Morgunblaðið - 05.08.2021, Side 28

Morgunblaðið - 05.08.2021, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021 Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Útgerðarfélag Reykjavíkur hf. (ÚR) hefur fest kaup á frystitog- aranum Tasermiut sem var áður í eigu Arctic Prime Fisheries á Grænlandi. Arctic Prime fisheries er að hluta til í eigu Brims og ÚR sem eiga hvor sinn 16,5 prósent hlutinn í grænlensku útgerðinni. Skipið sem legið hefur undan- farna daga við bryggju á Grand- anum hefur fengið nýtt nafn og heit- ir nú Sólborg RE-27. Fyrrum Grænlendingar ÚR hefur áður gert út tvö skip með þessu nafni með góðum ár- angri, nú síðast línu- og netabát sem smíðaður var í Karstensens Skibs- værft í Skagen í Danmörku árið 1988, en hafði verið lagt í nokkurn tíma. Hún var sömuleiðis græn- lenskt fiskiskip áður en hún kom til Íslands. Nýja Sólborg er 75,9 metrar að lengd og um 2.550 brúttótonn. Skipið var byggt í Noregi árið 1988 fyrir Grænland og er í efsta ís- klassa sem fiskiskip eru byggð fyrir. „Þetta er nánast ísbrjótur“, segir Runólfur V. Guðmundssonar, fram- kvæmdastjóri ÚR, í samtali við 200 mílur um skipið. „Þetta er gríðarlega öflugt og gott skip sem getur siglt í alveg eins meters þykkum ís leikandi,“ segir Runólfur. Endurbætur standa til Að sögn Runólfs er stefnt að því að fara fljótlega í breytingar og end- urnýjun á vinnsludekki. Til stendur að setja upp fullkom- inn vinnslubúnað til að framleiða fyrsta flokks afturðir fyrir erlenda markaði. Spurður hvort fyrir liggi hvers konar búnað á að kaupa um borð í skipið segir Runólfur svo ekki vera. „Það er núna í skoðun hjá okkur,“ segir Runólfur. Hann segir fjárfestingu ÚR við kaup á skipinu og búnaði í það verða um þrjá milljarða þegar upp verður staðið. Veiða á Barentshafi Sólborg sækja aflaheimildir í Bar- entshaf og mun helst veiða ufsa og karfa. „Við erum að auka reksturinn. Við eigum aflaheimildir fyrir annað skip og ætlum að nýta þær betur,“ að- spurður hver þörfin væri fyrir nýju öflugu skipi innan reksturs ÚR. Ný áhöfn „Ný áhöfn verður um borð í Sól- borg, í raun allt nýir menn sem við erum að ráða. 24 í hvorri áhöfn og tvær áhafnir sem róa svo alls verða 48 manns með atvinnu af skipinu. Svo að það er gert ráð fyrir að menn rói einn og einn,“ segir Runólfur. Hann segist gríðarlega spenntur fyrir komandi tímum og fyrir að koma nýju skipi á sjó. „Þetta er stórt og öflug skip og mun ger góða hluti,“ segir Runólfur. Ráðnir hafa verið tveir skip- stjórar á skipið; Óli Grétar Skarp- héðinsson og Jón Frímann Eíríks- son. Óli Grétar sem er 43 ára verður skipstjóri í fyrstu veiðiferð skipsins. Óli Grétar er fæddur og uppalinn Ólafsfirðingur. Í dag er hann búsettur á Eskifirð. Óli byrjaði á sjó 1997 og þá á Kleifa- bergi og var þar þangað til um haustið 2007 þegar hann fór í land til að læra rafvirkjun. Óli Grétar sneri alfarið aftur á Kleifabergið í árs- byrjun 2011, stuttu seinna skráði Óli sig í nám í skipstjórn sem hann lauk með glæsulegum árangri. Óli Grétar hefur síðan 2018 verið yfirstýrimaður á skipum ÚR. Jón Frímann Eiríksson sem er 45 ára er fæddur og uppalinn Akurnes- ingur en er í dag búsettur í Borgar- nesi. Jón