Morgunblaðið - 05.08.2021, Side 53

Morgunblaðið - 05.08.2021, Side 53
DÆGRADVÖL 53 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 2021 Hægðu á þér! Umferðarskilti af öllum stærðum og gerðum. Bannmerki Viðvörunarmerki Bílastæðamerki Einkastæði ATHUGIÐ! Bílastæði eingöngu ætluð starfsmönnum og gestum skólanna frá 07:30 - 17:00 Óviðkomandi bílar verða fjarlægðir Skilti BSV S:5514000 Boðmerki Xprent ehf. | Sundaborg 3 | 104 Reykjavík | 555 65 00 | xprent@xprent.is „HJÁ HVERJUM ÞARF ÉG AÐ SOFA TIL AÐ FÁ SAMBAND VIÐ ÚTLÖND?“ „ÉG FRÉTTI AÐ ÞÚ VÆRIR AÐ HALDA ANSI HREINT SPENNANDI FYRIRLESTRA UM LÍKAMSRÆKT.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að borga reikninginn. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann „GERÐU EITTHVAÐ Í DAG SEM KEMUR SÉR VEL FYRIR ÞIG SEINNA“ LÍFSLÖGMÁL TIL AÐ FARA EFTIR ÉG FALDI TÓLF KLEINU- HRINGI UNDIR RÚMI ÞÚ HEFUR TÍU SEKÚNDUR TIL AÐ GEFAST UPP! HRÓLFUR, ÞAÐ ER EKKI VITURLEGT AÐ FARAOF GEYST Í HLUTINA! HMM … ÉG ÞARF AÐ MELTA ÞETTA! OK, VIÐ KOMUM AFTUR EFTIR HÁDEGISMAT! SKILNAÐAR- LÖGFRÆÐINGAR annan geira og er núna að fara í tveggja ára hjúkrunarfræðinám sem er hannað fyrir fólk með há- skólagráðu. Svo er hún að kenna jóga í Orkustöðinni í Reykjanesbæ. „Svo prjóna ég og les mjög mikið, enda helst hvern dag á því að kíkja í bók. Svo er maður líka alveg að hamast í golfi, á skíðum og í fjall- göngum.“ Fjölskylda Eiginmaður Steinunnar er Sig- urður Haraldsson sjómaður, f. 20.3. 1970. Foreldrar hans voru hjónin Halldóra Þorsteinsdóttir, f. 23.4. 1934, d. 10.12. 2010, og Haraldur H. Ólafsson, f. 12.3. 1936, d. 6.10. 2019. Þau bjuggu í Reykjanesbæ. Börn Steinunnar og Sigurðar eru: 1) Svala Dís, flugmaður í Reykja- vík, f. 29.4. 1991, maki Brynjar Guðjónsson og eiga þau börnin Unu, f. 2016, og Stellu, f. 2020. 2) Sigurður Freyr, flugvirki í Þýska- landi, f. 27.7. 1994; 3) Halldór Logi, sjómaður í Reykjanesbæ, f. 3.1. 2001, og 4) Hafþór Smári, nemi í Reykjavík, f. 10.10. 2006. Systkini Steinunnar eru Erla Svava, hjúkrunarfræðingur í Reykjanesbæ, f. 20.8. 1977; Ásta María, f. 12.2. 1967, d. 29.4. 1972, og óskírð, f. 10.9. 1965, d. 11.9. 1965. Foreldrar Steinunnar eru hjónin Svala Svavarsdóttir leikskólakenn- ari, f. 5.8 1944 í Reykjavík, og Sig- urður Vilhjálmsson leigubílstjóri og kafari, f. 15.10 1939, d. 12.8. 2019. Þau bjuggu í Reykjanesbæ, þar sem Svala býr enn. Steinunn Una Sigurðardóttir Sæunn Kristmundsdóttir húsfreyja á Harastöðum, Breiðabólstaðarsókn, Hún. og síðar í Rvk. Þorlákur Jón Jónsson bóndi og organisti í Saurbæ,Vatnsnesi, V.-Hún. og bóndi á Harastöðum, Breiðabólstaðarsókn, Hún. Ásta Þorláksdóttir húsfreyja í Reykjavík Svavar Árnason vélstjóri og sjómaður í Reykjavík Ástríður Svala Svavarsdóttir leikskólakennari í Reykjanesbæ Katrín Lára Stefánsdóttir húsfreyja á Seyðisfirði, síðast búsett í Reykjavík Árni Sigurðsson bátsformaður á Seyðisfirði, N-Múl. Stefanía Steinunn Stefánsdóttir húsfreyja á Hellissandi, Ingjaldshólssókn, Snæf. Sigurður Magnús Jónatansson sjómaður á Hellissandi, Ingjaldshólssókn, Snæf. Steinunn Sigurðardóttir húsfreyja á Brekku í Gerðahreppi Vilhjálmur Kristján Halldórsson bifreiðastjóri og leigubílstjóri í Keflavík, síðast. búsettur á Brekku í Gerðahreppi Kristjana Pálína Kristjánsdóttir húsfreyja í Vörum, Gerðahr. Halldór Þorsteinsson bátsformaður í Vörum og útvegsbóndi, Útskálasókn, Gull., síðast bús. í Gerðahreppi Úr frændgarði Steinunnar Unu Sigurðardóttur Sigurður Stefán Vilhjálmsson sjómaður, leigubílstjóri og kafari í Reykjanesbæ Guðni Ágústsson hefur fest kaup á íbúð í nýja miðbænum á Sel- fossi en hann hefur um skeið búið syðra í Reykjavík. Þegar ég sagði karlinum á Laugaveginum frá þessu kvað hann: Ekki er að sjá að elli hamli né annað sem þarf hann við að glíma. Austur flytur Guðni gamli, gengur til móts við nýja tíma. Helgi R. Einarsson hefur orð á því að „ennþá detti manni dæma- laus vitleysan í hug“: Sjálfsblekking Ég fær er í flestan sjó sagði Friðbjörn og skellihló er útbyrðis datt, sem enda’ á allt batt því aumingja karlinn hann dó. Skynsemi Á liði sínu að liggja er lítil fyrirhyggja sagði hún Sigga Rún, en sælla að gefa og þiggja. Kosningar eru að nálgast og við því að búast að pólitíkin setji svip á kveðskap hagyrðinga. Dagbjartur Dagbjartsson rifjar upp á Boðn- armiði og segir ort fyrir einhverjar kosningar, – muni ekki hvaða enda skipti það ekki höfuðmáli: Myrkvast hugir, mengast ból, margir væta kinnar. Hægt til viðar sígur sól Samfylkingarinnar. Þessar „Fluguvísur“ (afhending) eftir Skúla Pálsson eru vel kveðnar og skemmtilegar: Hunangsfluga hugar vel að hagablómum, kemur ekki að kofa tómum. Randaflugan röska milli runna puðar, oft við vinnu sína suðar. Fjólubláa bóndarósin blíða angar, humluna í hunang langar. Lúpínan hin litaskæra laðar flugur, harðduglegar hunangssugur. Fagurgulur fífill til sín flugu dregur, henni finnst hann hunangslegur. Tryggvi Jónsson lítur yfir lífs- hlaup sitt: Ævi sína enginn veit öll við siglum veginn. Þegar ég ungur lífið leit lágu sporin réttum megin. Ármann Þorgrímsson spyr sjálf- an sig: „Til hvers að halda í líf sem hætt er að vera til ?“ Vit og trú þar vega salt vandi er því að svara en þegar hylur þokan allt þá er best að fara. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Til móts við nýja tíma

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.