Morgunblaðið - 05.08.2021, Blaðsíða 56
Bræður Ásgeir vildi gera kvikmynd um bræðrasamband og fékk hann Jónas frænda sinn til að leika á móti sér.
VIÐTAL
Hólmfríður Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
„Það eru miklir fordómar gagn-
vart ungu fólki sem er að skapa
list eða er í kvikmyndagerð. Fólk
spyr okkur alltaf fyrst hvort við
séum að gera stuttmynd en svo
þegar ég segi að hún sé í fullri
lengd þá spyr það hvort hún sé 20
mínútur. Nei, hún er tveir tímar.
Við erum að gera þetta. Það er
ekki fyrr en núna þegar við erum
að komast inn á kvikmyndahátíðir
og okkur eru boðnir flugmiðar út
að fólk er að átta sig á því að við
erum að gera þetta af alvöru,“
segir Ásgeir Sigurðsson, tvítugur
kvikmyndagerðarmaður, sem
skrifaði, leikstýrði og lék
aðalhlutverkið í kvikmyndinni
Harmur.
Tvítugir að gera kvikmynd
Kvikmyndin er sjálfstætt verk-
efni sem Ásgeir hefur staðið fyrir
ásamt þremur vinum sínum, þeim
Elvari Birgi Elvarssyni, Halldóri
Ísak Ólafssyni og síðast en ekki
síst Antoni Kristensen sem leik-
stýrði myndinni ásamt Ásgeiri.
Það vekur athygli að félagarnir
eru allir rétt rúmlega tvítugir en
þeir eru fæddir á árunum 1998 til
2000.
Aðspurður segir Ásgeir reynslu
þeirra félaga ekki yfirgripsmikla.
Kynntust þeir flestir í kvik-
myndagerð í Borgarholtsskóla en
Anton er sá eini sem lokið hefur
framhaldsnámi við New York
Film Academy í Los Angeles.
Sjálfur hefur Ásgeir leikstýrt
þáttaröð á Rúv Núll og var það
stærsta verkefnið sem hann hafði
tekið þátt í fram að Harmi.
„Eins og ég segi þá erum við
mjög ungir, þannig að það er ekki
mikill ferill á bak við okkur. Við
ákváðum bara að hoppa í þetta
því við vissum að þetta væri eitt-
hvað sem við gætum gert og viss-
um að við værum með nóg af
ástríðu og hæfileikum. Einhvern
veginn tókst það síðan,“ segir
hann.
Lágur meðalaldur þeirra fé-
laga og stuttur starfsferill virðist
ekki hafa komið að sök, en kvik-
myndin hefur nú þegar verið val-
in inn á þrjár stórar, alþjóðlegar
kvikmyndahátíðir í Evrópu og
Bandaríkjunum, Oldenberg Film
Festival, Rhode Island Int-
ernational Film Festival og Nor-
dic International Film Festival.
Bíða þeir nú spenntir svara frá
öðrum hátíðum og eru þeir bjart-
sýnir á framhaldið miðað við þær
undirtektir sem verkið hefur
fengið.
Skrifaði handritið í vinnunni
Spurður hvenær sú hugmynd að
leggja af stað í kvikmyndafram-
leiðslu hafi kviknað kveðst Ásgeir
hafa verið staðráðinn í að gera
kvikmynd eftir útskrift úr Borgar-
holtsskóla. Þótti honum það væn-
legra til árangurs en að halda
áfram í kvikmyndanámi. Hafði
hann skrifað handritið að Harmi í
afgreiðslustarfi sem hann sinnti
meðfram framhaldsskólagöngunni.
Náði Ásgeir síðar að fá félaga sína
í lið með sér og rétt áður en Anton
lauk námi sínu erlendis voru þeir
farnir að skipuleggja hvernig
mögulegt væri að framkvæma hug-
myndina. Var fyrsta skrefið að
leggja vissa upphæð mánaðarlega
til hliðar.
Ásgeir kveðst hafa haft þá hug-
mynd í pokahorninu að gera kvik-
mynd um tvo bræður sem yrðu
leiknir af honum sjálfum og litlum
frænda hans, Jónasi Birni Guð-
mundssyni. Ásgeir hafði áður feng-
ið frænda sinn í lið með sér þegar
hann gerði útskriftarmyndina sína
úr Borgarholtsskóla. Að sögn Ás-
geirs þótti ekki mikið til þeirrar
myndar koma en leikur Jónasar
þótti þó skara fram úr þrátt fyrir
ungan aldur hans.
„Ég vissi að mig langaði að
skrifa um samband milli okkar.
Eitthvað svona gott bræðra-
samband. Svo kom eiginlega hug-
myndin að handritinu út frá því og
ég vissi að ég hafði aðgang að hon-
um.“
Að sögn Ásgeirs fellur kvik-
myndin í flokk dramamynda.
Fjallar hún um fjölskyldu, móður
og tvo syni, og atburðarás sem
hefst þegar að móðirin fellur aftur
í gryfju eiturlyfjaneyslu. Eina
nóttina týnist yngri bróðirinn, sem
leiðir þann eldri í leitarleiðangur í
gegnum undirheima Reykjavíkur.
