Morgunblaðið - 07.08.2021, Blaðsíða 28
Okkar elskulegi
BÖRKUR GUNNARSSON
efnafræðingur,
Vesturgötu 73, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 11. ágúst klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni á slóðinni
https://www.youtube.com/watch?v=HmohLaLKNuk
María Jónsdóttir
Johanna Stumm
Gunnar Freyr Barkarson
Freyja Barkardóttir
Steinar Gunnarsson
Styrmir Gunnarsson
fjölskyldur og vinir
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021
✝
Bryndís Gunn-
arsdóttir
fæddist á Tjörnum
í Eyjafjarðarsveit
28. október 1934.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skjóli 19. júlí
2021.
Bryndís var
dóttir hjónanna
Rósu Halldórs-
dóttur, f. 18. ágúst
1905, d. 4. desember 1990, og
Gunnars Valgeirs Jónssonar, f.
8. júlí 1905, d. 26. desember
1972.
Systkini hennar: Jón Lúðvík,
f. 12. maí 1927, d. 17. ágúst
2005, Erna, f. 6. mars 1930, d.
20. ágúst 2011, Hreinn, f. 29.
febrúar 1932, d. 27. desember
1994, Halldóra Jónína, f. 8.
desember 1938, Drífa, f. 25.
febrúar 1942, d. 30. desember
2004, Hrafnkell Ingvar, f. 5.
desember 1943, d. 6. júní 1951,
Hörður, f. 15. september 1945,
d. 21. janúar 2019, Ármann, f.
3. janúar 1949, Skúli, f. 17.
febrúar 1952, d. 26. mars
1977.
Bryndís giftist hinn 15. nóv-
ember 1959 eiginmanni sínum,
Rúti Eyjólfssyni
frá Hrútafelli í
Rangárvallasýslu,
f. 10. mars 1932.
Einkadóttir þeirra
er Rósa, f. 7.
ágúst 1961. Unn-
usti Rósu er Ólaf-
ur Nilsson, f. 16.
júní 1958. Rútur
lést 20. apríl 2000.
Bryndís fór ung
að heiman, ýmist í
vistir eða kaupavinnu. Stund-
aði ýmis störf, vann á Hótel
Kea, Arnarholti, mat-
sölustaðnum Laugavegi 28,
Dimmalimm, Hólum í Hjalta-
dal, fór á vertíð í Eyjum en
lengstan starfsaldur átti hún
hjá heildverslun Halldórs
Jónssonar ehf. eða 30 ár.
Bryndís elskaði að dansa og
syngja og fór oft í Stangarhyl.
Var líka í Korpúlfum í Graf-
arvogi. Hún var í gönguhópi
og spilaði vist í Grafarvogs-
kirkju. Bryndís var nátt-
úruunnandi og hafði gaman af
að ferðast. Hún var mikill
dýravinur og átti bæði hund
og hest.
Útför hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Nú er Dísa blessunin farin í
sumarlandið sögðu skilaboðin
sem komu frá systur minni til að
láta mig vita að eftir löng veikindi
væri Dísa okkar látin. Það eru
ótalmargar minningar sem koma
upp í hugann þegar að kveðju-
stund er komið. Dísa var einstak-
lega lífsglöð og skemmtileg kona,
hún var mikið fyrir tónlist og
fannst gaman að dansa og ófáar
minningar sem hún og mamma
rifjuðu upp frá böllunum sem þær
sóttu alloft á sínum yngri árum.
Dansinn hélt áfram að vera mikill
gleðigjafi fyrir Dísu langt fram á
efri ár.
Dísa var með eindæmum gest-
risin og félagslynd og mikið fyrir
að hafa fólk í kringum sig. Hún
var mikil fjölskyldukona og jóla-
boð hjá Dísu frænku voru ófá og
fastur punktur í tilverunni. Þar
var boðið upp á hnallþórur og
annað kaffimeðlæti sem stóðst fá-
an samanburð.
