Morgunblaðið - 05.08.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021
Sími 555 3100 www.donna.isVefverslun: www.donna.is
Honeywell gæða viftur
Margar gerðir – Láttu gusta umþig!
arfsmannafatnaður
rir hótel og veitingahús
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | www.eddaehf.is
Hótelrúmföt kristin@run.is | Starfsmannafatnaður thorhildur@run.is
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Hótelstjórnandann
Hótelrúmföt
Sérhæfum okkur í sölu á rúmfatnaði
og öðru líni fyrir hótel
Ferðumst
innanlands
í sumar
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Nýjar haustvörur streyma inn
Skipholti 29b • S. 551 4422
Útsölulok
Skoðið laxdal.is
50-70%afsláttur
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 |
Við erum á facebook
20%
aukaafsláttur af
allri útsöluvöru
Hæstiréttur Íslands hefur hafnað
málskotsbeiðni lögreglumanns sem
var dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir
líkamsárás á mann sem hafði verið
handtekinn á skemmtistaðnum The
Irishman Pub í nóvember árið 2019.
Landsréttur staðfesti dóm yfir
manninum í maí síðastliðnum.
Fram kom að hann hefði slegið
manninn sem var handtekinn tví-
vegis í andlitið og þvingað hann í
sársaukastöðu þrívegis án nægi-
legrar ástæðu. Meðal annars var
notast við myndbandsupptökur úr
myndbandstökubúnaði í lögreglu-
bílnum.
Gerðist er komið var inn í
lögreglubifreiðina
Í dómi Landsréttar segir að ekki
verði talið sannað að lögreglumað-
urinn hafi farið offari við að koma
manninum inn í bifreiðina, en vísað
er til þess að maðurinn hafi bæði
verið ógnandi og neitað að fara að
fyrirmælum lögregluþjóna. Hins
vegar að þegar búið var að koma
manninum handjárnuðum inn í lög-
reglubifreiðina hafi hann ekki verið
ógnandi. Þar hafi lögreglumaðurinn
látið höggin dynja á manninum.
Fram kemur í ákvörðun Hæsta-
réttar að leyfisbeiðandi byggi mál
sitt á því að dómur Landsréttar sé
rangur að efni til þar sem rétturinn
hafi lagt rangt mat á myndbands-
upptöku úr lögreglubifreið sem
varð til þess að hann var talinn hafa
gerst sekur um háttsemi sem hafi
ekki átt sér stað. Einnig telur mað-
urinn að úrlausn Hæstaréttar
myndi hafa verulega almenna þýð-
ingu.
Uppfyllir ekki skilyrði
Jafnframt sé mjög mikilvægt fyr-
ir hann að fá úrlausn Hæstaréttar í
málinu þar sem fangelsisrefsing
verði til þess að hann uppfylli ekki
lagaskilyrði um að starfa sem lög-
reglumaður.
„Að virtum gögnum málsins verð-
ur ekki séð að það lúti að atriðum
sem hafi verulega almenna þýðingu
eða að mjög mikilvægt sé af öðrum
ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar
um þannig að fullnægt sé skilyrðum
2. málsliðar 4. mgr. 215. gr. laga nr.
88/2008,“ segir í ákvörðun Hæsta-
réttar.
Morgunblaðið/Eggert
Hæstiréttur Málskotsbeiðni lögreglumanns vegna 45 daga dóms var hafnað.
Hafnar beiðni
lögreglumanns
- Hlaut 45 daga dóm fyrir líkamsárás
Stefnt er að því að malbika nokkur
útskot undir Akrafjalli, milli Hval-
fjarðarganga og Melahverfis, í dag
milli kl. 8 og 17. Veginum verður
lokað til suðurs og hjáleið um Akra-
fjallsveg. Umferð til norðurs verð-
ur framhjá framkvæmdasvæðinu,
að því er fram kemur á vef Vega-
gerðarinnar.
Unnið er að viðhaldi á Eyrar-
bakkavegi milli Selfoss og Eyrar-
bakka næstu daga. Vegagerðin bið-
ur vegfarendur um að virða hraða-
takmörk og sýna aðgát.
Þá er einnig unnið að klæðningu
á veginum um Fagradal. Vegna
hættu á steinkasti eru vegfarendur
beðnir að virða hraðatakmarkanir
og aka varlega.
Útskot Vesturlands-
vegar malbikuð