Morgunblaðið - 05.08.2021, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021
50 ÁRA Marinó fæddist á
Landspítalanum í Reykja-
vík 5. ágúst 1971. Hann ólst
upp í Reykjavík til sjö ára
aldurs og flutti þá til Njarð-
víkur. Hann byrjaði í Ísaks-
skóla en var síðan öll grunn-
skólaárin í Barna- og
grunnskóla Njarðvíkur.
„Það var yndislegt að alast
þarna upp og ég á margar
góðar minningar og allir
mínir æskuvinir eru þaðan.“
Eftir nám í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja fór Marinó í
Lögregluskóla ríkisins 1995
og útskrifaðist þaðan 1997.
Hann hefur unnið samfleytt
hjá lögreglunni frá þeim tíma, utan tveggja ára, 2017-19, þegar hann var bíl-
stjóri seðlabankastjóra. Fyrst vann hann hjá Lögreglunni á Keflavíkur-
flugvelli, síðan í Reykjavík og loks í Keflavík. Frá 2019 hefur hann verið
varðstjóri í öryggisdeild hjá Ríkislögreglustjóra. „Við sjáum um Stjórnar-
ráðið og allt varðandi öryggismál ríkisstjórnarinnar og eins þegar erlendir
gestir koma. Þetta er virkilega skemmtilegt starf.“
Fyrir utan vinnuna er Marinó bæði listrænn og íþróttalega sinnaður, en
hann er meistaraflokksmaður í golfi. „Svo er ég áhugaljósmyndari og tek
mikið af myndum. Ég er líka trommuleikari og var m.a. í Löggubandinu og
Pakkinu og fleiri sveitum.“ Svo fór Marinó í klassískt söngnám í Tónlistar-
skólanum í Reykjanesbæ. „Ég hef sungið nokkrum sinnum opinberlega og
söng t.d. tvö lög í útför móður minnar.“ Síðan eiga þau hjónin sumarbústað
þar sem þau njóta þess að vera úti í náttúrunni með fjölskyldu og vinum.
FJÖLSKYLDA Eiginkona Marinós er Sonja Kristín Sverrisdóttir, f. 15.2.
1970. Börn þeirra eru: Kristján Jökull, nemi í FG, f. 2002, og Laufey Kristín,
nemandi í MR, f. 2004. Stjúpdóttir Marinós er Elísa Ósk Gísladóttir, f. 1991.
Foreldrar Marinós eru Magnús Blöndal Jóhannsson tónskáld, f. 19.9. 1925 á
Skálum á Langanesi, d. 1.1. 2005, og Kristín Sveinbjörnsdóttir, var með
Óskalög sjúklinga í mörg ár í útvarpinu, f. 13.10. 1933, d. 9.6. 2019.
Marinó Már Magnússon
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Frestaðu ákvörðun þar til þú er al-
veg viss um hana. Taktu stjórnina í þínar
hendur í stað þess að láta tilviljanir ráða
ferð.
20. apríl - 20. maí +
Naut Hugmyndirnar streyma til þín svo þú
átt í vandræðum með að skrá þær helstu
hjá þér. Gerðu þitt til að efla slíkan áhuga
hjá sjálfum þér og öðrum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Reyndu af fremsta megni að
forðast að vera þrjóskur í deilum við ein-
hvern nákominn þér. Farðu vel með sann-
færingarkraftinn sem þú býrð yfir.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Ástin nær fram bæði því besta og
því versta í þér núna. Settu í forgang það
sem skiptir þig öllu máli.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Maður er manns gaman. Reyndu að
ferðast um, fara í bókabúðir, söfn, skoða
sveitina og markverða staði.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú gætir fengið spennandi boð um
að fara út á lífið eða á íþróttaviðburð í dag.
Sumpart telur hann niður að næsta fríi –
sumpart er fríið þegar hafið.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Enginn er alvitur og þú eins og aðrir
verður að viðurkenna að stundum hefur þú
á röngu að standa. Kannski færðu óvænt
framlag eða aðstöðu til þess að sinna
starfi þínu betur.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú verður að standa fast á
þínum rétti, hver svo sem að þér sækir.
Láttu efasemdaraddir lönd og leið og haltu
þínu striki.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er engan veginn það sama
hvers virði þú ert persónulega og svo fjár-
hagslega. Ekki hræðast að þú vitir ekki
hvað skuli gera næst.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Ef hungur er mannlegt er guð-
dómlegt að vera mettur. Leyfðu þeim það,
því sjálfur muntu bera nóg úr býtum fyrir
þig og þína og vel það.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Hlutirnir gerast hraðar í kring-
um þig en þér finnst þægilegt. Aðalatriðið
er að þú sért frjáls að því að vera þú sjálf-
ur.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Vinir og vandamenn vilja ná athygli
þinni en það er ekki auðvelt. Reyndu um-
fram allt að leysa það á mýkri nótunum.
starfinu lausu og var heima nokkur
ár. „Ég entist nú ekki lengi róleg
og fór í meistaranám í viðskipta-
fræði og lauk því 2010. Svo er mér
boðin mín gamla staða hjá Iceland-
air aftur, og ég er þar til ársins
2017, þegar við hjónin ákváðum að
flytja til Spánar með yngsta son-
inn. Miðborg Alecante er algjör-
lega falin perla, og borgin er gífur-
fæddist þriðja barnið.
Þrítug byrjaði Una að hlaupa.