Dísa var ótrúlega lagin við að
finna tækifæri til að hressa upp á
hversdagsleikann og mér er
sterkt í minni hvernig hún hélt
upp á sumardaginn fyrsta. Frí-
dagur í skólanum þýddi að ég gisti
oft aðfaranótt þessa dags á heimili
Dísu, Rúts og Rósu og fékk að
njóta hvernig sumrinu var fagnað
með sumargjöfum, tónlist og gleði
þeirra sem kunna að njóta litlu
hlutanna í lífinu. Þannig var Dísa,
bjartsýn og kraftmikil og lét aldr-
ei neitt slá sig út af laginu. Hún
kunni að skemmta sér og öðrum
og lita tilveruna með uppákomum
og jákvæðu hugarfari.
Dísa var sómakona og verður
sárt saknað en minningin um
þessa lífglöðu og fallegu konu lifir.
Hún dvelur nú í sumarlandinu og
finnur án efa leiðir til að skemmta
sér og öðrum.
Elsku Rósa, ég sendi mínar
innilegustu samúðarkveðjur, við
systkinin munum alltaf minnast
Dísu okkar með hlýju í hjarta.
Erna Haraldsdóttir.
Bryndís
Gunnarsdóttir
Í dag kveð ég
yndislegasta og
besta mann sem ég
hef kynnst.
Elsku afi, þrátt fyrir mikla sorg
gleðst ég yfir því að þú sért loksins
kominn til ömmu aftur og hafir
Hannes Guðni
Jónsson
✝
Hannes Guðni
Jónsson fædd-
ist 4. september
1927. Hann lést 24.
júlí 2021.
Útför Hannesar
fór fram 3. ágúst
2021.
sameinast fjölskyldu
og vinum á ný.
Minningabanki
minn er fullur af dýr-
mætum minningum
um góðu stundirnar
okkar saman sem ég
er svo þakklát fyrir.
Þú varst klettur-
inn í lífi mínu og skil-
ur eftir þig risastórt
skarð.
Hvíl í friði elsku
besti afi minn.
Þín
Ragnheiður.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
MARGRÉTAR S. EINARSDÓTTUR,
Heiðarvegi 12, Reyðarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Hulduhlíðar á Eskifirði fyrir hlýhug og góða umönnun.
Sigurbjörn Marinósson Sigríður St. Ólafsdóttir
Marinó Már Marinósson
Guðný S. Marinósdóttir Haraldur Kr. Haraldsson
Gauti Arnar Marinósson Hulda Sverrisdóttir
Ólafía K. Kristjánsdóttir
Sigurður Benjamínsson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn
Ástkær móðir og tengdamóðir,
BRYNDÍS GUNNARSDÓTTIR,
Logafold 21,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
mánudaginn 19. júlí. Útför hefur farið fram
í kyrrþey. Alúðarþakkir færum við starfsfólki
Landspítala Fossvogi, bráðadeild, A2 og öldrunarlækningadeild
Skjóli, 4. hæð, fyrir yndislega framkomu og góða umönnun.
Útfararstofu Frímanns og Hálfdáns, sr. Örnu Ýri og Kötlu í
Grafarvogskirkju eru færðar sérstakar þakkir.
Guð blessi ykkur öll.
Rósa Rútsdóttir Ólafur Nilsson
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GUÐMUNDÍNA MARGRÉT
HERMANNSDÓTTIR,
Engjavöllum 10, Hafnarfirði,
varð bráðkvödd á heimili sínu 27. júlí.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn
11. ágúst klukkan 13.
Jón Benedikt Einarsson
Ósk Jónsdóttir Róbert Magnússon
Einar Kristján Jónsson
Margrét Guðrún Jónsdóttir Magnús B. Þórðarson
Hermann Valdimar Jónsson Inga Theódóra Sigurðardóttir
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
MAGNÚS GUÐMUNDSSON
frá Djúpavík,
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 26. júlí.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 9. ágúst klukkan 13.
