Morgunblaðið - 05.08.2021, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 05.08.2021, Blaðsíða 64
go crazy Fimmtudag - mánudags útsölulok 9. ÁGÚST 5. - 9. ÁGÚST aföllumvörum * 25% Sparadu- *20% afsláttur af sérpöntunum. Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði. ILVA Korputorgi Lau. og sun. 12-18 virkir dagar 11-18:30 ILVA Akureyri Lau. 10-17 Sun. 13-17 virkir dagar 11-18 s: 522 4500 - www.ILVA.is Tónlistarhátíðin Seigla stendur yf- ir í Reykjavík þessa dagana undir listrænni stjórn Ernu Völu Arnardóttur píanóleikara sem stofnaði til hátíð- arinnar í sam- starfi við Íslenska Schumannfélagið. Tónleikar hátíðarinnar eru haldnir í Hörpu og Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Á tónleikum í Flóa í Hörpu í dag, fimmtudag, klukkan 17 koma fram þær Erna Vala og Hlín Péturs- dóttir Behrens sópransöngkona og flytja Kinder- szenen Op. 15 eftir Robert Schumann, safn 13 stuttra sönglaga. Þá verða tvennir tónleikar í Listasafni Sig- urjóns á morgun; „Hjónabandssæla“ kl. 12 og „Eyrna- konfekt“ kl. 20. Barnasenur, Hjónabandssæla og Eyrnakonfekt á hátíðinni Seiglu FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 217. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. „Þetta er ekki lengur í okkar höndum og við þurfum að treysta á önnur lið, að þau taki stig af Val. En það er náttúrlega ekki nóg ef við erum síðan sjálfar að fara að klúðra einhverjum leikjum. Við þurfum bara að vinna restina af leikjunum og sjá hvað gerist,“ segir Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, leikmaður Breiðabliks, meðal annars í viðtali í blaðinu í dag, en hún var besti leik- maður júlímánaðar í Pepsi Max-deildinni í knattspyrnu að mati Morgunblaðsins. Lið júlímánaðar hjá Morg- unblaðinu er jafnframt birt í blaðinu. » 54 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var besti leikmaður deildarinnar í júlí ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Magnús Harðarson skipstjóri stóð í brúnni þegar Lagarfoss, skip Eim- skips, kom í Sundahöfn úr Ameríku- siglingu seint á mánudagskvöld. Skipið rann blítt og létt inn Sundin og allt var sem vera bar, nema hvað þetta var síðasta ferð Magnúsar, sem þarna lauk 50 ára sjómannsferli sínum. „Vissulega var tilfinningin í þessari lokaferð sérstök og margt fór um hugann. Við vorum heppnir með veður í þessum túr, líkt mörg- um öðrum. Sumt breytist ekki, til dæmis hve tignarlegt er að sjá fjöllin rísa úr sjó þegar landið nálgast,“ segir skipstjórinn fyrrverandi. Vissi fljótt hvað hann vildi Magnús fór fyrst á sjó í júní 1971 og var þá um skamman tíma messa- gutti á varðskipum; Óðni og síðar Þór. Þar fann hann sína fjöl, ef svo mætti segja. „Sjómennskan heillaði mig strax í æsku og ég vissi fljótt hvað ég vildi. Hörður Þórhallsson, faðir minn, var lengi til sjós og hafnsögumaður. Afi var líka á sjó svo þetta var í blóðinu. Ég var að vinna á eyrinni í maí 1972 þegar ég frétti að í áhöfn Gullfoss þyrfti þilfarsdreng. Ég fór því um borð og talaði við Þór Elísson afleys- ingaskipstjóra sem réð mig á staðn- um. Teningnum var kastað, örlögin ráðin og nú er ég kominn aftur í land. Þetta hafa verið góð 50 ár,“ segir Magnús. Gullfoss var glæsiskip, sem sigldi samkvæmt áætlun með farþega milli Reykjavíkur, Þórshafnar í Fær- eyjum, Leith í Skotlandi og Kaup- mannahafnar. Skipið var selt árið 1973 og þá færðist Magnús í aðra áhöfn. Hefur hann á löngum ferli reynt flest sem farmaður og verið skipstjóri sl. 20 ár eða svo. Óteljandi ferðir á Atlantshafi Mörg undanfarin ár hefur Magn- ús verið skipstjóri á Lagarfossi, sem er 10.119 tonna skip: gott og glæsi- legt. Fer vel á sjó; en með réttri lest- un á farmi má fínstilla skipið; hreyf- ingar þess og hvernig það tekur öldurnar. „Ferðirnar hér yfir Atlantshafið milli landa eru óteljandi og viðkomu- staðirnir kunnuglegir. Þar get ég nefnt Þórshöfn; Færeyingar eru gott fólk og duglegir þegar losa þarf og lesta skipin á skömmum tíma. Mörg síðustu árin var ég með með Lagarfoss sem sigldi frá Reykjavík til Vestmannaeyja, Þórshafnar, Immingham í Bretlandi og Rotter- dam í Hollandi. Þetta er gula leiðin svonefnda. Rétt í lokin var ég á grænu leiðinni eins og Ameríkusigl- ingarnar eru kallaðar,“ segir Magn- ús sem viðurkennir að oft sé skip- stjórastarfið krefjandi, svo sem þegar eitthvað sé að veðri og sjórinn úfinn. „Skipið og farmurinn eru millj- arða króna verðmæti og ekkert má fara úrskeiðis, rekast í eða verða fyrir hnjaski. Sjálfur hef ég verið heppinn að þessu leyti, ferillinn ver- ið farsæll og ég hef alltaf náð heill í höfn,“ segir Magnús sem taldi rétt að koma í land þegar 50 árum á sjó væri náð. Að mörgu skemmtilegu sé að hverfa og nú á úthallandi sumri sé gaman að ferðast um landið. Í höfn eftir hálfa öld - Magnús lýkur ferli - Þilfarsdrengurinn varð skipstjóri - Tignarlegt að sjá fjöllin rísa úr hafi þegar landið nálgast Ljósmynd/Hilmar Snorrason Skipstjóri Magnús Harðarson við stjórnvölinn á Lagarfossi þegar hann kom inn til hafnar í Reykjavík sl. mánudagskvöld eftir Ameríkusiglingu. Ljósmynd/Hilmar Snorrason Sigling Vel lestað skip, „færandi varninginn heim“ eins og skáldið orti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.