„Ég var að hætta að reykja og fór
að hlaupa meðan kartöflurnar suðu
í pottinum, meira af geðvonsku en
nokkru öðru. Ég var eiginlega bara
þessi gella sem reykti og drakk
kók og hló að öllu þessu hlaupa-
fólki. En hlaupin læddust inn í líf
mitt og urðu mitt gæfuspor. Ég er
ástríðuhlaupari og skanna alla
staði sem ég kem á með því að
fara út að hlaupa.“ Hún skráði sig
í Reykjavíkurmaraþonið árið 2004
og hljóp þar 10 km og fyrsta mara-
þonið hljóp hún í Kaupmannahöfn
2009 og hefur nú hlaupið 16 mara-
þon og þar af eru þrjú últramara-
þon. Í gegnum hlaupin fór hún líka
að stunda jóga, fyrst til að teygja
og ná góðri öndun sem myndi nýt-
ast í hlaupunum, en síðar dýpkaði
sú ástundun og varð að miklu
breytingarafli í hennar lífi.
Una sótti um starfsmannastjóra-
stöðu hjá Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja 2002 og fékk starfið og
árið 2004 fór hún að vinna sem
mannauðsstjóri hjá Icelandair og
tveimur árum síðar eignast hún
fjórða barnið. Í kjölfarið sagði hún
S
teinunn Una Sigurð-
ardóttir fæddist 5. ágúst
1971 í Reykjavík en ólst
upp í Njarðvíkunum í
Reykjanesbæ. „Það dýr-
mætasta sem ég tek með mér úr
æskunni eru vinkonurnar. Við er-
um níu saman í saumaklúbbi og ég
er sú sjötta í hópnum sem verð
fimmtug á árinu.“ Þegar hún var
10 ára fluttu foreldrar hennar að
Sólheimum í Grímsnesi og voru
þar í tvö ár. „Það hafði mjög mót-
andi áhrif á mig að fara þangað,
bæði sá ég fjölbreytileika mannlífs-
ins og ekki síður möguleika
einstaklingsins til að hafa áhrif.
Mamma sagði mér frá Sesselju og
að hún hefði ein stofnað Sólheima
því hún hefði haft svo mikla
ástríðu fyrir velferð fatlaðs fólks
og að búa til gott samfélag.“
Steinunn Una, sem er alltaf köll-
uð Una, kynntist eiginmanni sín-
um, Sigurði, snemma og þau voru
byrjuð saman þegar hún var 17
ára. Þau voru að flýta sér og
keyptu blokkaríbúð og Una hætti í
skólanum og var búin að eignast
fyrsta barnið 19 ára. Þegar hún
ætlaði aftur í skólann varð hún
ófrísk aftur. „Þegar vinkonurnar
voru að fara til Mexíkó í
útskriftarferð var ég bara með
barnið á handleggnum að borga af
blokkaríbúðinni.“
Þegar hún var 23 ára ákvað hún
að áður en hún yrði þrítug yrði
hún búin að mennta sig, eignast
þriðja barnið og giftast Sigurði sín-
um. „Þetta var ekkert einfalt en
með góðri hjálp mömmu, sem bjó í
næstu götu, tókst þetta og ég
þakka henni fyrir að hafa gert mér
kleift að ná að hafa gaman af
þessu öllu saman.“
Það var mikið að gera þessi ár,
en hún náði öllum markmiðunum
þótt fjölskyldan seldi íbúðina og
keypti hús á tímabilinu. Hún vann
með náminu öll árin og lauk stúd-
entsprófi 1996 og fór þá beint í við-
skiptafræði í HÍ og vann sem flug-
freyja hjá Icelandair meðfram
náminu og Sigurður alltaf á sjón-
um. Hún útskrifaðist úr viðskipta-
fræðinni um jólin 2000 og 3. janúar
lega skemmtileg.“ Una fór í jóga-
kennaranám á spænsku sem var
strembið út af tungumálinu en
gekk vel. Hún vildi læra meira og
fór til Barcelona á námskeið og þá
var verið að kynna nám á Indlandi
sem hún rétt náði að fara í áður en
Covid skall á. „Ég er náttúrlega
ofboðslega vel gift og maðurinn
minn hefur alltaf verið minn
stærsti stuðningsmaður alla tíð.
Hann og mamma.“
Hún segir að námið á Indlandi
hafi verið magnað. „Það fer í gang
ákveðið ferli. Fyrst var ég spennt,
svo þreytt og með verki og þegar
ég var alveg að gefast upp, þá
gerðist eitthvað og viðhorf mitt til
lífsins breyttist. Mig langaði að
skilja heiminn eftir betri þegar ég
færi og sá allt í öðru ljósi.“ Hún
segir að foreldrar hennar hafi allt-
af verið frekar andlega sinnuð og
að hún hafi verið skírð eftir lækna-
miðlinum Unu í Garði, en faðir
hennar var mjög tengdur henni
sem barn í Garðinum og líklega
hafi blundað í henni áhugi á and-
legum málum frá æsku.
Þegar heim var komið ákvað
Una að breyta alveg til og fara í
Steinunn Una Sigurðardóttir lífskúnstner, hlaupari og jógakennari – 50 ára
Fjölskyldan Í fermingu Halldórs Loga. Frá vinstri: Sigurður Freyr, Una,
Hafþór Smári á milli bræðranna, Sigurður, Svala Dís og Halldór Logi.
Það má alveg hlaupa aðra leið
New York Ástríðuhlauparinn Una
að ljúka maraþoni í New York 2017.
Indland Una í Ashram jóganáminu í
Indlandi í febrúar 2020.
Til hamingju með daginn