Frímann hóf sjómennskuna 1994 á skipum Haraldar Böðvars- sonar og Co ehf. og hann fór í stýri- mannaskólann 1997 til 1999. Jón Fríman var stýrimaður og afleysing- arskipstjóri hjá Guðmundi Runófs- syni hf. frá 2000 og til 2016. Jón Frí- man hóf störf hjá Brimi 2016 til að fara á nýsmíðina Akurey AK þar sem hann var stýrimaður og afleys- ingarskipstjóri. Heldur úr höfn í dag Gamla Sólborg, sem ekki hefur verið á veiðum í nokkrun tíma, hefur verið afskráð í íslenskri skipaskrá og er á sölu. Gert er ráð fyrir að skipið sigli úr höfn í sinn fyrsta túr undir nýjum eiganda í dag. Grænlenskur togari verður ný Sólborg - ÚR kaupir af Arctic Prime Fisheries - Styrkt að framan - „Nánast ísbrjótur“ - Endurnýjun á vinnslubúnaði stendur til - Veiðir ufsa og karfa í Barentshafi - Fara í fyrsta túr frá Íslandi í dag Morgunblaðið/Unnur Karen Nýr Frystitogari Útgerðafélags Reykjavíkur hefur hlotið nafnið Sólborg RE-7. Hún heldur í sinn fyrsta túr í dag. Ljósmynd/Siddi Gamla Nýja Sólborg við bryggju niðri við Granda. Sést glitta í gömlu Sól- borg lengst til vinstri. Þær voru báðar áður grænlensk fiskiskip. Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is LÉTTU ÞÉR LÍFIÐ Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf. Fjölbreytt úrval göngugrinda sem auka öryggi og tækifæri til hreyfingar og útivistar Verð frá 39.800,- Afurðaverð á markaði 3. ágúst 2021, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 417,03 Þorskur, slægður 427,12 Ýsa, óslægð 280,61 Ýsa, slægð 78,70 Ufsi, óslægður 112,22 Ufsi, slægður 144,42 Gullkarfi 516,18 Blálanga, óslægð 25,00 Blálanga, slægð 119,05 Langa, óslægð 283,46 Langa, slægð 190,09 Keila, óslægð 50,12 Keila, slægð 49,04 Steinbítur, óslægður 303,96 Steinbítur, slægður 318,62 Skötuselur, slægður 769,96 Grálúða, slægð 460,43 Skarkoli, óslægður 17,00 Skarkoli, slægður 568,27 Þykkvalúra, slægð 320,21 Flök/bleikja 1.501,50 Flök/regnbogasilungur 3.176,00 Gellur oslaegt 953,50 Hlýri, óslægður 307,00 Hlýri, slægður 333,52 Lúða, slægð 526,04 Lýsa, óslægð 12,42 Skata, slægð 40,00 Undirmálsýsa, óslægð 137,08 Undirmálsýsa, slægð 134,13 Undirmálsþorskur, óslægður 199,55 Undirmálsþorskur, slægður 190,78 Undirmálsþorskur, slægður 172,00 Verðmæti vöruútflutnings í júní 2021 jókst um 11,9 milljarða króna, eða um 25,5%, frá júní 2020, úr 46,8 milljörðum króna í 58,7 milljarða. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 4,1 milljarð, eða um 18,2% og munar þar mest um aukið verð- mæti uppsjávarfisks, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá júlí 2020 til júní 2021, var 668,5 milljarðar króna og hækkaði um 63,4 millj- arða króna miðað við sama tímabil ári fyrr, eða um 10,5% á gengi hvors árs. Sjávarafurðir voru 43,4% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 11,5% á milli tólf mánaða tíma- bila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 8,3 milljarða, eða 31,5%, á sama tímabili og var útflutningur fiskeldisafurða 5,2% af heildar- útflutningi. Sjávarafurðir 43% af vöruútflutningi Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Uppsjávarfiskur Gott verð fékkst í fyrra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.