Morgunblaðið - 07.08.2021, Side 33

Morgunblaðið - 07.08.2021, Side 33
ÍÞRÓTTIR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. ÁGÚST 2021 ÓL Í TÓKÝÓ Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Boðhlaupssveit Ítalíu vann í gær ansi hreint magnaðan sigur í úrslit- um 4x100 metra hlaups karla á Ól- ympíuleikunum í Tókýó. Filippo Tortu, sá sem var fjórði og síðastur til að taka við keflinu í hlaupi gær- dagsins, náði frábærum endasprett og kom í mark aðeins einum hundr- aðshluta úr sekúndu á undan Nethaneel Mitchell-Blake frá Stóra-Bretlandi, sem virtist vera að tryggja þjóð sinni gullið áður en Tortu tók til sinna ráða. Í liði Ítalíu ásamt Tortu eru þeir Lamont Marcel Jacobs, Eseosa De- salu og Lorenzo Patta. Af þeim var Jacobs áður búinn að tryggja sér óvænt ólympíugull í 100 metra hlaupi karla. Ítalir hafa undanfarna áratugi ekki þótt skara fram úr í frjálsíþróttum en ólympíugullin í þeim á leikunum í ár eru hins vegar orðin fimm. Áður hefur verið greint frá sögu- legu gulli hástökkvarans Gianmarco Tamberi, sem hann deildi með Kat- arbúanum Mutaz Essa Barshim á leikunum. Það var í fyrsta skipti síðan á Ólympíuleikunum í Stokk- hólmi árið 1912 sem gulli var deilt í frjálsíþróttagrein. Þá var það þó gert eftir að Bandaríkjamaðurinn Jim Thorpe var sviptur gull- verðlaunum sínum í tugþraut og fimmþraut áður en hann fékk þau aftur, en þeir sem lentu í öðru sæti á eftir honum héldu einnig gull- verðlaunum sínum eftir það. Þá tryggði Antonella Palmisano sér ólympíugull í 20 kílómetra göngu kvenna í gær og Massimo Stano hafði gert slíkt hið sama karla megin daginn áður. Ólympíu- gullin fimm hjá Ítölum í frjáls- íþróttum á leikunum eru ansi merkileg með það í huga að þau voru alls aðeins fjögur samtals í frjálsíþróttum á síðustu átta leik- um, frá og með leikunum í Seúl í Suður-Kóreu árið 1988 fyrir 33 ár- um. Löng ganga í óbærilegum hita Pólverjinn Dawid Tomala tryggði sér í fyrrakvöld ólympíugull í 50 kílómetra göngu karla eftir að hafa komið fyrstur í mark á tæplega fjórum klukkustundum í úrslitum greinarinnar á leikunum. Aðstæðurnar sem keppendur þurftu að glíma við voru ansi erf- iðar þar sem 31 stigs hiti og mikill raki settu strik í reikninginn hjá keppendum í Sapporo Odori- garðinum í Japan, þar sem úrslitin fóru fram. Tomala kom í mark á 3:50:08 klukkustundum og skákaði silf- urverðlaunahafanum Jonathan Hil- bert frá Þýskalandi og Evan Dun- free frá Kanada, sem komu í mark skömmu á eftir Pólverjanum. Ef það hefur verið lýjandi fyrir fremstu menn að keppa þá hafa öft- ustu menn sem kláruðu gönguna ef- laust líka fundið fyrir talsverðri þreytu að lokinni keppni, til að mynda þeir Lukas Gdula, sem kom í mark á 4:33:06 klukkustundum og lenti í 46. og næstsíðasta sæti, og Ekvadorinn Claudio Villanueva sem gekk í tæpar fimm klukkustundir og kom síðastur í mark. 47. sæti, á 4:53:09 klukkustundum. Alls kláruðu tólf keppendur ekki gönguna, þar sem þeir ýmist hættu keppni sjálfir eða voru dæmdir úr leik. Leiða má að því líkum að í ein- hverjum tilfellum hafi þeir sem hættu keppni gert það vegna erf- iðra aðstæðna. Eftirtektarverður árangur - Ítalir slá í gegn í spretthlaupum á Ólympíuleikunum í Tókýó - Hafa fengið fimm gull í frjálsum