„Þetta er svona smá nordískur
krimmi með smá tvisti. Við vildum
frá upphafi ekki detta í einhverja
algjöra klisju og gera þessar
þunglyndu eiturlyfjamyndir sem
eru vinsælar hér á landi. Við fór-
um meira í svona drama- og
spennumynd,“ segir hann.
Útsjónarsemi nauðsynleg
Spurður hvort ekki hafi verið
yfirþyrmandi að skrifa, leikstýra
og leika aðalhlutverkið í fyrstu
kvikmyndinni, segist Ásgeir alla-
vega hafa haft nóg að gera.
Kveðst hann þakklátur þeim hóp
sem var með honum og hafi þau í
raun gert honum kleift að gera
alla þessa hluti. Á endanum hafi í
raun bara verið ótrúlega gaman að
taka bæði þátt í senunni og vera á
bak við tökuvélina á sama tíma.
Fjármagnið sem drengirnir
höfðu milli handanna við gerð og
tökur veitti ekki mikinn sveigjan-
leika enda kostnaðarsamt að fram-
leiða kvikmynd í fullri lengd. Var
verkið keyrt áfram á sjóðnum sem
drengirnir höfðu safnað og mynd-
in tekin upp á kvikmyndabúnað og
myndavélar sem þeir höfðu fjár-
fest í frá því þeir hófu nám í
Borgarholtsskóla.
„Það var eiginlega öll ástríðan
sem kom okkur í gegnum þetta og
er ástæðan fyrir því að þetta lítur
svona vel út. Í gegnum skóla-
göngu okkar þá vorum við allir í
hlutastörfum og vorum alltaf að
fjárfesta í gegnum öll árin. Svo er
þetta líka spurning um að hugsa
út fyrir kassann þegar maður er
með lítið fjármagn. Maður þarf að
hugsa um að hverju ég hef aðgang
og hvernig ég viti að ég geti gert
góða sögu fyrir lítinn pening.“
Ásgeir segir lykilinn að baki
velgengninni vera óeigingjarna
vinnu þeirra sem komu að gerð
kvikmyndarinnar. Fengu þeir fé-
lagar til liðs við sig fólk úr öllum
áttum, var tónlistin fyrir kvik-
myndina meðal annars frumsamin
af kunningjum þeirra. Leik-
arahópurinn var heldur ekki af
verri endanum en meðal þeirra
sem fara með aðalhlutverkin eru
þær Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir
og Aldís Amah Hamilton.
„Þetta er allt gert af góðviljuðu
fólki sem vildi hjálpa okkur og sá
tækifærið í því og vildi verða hluti
af þessu verkefni, því það vissi að
þetta var að fara að ganga vel.
Eins með leikarateymið, við höfð-
um ekki mikið til að sýna þeim
nema handritið. Það var eitthvað
sem þau sáu í þessu og vildu vera
með.“
Auk fjárhagslegra takmarkana
setti yfirstandandi heimsfaraldur
strik í reikninginn. Tökur á kvik-
myndinni stóðu yfir í tvær vikur í
október á síðasta ári og í viku í
febrúar á þessu ári. Að sögn Ás-
geirs var erfiðasta tímabilið þegar
10 manna samkomutakmark-
anirnar voru og ekki var hægt að
hafa marga á setti. „En sem betur
fer er þetta lítil mynd svo þetta
heppnaðist allt.“
Hlakkar til að frumsýna
Nú þegar verkið er næstum
klárt og tilbúið til sýningar segist
Ásgeir hlakka mest til að sýna Ís-
lendingum kvikmyndina þó hátíð-
irnar erlendis séu vissulega
spennandi líka. Kveðst hann
áhugasamur að sjá viðbrögð fólks
og er hann vongóður miðað við þá
gagnrýni sem strákarnir hafa
fengið nú þegar.
Nú sem stendur eru allir fé-
lagarnir í vinnu með kvikmynda-
störfunum en Ásgeir er þó bjart-
sýnn á að Harmur muni opna dyr
fyrir þá innan bransans. Vonar
hann að velgengni kvikmyndarinn-
ar leiði til þess að hann geti gert
kvikmyndagerð að fullri atvinnu.
Aðspurður segist Ásgeir ekki
sjá fram á að sækja um í fram-
haldsnám fljótlega. Vill hann held-
ur halda áfram á þeirri braut sem
hann er nú staddur á, enda óþarfi
að hætta þegar svona vel gengur.
„Ég held að framhaldsnám á þess-
um tímapunkti myndi drepa „the
momentum“. Miðað við viðbrögðin
við fyrstu myndinni þá held ég að
það eina í stöðunni sé að halda
áfram að gera það sama,“ segir
hann að lokum.
Kvikmyndagerðarmenn á uppleið
- Harmur hefur verið valin inn á þrjár erlendar kvikmyndahátíðir - Fjórir vinir fæddir á árunum
1998 til 2000 framleiddu myndina saman - Skrifaði handritið á meðan hann sinnti afgreiðslustarfi
Leikstjóri Ásgeir Sigurðsson skrifaði, leikstýrði og lék aðalhlutverkið.
Myndataka Anton Kristensen sá um kvikmyndatöku og leikstýrði einnig.
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646