.“ Sið-
menntað samfélag stýrir því
hvernig tækni og vísindum er
beitt. Sagan sýnir að þegar þessu
er snúið við, þ.e. þegar tækni og
vísindi eru farin að stýra sam-
félaginu, stendur vá fyrir dyrum.
Vísindi og tækni eru ekki eitt og
hið sama: Náttúruvísindin beita
sínum aðferðum við rannsóknir og
skila af sér þekkingu. Þegar menn
nýta sér þá þekkingu verður til
tækni. Menn mega ekki fara að
trúa á tæknina og tilbiðja hana.
Túlkun þekkingar er stundum
álitamál og á þeim grunni geta
menn verið ósammála um hvaða
leið beri að fara. Vísindin tala
samkvæmt þessu ekki einni röddu
og hægt er að velja fleiri en eina
leið á grundvelli vísindalegrar
kenningar. Það er því blekking að
vísindaleg ákvarðanataka standi
utan eða ofan við pólitík. Hér sem
annars staðar þarf að skilgreina
markmið og velja leið til að ná því
marki. Þar koma stjórnmál óhjá-
kvæmilega til skjalanna, þ.e. við
að skilgreina ætlunarverk og leiðir
að þeim markmiðum. Við getum
gert margt á grundvelli vísinda
sem við þó veljum að gera ekki,
t.d. að skera á taugabrautir í heila
geðsjúkra, stunda kynbætur á
mönnum, beita efnavopnum,
o.s.frv. Meðan við viljum kenna
stjórnmálin við lýðræði leyfist
okkur ekki að afhenda tækni-
mönnum félagslega og pólitíska
stefnumörkun. Samt stöndum við
nú frammi fyrir því að tæknimenn
hafa fengið allt of mikil völd. Í
reynd er verið að fela þeim að
stjórna samfélaginu. Þar sem þeir
hafa þó takmarkaðar forsendur til
að takast á við það verkefni hafa
þeir ákveðið að fara auðveldu leið-
ina, þ.e. að stjórna einstaklings-
bundinni hegðun með fyrirmælum
sem seilast sífellt lengra inn í
einkalíf fólks og þurrka þannig út
hefðbundin mörk hins opinbera og
hins persónubundna. Við slíkar að-
stæður er hætt við að borgaralegt
frelsi verði ofríki að bráð.
Harðræði í stað lýðræðis?
Þótt þessir stjórnarhættir feli í
sér ógn við frjálslynt lýðræði fer
sú ógn furðulega dult, því auðvelt
er að láta blekkjast af yfirlýs-
ingum um að þetta sé allt gert í
nafni „umhyggju“, „framþróunar“,
„lýðheilsu“, „lýðræðis“ eða jafnvel
„frjálslyndis“. Í því samhengi má
minna á að framþróun og íhald
eru ekki ósamrýmanleg sjónarmið.
Einhvers konar jafnvægi er sjálf-
sagt farsælast þar sem annars
staðar, þ.e. framþróun á grunni
nýjustu þekkingar án þess að
fórna hinu góða, sanna og fagra.
Hlutverk okkar er að verja mann-
lega reisn og frelsi mannsins. Í
því felst m.a. að við eigum ekki að
láta efnið drottna yfir andanum.
Hinn kaldi veruleiki er sá að
stjórnarfarið hefur þokast, í
smáum skrefum, frá klassísku
frjálslyndi í átt til gervifrjáls-
lyndis í anda áðurnefndrar aðvör-
unar C.S. Lewis, þar sem sérvald-
ir handhafar sannleikans telja sig
á grundvelli góðvilja, menntunar
og vísinda geta þvingað almenning
til undirgefni og undanbragða-
lausrar hlýðni. Fyrirmyndarríkið
(útópían) mun þá rísa þegar menn
hætta að hugsa sjálfstætt, afsala
sér eigin vilja og hætta að efast.
Forsenda þess að hið „fullkomna
samfélag“ verði til er þá að menn
sýni algjöra samstöðu, gangi í takt
við opinber fyrirmæli og hlýði.
Til lesandans
Er það draumur þinn, lesandi
góður, að láta aðra hafa vit fyrir
þér frá vöggu til grafar? Eða viltu
fá að lifa sjálfstætt, á þínum for-
sendum, og læra með því að prófa
þig áfram – og gera mistök?
Klassískt frjálslyndi, öfugt við
gervifrjálslyndi, grundvallast á
þeirri reynslu kynslóðanna að
skynsemi sérhvers manns eru tak-
mörk sett. Meðan við erum minn-
ug þess að við höfum ekki höndlað
hinn endanlega sannleika verðum
við, hvort sem okkur líkar betur
eða verr, að forðast hroka og sýna
frekar auðmýkt gagnvart eigin
takmörkunum og umburðarlyndi
gagnvart takmörkunum sam-
ferðafólks okkar í sannleiksleit-
inni.
Eftir Arnar Þór
Jónsson »Er það draumur
þinn, lesandi góður,
að láta aðra hafa vit fyr-
ir þér frá vöggu til graf-
ar? Eða viltu fá að lifa
sjálfstætt, á þínum for-
sendum, og læra með
því að prófa þig áfram –
og gera mistök?
Arnar Þór Jónsson
Höfundur skipar 5. sætið á framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvest-
urkjördæmi.
Þungbærasta tegund ofríkis er mögulega
sú sem beitir fyrir sig umhyggju