Jóhanna Sigríður Ragnarsdóttir
Ester Lára Magnúsdóttir
Ragnar Ólafur Magnússon Edna Sólrún Falkvard Birgisd.
Jóhann Skagfjörð Magnúss. Vigdís Sigurlínudóttir
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
PHILIPPE RICART,
handverks- og listamaður,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
í Reykjavík þriðjudaginn 10. ágúst
klukkan 15. Vegna aðstæðna í samfélaginu munu aðeins
nánustu ættingjar og vinir verða viðstaddir útförina en þeim sem
vilja minnast Philippe er bent á styrktarsjóð hjartadeildar 14EG á
Landspítalanum.
Jóhanna Hálfdánsdóttir
Martha Ricart Andri Júlíusson
Finnur, Alda og Elmar
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar mannsins
míns, pabba okkar, tengdapabba og afa,
GUÐJÓNS HEIÐARS
GUNNBJÖRNSSONAR
húsasmíðameistara,
Hólahjalla 2, Kópavogi.
Starfsfólki heimahlynningar Heru þökkum við innilega fyrir
kærleika og hlýja umönnun.
Elínborg Sigvaldadóttir
Guðrún María Guðjónsdóttir Elías Mikael Vagn Siggeirsson
Hafsteinn Örn Guðjónsson
Ragnheiður E. Guðjónsdóttir
Þórey Elísabet Elíasdóttir
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓREYJAR SKAGFJÖRÐ
ÓLAFSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á Víðihlíð
fyrir elskulegheit og góða umönnun.
Stefanía Þorsteinsdóttir Gísli Pálsson
Kristín J. Þorsteinsdóttir Kristinn F. Sigurharðarson
Sigrún Hrönn Þorsteinsd. Rögnvaldur Ólafsson
Ásdís Alda Þorsteinsdóttir Árni Þór Bjarnason
Ólöf Ásta Þorsteinsdóttir Sigurþór Guðmundsson
ömmu- og langömmubörn
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför
elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður
og ömmu,
RAGNHEIÐAR ÞÓRARINSDÓTTUR
sjúkraliða,
Túngötu 14, Eyrarbakka.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild 11-G á Landspítalanum
fyrir þrotlausa baráttu og stuðning.
Ennfremur systur í Rb. st. nr. 9 Þóru fyrir að skapa yndislega og
virðulega umgjörð við útför Ragnheiðar.
Þórarinn Th. Ólafsson
Ágústa M. Þórarinsdóttir Andrew Brydon
Kristín Th. Þórarinsdóttir Egill Harðarson
Ólöf H. Þórarinsdóttir Einar Espólín Storo
Innilegar þakkir fyrir auðsynda samúð,
vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæru
SVÖLU ÍRISAR SVAVARSDÓTTUR,
Huldugili 6, Akureyri.
Útför fór fram í kyrrþey frá Glerárkirkju
30. júlí.
Friðgeir Vilhjálmsson
Kolbrún Halldórsdóttir Svavar Sigurðsson
Eva Rut Friðgeirsdóttir
Sandra Sif Friðgeirsdóttir Sigmar Ari Valdimarsson
barnabörn og systkini
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR BJÖRNSSONAR,
Stóra-Lambhaga 3, Hvalfjarðarsveit,
Guð blessi ykkur öll.
Sólveig Sigurðardóttir
Sigurður Sigurðsson Hrefna Guðjónsdóttir
Björn Sigurðsson Áslaug Ásmundsdóttir
afabörnin
Okkar ástkæra Lóló,
ÓLÖF JÓNA ÓLAFSDÓTTIR,
Sólheimum 23,
andaðist á Vifilsstöðum mánudaginn
2. ágúst. Útförin fer fram frá Langholtskirkju
miðvikudaginn 11. ágúst klukkan 13.
Streymt verður frá útförinni, www.sonik.is/olof
Aðstandendur