Morgunblaðið - 05.08.2021, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.08.2021, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021 Vefverslun selena.is | sendum frítt um allt land ef verslað er yfir 10.000 kr. Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 • Vefverslun selena.is Ný sending frá Dóra Júlía dorajulia@k100.is Lífið er ákveðið listform og listina má finna víða. Það er bæði skemmtilegt og mikilvægt að kynna sér það áhugaverða lista- fólk sem tilheyrir okkar samtíma og vera dugleg að leyfa listinni að hrista upp í hversdagsleikanum. Undir verndarvæng Kópavogs- bæjar og Gerðarsafns hefur hópur af 16-17 ára ungmennum fengið það starf að kynna sér samtímalist og söfn borgarinnar í sumar. Markmiðið með þeirri vinnu var að kanna hvernig söfnin geta orðið aðgengilegri fyrir ungt fólk, sem er hópur sem kannski gleymist oft að höfða til í samhengi listanna. Í dag, 5. ágúst, ætla ungmennin að sýna afrakstur sumarsins með list- sýningu og uppskeruhátíð frá klukkan 17.00-20.00 og fer hún fram í bílakjallaranum fyrir neðan Molann ungmennahús beint á móti Gerðarsafni, Kópavogi. Helgi Grímur Hermannsson og Salvör Gullbrá stýrðu þessum skemmti- lega hópi í sumar. Helgi Grímur segir þetta hafa verið ótrúlega gefandi sumar þar sem krakkarnir hafa sótt fjölmargar smiðjur, bókagerð, skúlptúragerð úr rusli, fatasmiðju, hljóðfærasmiðju, graff- smiðju og svo lengi mætti telja, sem hafa fyllt þau af innblæstri og skýrt hugmyndir þeirra um hverju þau hafi áhuga á í listum. Upp á síðkastið hafa þau verið að þróa sín eigin verk og verða þau til sýnis í dag, fimmtudag, á uppskeruhátíðinni. Hópurinn nefndi sig Grakkarnir - unglingaráð Gerðarsafns og sýn- ingin ber nafnið Þríhyrningur, ha? „Það er virkilega gaman að gefa krökkum tækifæri á að kynnast list út frá sínum forsendum og reyna gagngert að vekja áhuga þeirra. Sjálfur veit ég að list getur virst flókin, fræðileg og á einhvern hátt útilokandi og þess vegna er frábært að hafa fengið að kynnast samtímalist í heilt sumar,“ segir Helgi Grímur að lokum. „Grakkarnir“ Ungmennin munu kynna afrakstur sumarsins í dag. Kynnast list og kynna afraksturinn Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Daníel Örn Hinriksson, formaður Hundaræktarfélag Íslands, ræddi um aukinn áhuga á loðnum fjöl- skyldumeðlimum í Ísland vaknar í gær, en áhugi á því að eignast hund virðist hafa stóraukist á Covid- tímum. Þá virðist verð á hundum einnig hafa hækkað umtalsvert og framboð vera langt undir áhuga. Covid haft góð áhrif „Vinsældirnar eru alltaf að aukast. Ég held að þær séu búnar að vera að stigmagnast. Ég held að „Covidið“ hafi bara haft góð áhrif á þetta allt saman,“ sagði Daníel sem tekur þó undir að skortur á hundum sé mun betri en offramboð eins og þekkist víða erlendis. „Við erum heppin hér að við þurf- um ekki að hafa virk dýraathvörf þar sem dýrum er hrúgað inn, sem enginn vill og offramboð er af. Ég held að það sé okkar lán,“ útskýrði hann. „Ég held líka að í þessu „Covidi“, ef við dveljum aðeins þar, að þetta sé breyttur veruleiki til frambúðar. Að því leyti að fólk hugsar með sér að það sé ekkert að fara í endalausa skreppitúra hingað og þangað um heiminn. Það er kannski að fara í lengri ferðir og á auðveldara með að redda pössun fyrir hundinn sinn í takmarkaðan tíma, sjaldnar yfir ár- ið. Þannig að ég held að fólk, allavega það sem ég hef heyrt í kringum mig, er ein af ástæðunum að það leggur í það núna að binda sig. Það er bind- ing að vera með hunda,“ sagði Daní- el, sem sjálfur er hundaeigandi og á meðal annars hundinn Dirty. Hann bætti við: „Það er lífsstíll að vera með dýr og sinna því. Þú berð ábyrgð á þessu og þú í upphafi ákveður að fá þér hundinn svo það er eins gott að maður standi bara sína plikt.“ Daníel sagði að fólk gerði oft mis- tök í upphafi þegar það væri að leita sér að hundi og að fólk velji sér oft frekar hund út frá útliti hans frekar en eiginleikum, kostum – og svoköll- uðum göllum – hundins. „Við erum yfirleitt að tala um galla hjá hundategundum þegar þeir eru ekki að henta okkar lífsstíl. Fólk sem er ekki „aktíft“ er ekkert að fá sér „aktífan“ hund og þar fram eftir götunum,“ sagði Daníel. Hann staðfesti að hann hafi tekið eftir því að hundar hafi hækkað í verði á tímum faraldursins, meðal annars vegna eftirspurnar. Erfitt að flytja inn dýr „Ræktendur segja að þetta stýrist af framboði og eftirspurn. Mitt per- sónulega álit á því er að mér finnst að þetta eigi ekki endilega að hald- ast í hendur. En auðvitað hefur margt hækkað. Ég tala nú ekki um núna í „Covidinu“,“ sagði Daníel og benti á að það hafi verið „hryllingur“ fyrir ræktendur sem væru að bæta hjá sér stofninn að flytja inn ný dýr til landsins. „Flugsamgöngur hafa verið stop- ular sem engar frá mörgum löndum. Fólk hefur ekki getað farið út sjálft til að ná í dýrin. Það hefur þurft að beita alls konar brögðum og kostn- aður við þetta hefur rokið algjörlega upp. Ég get vel skilið þau rök bak við þetta,“ sagði Daníel og bætti við að það væri gríðarlega mikil vinna að rækta hunda. Vildi Daníel hvetja fólk sem nú er að leita sér að nýjum fjölskyldu- meðlim af hundakyni til að vera vel vakandi fyrir aðbúnaði og aðstæðum hundanna. „Þessar níu fyrstu vikur í lífi hvolpanna og hundsins, þetta er svo krítískur tími og fylgir þeim út lífið. Þannig að það þarf að vanda valið og leita eftir meðmælum um þann sem maður ætlar sér að fá hvolpinn hjá,“ sagði Daníel. 200 Yfir 200 hundategundir eru til í heiminum en samt virðist fólk oft velja sér hund út frá útliti frekar en eiginleikum. Þetta segir Daníel að sé vandamál. Fleiri vilja hund í fjölskylduna Daníel Örn, formaður HRFÍ, staðfestir að vin- sældir hunda hafi aukist í faraldrinum en borið hefur á skorti miðað við áhuga á hundum og hækkað verð. Telur Daníel auknar vinsældir vera hluta af breyttum veruleika til frambúðar. Dirty Daníel Örn, formaður HRFÍ, ásamt chihuahua- hundinum sínum Dirty, sem er í miklu uppáhaldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.