á leikunum - Aðeins fjögur á 33 árum á undan AFP Boðhlaupssveitin Lamont Marcell Jacobs, Eseosa Desalu, Lorenzo Patta og Filippo Tortu fagna sigri. Kanada er ólympíumeistari kvenna í knattspyrnu eftir að hafa haft bet- ur gegn Svíþjóð í bráðabana í víta- spyrnukeppni í úrslitaleiknum á Ól- ympíuleikunum í Tókýó í gær. Markahrókurinn mikli, Stina Blackstenius, kom Svíum yfir á 34. mínútu og voru Svíar yfir að lokn- um fyrri hálfleik. Svíþjóð var með Íslandi í riðli í síðustu undankeppni og gerði jafntefli í Laugardalnum síðasta haust. Julia Grosso tryggði Kanada sig- urinn þegar vítaspyrnukeppnin var komin í bráðabana. Vítaspyrnukeppni þurfti í úrslitaleik AFP Sigurmarkið Julia Grosso horfir á eftir tuðrunni hafna í netinu. Körfuknattleiksdeild KR hefur gengið frá þjálfaramálum meist- araflokks karla og mun Helgi Már Magnússon taka við stjórnartaum- unum en Darri Freyr Atlason lét af störfum að eigin ósk fyrr í sumar eftir eitt ár í starfi. Jakob Örn Sigurðarson, sem lagði skóna á hilluna í sumar, verð- ur Helga til aðstoðar. Báðir eru þeir uppaldir KR-ingar, þraut- reyndir landsliðsmenn og marg- faldir Íslandsmeistarar. Helgi á eitt tímabil að baki sem þjálfari hjá KR og var það tímabilið 2013-2014. Helgi Már tekur við af Darra Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þjálfari Helgi Már Magnússon er tekinn við KR-liðinu. Eitt ogannað _ Kvennalið Hauka í körfuknattleik hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku en tveir leikmenn liðsins hafa samið við erlend félagslið og leika því ekki með Hafnarfjarðarliðinu á komandi tímabili. Þetta eru þær Sara Rún Hinriksdóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir, sem eru báðar landsliðskonur. Karfan.is greindi frá því í gær að Sara Rún hafi samið við rúmenska úrvalsdeildarliðið Phoenix Constanta út komandi tímabil. Þóra Kristín heldur til náms í Danmörku og mun jafnframt leika með AKS Falcon. _ Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands- ins verður haldin í 54. skipti í dag. Keppt verður í Kaplakrika, bæði í flokki fullorðinna en einnig í flokki 15 ára og yngri. Keppt verður tíu greinum hjá körlunum og tíu greinum hjá konunum. Bikarkeppnin er liðakeppni og liðið sem safnar flestum stigum verður bik- armeistari. Lýkur keppninni á skemmti- legri grein sem er 1.000 m boðhlaup. Einn hlaupari hleypur 100 metra, sá næsti 200 m, sá þriðji 300 m og loks er síðasti spretturinn 400 m sprettur. Af- lýsa þurfti bikarkeppninni í fyrra vegna hertra sóttvarnareglna en FH sigraði 2019. FH eða ÍR hefur unnið keppnina síðustu þrjá áratugi. _ Danski knattspyrnumaðurinn Thom- as Mikkelsen mun yfirgefa Breiðablik á næstu dögum eftir að hafa komist að samkomulagi við félagið um að losna undir samningi. Samkvæmt yfirlýsingu á Facebook-síðu félagsins óskaði Mikk- elsen eftir því að losna undan samningi við félagið af persónulegum ástæðum og mun leika sinn síðasta leik fyrir fé- lagið á næstu dögum og halda heim til Danmerkur. _ Eyjamaðurinn Hlynur Andrésson setti í gærkvöldi glæsilegt Íslandsmet í 3.000 metra hlaupi í Jessheim í Noregi. Hlynur hljóp á 7:54,72 mínútum og stórbætti metið sem hann átti sjálfur. Eldra metið var 8:01,37. _ Joshua Cheptegei frá Úganda varð