Morgunblaðið - 07.08.2021, Síða 31

Morgunblaðið - 07.08.2021, Síða 31
DÆGRADVÖL 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021 Hægindastóll model 7227 Leður – Stærðir XS-XL Verð frá 389.000,- NJÓTTU ÞESS AÐ SLAKA Á Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. „ÞETTA ER SÍÐASTA PARIÐ AF ÞESSUM!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... vatnsheld. KOMIÐ SÆL! OG VELKOMIN Í … UM … UM … UM … KANNSKIÆTTUÐ ÞIÐ BARA AÐ FARA HALLÓ HELGA! ÉG ER KOMINN HEIM EFTIR TVO MÁNUÐI Á SJÓNUM! VELKOMINN HEIM! FÖRUM ÚT AÐ BORÐA! MIG LANGAR MIKLU FREKAR Í HEIMALAGAÐA MÁLTÍÐ! SÆKTU KÁPUNA ÞÍNA „DRAGÐU DJÚPT ANDANN OG HALTU HONUM. ÉG HEYRI EKKI HJARTSLÁTTINN FYRIR ÖLLU SURGINU.“ með aðstöðu í höfuðstöðvum velferðarsviðs.“ Guðný hefur sinnt fjölmörgum fé- lagsstörfum í heilbrigðismálum allt frá háskólaárunum enda hefur hún alltaf haft brennandi áhuga á sínu fagi. Á æskuheimilinu voru oft heim- spekilegar samræður um andleg mál- efni sem örvuðu gagnrýna hugsun og vöktu þennan áhuga á mannskepn- unni. „Sem unglingur las ég líka jógabók sem breytti varanlega heimssýn minni og snemma þótti mér lífið ærið mótsagnakennt, eig- inlega bara furðuleg ráðstöfun. En það er auðvelt að missa jarðteng- inguna þegar maður týnir sér í svona pælingum og þá finnst mér dásam- legt að finna tenginguna aftur í sam- skiptum við mín dásamlegu barna- börn. Gefandi samskipti eru svo mikilvæg fyrir okkur manneskj- urnar.“ Fjölskylda Eiginmaður Guðnýjar Önnu er Hjálmar Kjartansson, viðskiptafræð- ingur MBA, f. 1.3. 1958. Þau eiga dótturina Freydísi Guðnýju, f. 30.11. 1984, næringarfræðing MSc, Side- kick Health Reykjavík og HSS í Reykjanesbæ. Maki hennar er Emil Ásgrímsson, grafískur hönnuður, f. 11.2. 1985. Þau eiga börnin Móeiði, f. 2013; Dýrleif, f. 2018, og Styr, f. 2020. Þau búa í Reykjavík. Fyrri maki Guðnýjar var Friðrik Kr. Guð- brandsson læknir og áttu þau soninn Friðrik Gauta, f. 30.5. 1979, texta- smið í Reykjavík. Barn hans og Thomasinu Larkin er Violet Evolina, f. 2009. Systkini Guðnýjar eru Gauti, f. 20.2. 1933, fv. yfirlæknir FSA, kvæntur Sólrúnu Sveinsdóttur, bú- sett í Kópavogi; Valur, f. 1.3. 1935, d. 13.10. 1990, kaupfélagsstjóri KEA og bankastjóri Landsbankans, kvæntur Sigríði Ólafsdóttur, búsett í Garða- bæ, og Hlíf (nú Linda Hlíf Christen- sen), f. 2.8. 1940, dómtúlkur og skjalaþýðandi, gift Bent Christensen (d. 2020), búsett í Danmörku. Foreldrar Guðnýjar voru hjónin Guðný Anna Pétursdóttir Jensen húsfreyja, f. 8.3. 1911, d. 30.7. 1988, og Arnþór Jensen framkvæmdastjóri á Eskifirði, f. 22.5. 1906, d. 9.1. 1993. Guðný Anna Arnþórsdóttir Jens Peder Jensen beykir á Eskifirði Jóhanna María Jensen Pétursdóttir húsfreyja á Eskifirði Vilhelm Jensen kaupmaður á Eskifirði Þórunn Markúsdóttir húsfreyja á Eskifirði Arnþór Jensen framkvæmdastjóri á Eskifirði Sr. Markús Gíslason prestur á Stafafelli, Lóni Metta Einarsdóttir prestsfrú á Stafafelli, Lóni Sr. Þorsteinn Þórarinsson prestur í Berufirði og Heydölum Þórunn Sigríður Pétursdóttir prestsfrú í Berufirði og Heydölum Sr. Pétur Þorsteinsson prestur í Heydölum í Breiðdal Hlíf Bogadóttir Smith prestsfrú í Heydölum í Breiðdal Bogi Lárentíus Mariinius Smith b. og smiður í Arnarbæli á Fellsströnd Oddný Þorsteinsdóttir Smith húsfreyja í Arnarbæli á Fellsströnd Úr frændgarði Guðnýjar Önnu Arnþórsdóttur Guðný Anna Pétursdóttir Jensen húsfreyja á Eskifirði Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Í geimnum er sífellt á sveimi. Svolítill dreitill í máli. Af fjölmörgum dáð hér í heimi. Hryssa í vísu frá Páli. „Þá er það lausnin,“ skrifar Helgi R. Einarsson: Geislar frá stjörnunum stafa. Stjarna er dreitill í máli. Stjörnurnar stuðningsmenn hafa. Stjarna er hryssa hjá Páli. Guðrún B. á þessa lausn: Stjörnur geysast geiminn um, í glas stjarnan að tarna. Vont að missa af vinsældum og vera stjarna af hugsjónum, þar á ofan þegar það var hún Stjarna. Knútur Ólafsson svarar: Stjarna skín ósjaldan sterkt í myrkum geimi. Stjarna er dreitill í glasi eða máli. Ýmsar mennskar stjörnur eru dáðar hér í heimi. Hryssan ’hún Stjarna er í vísu hjá Páli. Eysteinn Pétursson leysir gátuna þannig: Starir frá himninum stjarnanna gnægð. Stjarna er dreitill í máli. Kvikmyndastjörnurnar státa af frægð. Stjarna’ er í vísu frá Páli. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una svona: Stjarnan er stöðugt á sveimi. Stjarna er vínsopi í máli. Strauss var hér stjarna í heimi. Um Stjörnu var kveðið af Páli. Þá er limra: Það var angist og uppnám hjá konum og ekki nema að vonum, þegar filmstjarna ein kyssti afgamla Svein og andlitið datt af honum. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Tíminn er á fleygiferð, flýta mér ég núna verð. Skáldagyðja ljá mér lið, svo ljúka megi gátu við: Hlýðir þessu hundurinn. Hermir ýmsum dauða sinn. Eitthvað, sem ég á mér finn. Oft þér geri, vinur minn. Þessi limra flaut með lausn Helga R. Einarssonar: Bisnessmaðurinn Hjartað í honum sló, en hætti þegar ’ann dó. Þá samdi við sómalið, sjálfan „Guð og co.“ Guðríður í Múlakoti orti um Jón- atan Þorsteinsson: Skáldgyðjuna þarf ei þvinga, þreyir glaður óðs við stjan besta skáldið Borgfirðinga bráðgáfaður Jónatan. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Með stjörnur í augunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.