í gær ólympíumeistari í 5.000 metra hlaupi karla. Cheptegei er heimsmets- hafi í greininni og sigraði á 12:58,15 mínútum. Cheptegei fékk silf- urverðlaun í 10.000 metra hlaupi á leik- unum, en hann á sömuleiðis heims- metið í þeirri grein. Hann hafði ekki komist á verðlaunapall á leikunum í Ríó 2016 og hefur því bætt sig mjög und- anfarin ár. _ Faith Kipyegon tryggði sér ólympíu- gull með stæl þegar hún setti ólympíu- met í 1.500 metra hlaupi kvenna á Ól- ympíuleikunum í Tókýó. Hin hollenska Sifan Hassan var stærstan hluta hlaupsins fremst en Kipyegon átti hún nóg inni þegar komið var á fjórða og síðasta hring hlaupsins. Þá þaut hún fram hjá Hassan og stakk hana hrein- lega af, kom langfyrst í mark og sló ól- ympíumetið í greininni með því að hlaupa á 3:53,11 mínútum. Laura Muir frá Bretlandi tók einnig fram úr Hassan og tryggði sér silfurverðlaun á 3:54,50 mínútum. Hassan endaði í þriðja sæti er hún kom í mark á 33:55,86 og vann þar með sinn annan verðlaunapening á leikunum í ár. En hún sigraði í 5.000 metra hlaupi kvenna fyrr í vikunni. Hulda Clara Gestsdóttir, úr Golf- klúbbi Kópavogs og Garðabæjar, jók forskot sitt á öðrum keppn- isdegi Íslandsmótsins í golfi sem fram fer á Jaðarsvelli á Akureyri. Hulda Clara lék fyrsta hringinn á 70 höggum og fylgdi því eftir með 69 höggum í gær. Er hún sú eina sem er undir pari í kvennaflokki. Hulda er á þremur höggum undir pari samanlagt. Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur kemur næst en hún er á á samtals fimm yfir pari eftir að hafa leikið á 74 og 73 höggum. Aron Snær Júlíusson úr GKG skaust upp í efsta sætið í karla- flokki þegar hann lék á 67 höggum. Er hann samtals á fimm höggum undir pari. Hlynur Bergsson var efstur að loknum fyrsta keppn- isdegi og er högg á eftir Aroni eftir að hafa leikið á 72 höggum í gær. Hulda með átta högga forskot eftir 36 holur Mynd/seth@golf.is Efst Hulda Clara er í góðri stöðu þegar mótið er hálfnað. Kórdrengir fóru aftur upp í þriðja sæti Lengjudeildar karla í knatt- spyrnu með öruggum 3:0-útisigri á Þrótti úr Reykjavík í gær. Hreinn Ingi Örnólfsson, Leonard Sigurðs- son og Magnús Andri Ólafsson skor- uðu mörkin. Kórdrengir eru með 25 stig eftir 13 leiki. Þróttur er í næst- neðsta sæti með 10 stig. Vestri vann dramatískan 2:1-sigur á Grindavík á útivelli Benedikt V. Warén skoraði sigurmark Vestra í uppbótartíma en Pétur Bjarnason skoraði fyrra markið. Diogo Coelho hjá Vestra fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 70. mínútu. Oddur Ingi Bjarnason jafnaði fyrir Grindavík á 82. mínútu. Grindvík- ingurinn Sigurður Bjartur Hallsson brenndi af vítaspyrnu í stöðunni 0:1. Vestri er einnig með 25 stig en eft- ir 15 leiki. Grindavík er með 20 stig eftir 15 leiki og hefði því getað farið upp fyrir Vestra. Afturelding sleit sig nokkuð frá neðstu liðunum með 2:0 sigri gegn Þór Akureyri. Mosfellingar eru með 16 stig eftir 13 leiki í 9. sæti en Þór er með 19 stig. Arnór Gauti Ragnarsson og Elm- ar Kári Enesson Cogic skoruðu fyrir Aftureldingu í gær. sport@mbl.is Fjögurra stiga forskot ÍBV á Kórdrengi og Vestra Ljósmynd/Þórir Tryggvason Á hliðarlínunni Davíð Smári La- mude þjálfari Kórdrengja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.