Morgunblaðið - 04.09.2021, Page 2

Morgunblaðið - 04.09.2021, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik máfinnaávefokkar NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 449.400kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einn dag TILBOÐÁGARÐHÚSUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Útför Styrmis Gunnarssonar, rit- stjóra Morgunblaðsins til áratuga, fór fram í Hallgrímskirkju í gær. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir jarðsöng. Fjöldi tónlistarmanna lék tónlist við útförina, þeirra á meðal Víkingur Heiðar Ólafsson píanó- leikari, Harpa Ósk Björnsdóttir sópran, Helga Bryndís Magnús- dóttir píanóleikari, Hanna Dóra Sturludóttir messósópran og Lára Bryndís Eggertsdóttir orgelleikari. Kórinn Schola Cantorum undir stjórn Steinars Loga Helgasonar söng við útförina. Irma Sjöfn flutti minningarorð ásamt þeim Héðni Unnsteinssyni og Fríðu Björk Ingvarsdóttur. Kistuna báru úr kirkju (talið frá fremsta manni til vinstri): Ágúst Páll Haraldsson, Hrafnhildur Huld Smáradóttir, Styrmir Hjalti Har- aldsson, Grímúlfur Finnbogason Ginter, Corto Jabali, Halla Gunn- arsdóttir, Ómar Jabali og Thurayn Harri Hönnuson Thant Myint-U. Styrmir fæddist í Reykjavík hinn 27. mars 1938. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi 20. ágúst síðastlið- inn. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Styrmir Gunnars- son jarð- sunginn Frá Hallgrímskirkju Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir jarðsöng. Á meðfylgjandi mynd má sjá moldun fara fram. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Reykjavíkurborg hefur slegist við okkur í tvö og hálft ár. Þetta er vald- níðsla á hæsta stigi. Það er gjá á milli framkvæmdadeildar og skipulagsyf- irvalda í borginni. Þegar búið er að gera skipulag og kynna kemur fram- kvæmdadeildin og gerir það sem henni dettur í hug,“ sagði Hilmar Páll Jóhannesson hjá Loftkastalan- um. Fyrirtækið keypti þrjár fasteignir og byggingarrétt í Gufunesi árið 2018. Um var að ræða verksmiðju- hús sem áður hýstu hluta Áburðar- verksmiðjunnar. Gólfkóti húsanna (hæð gólfs yfir sjó) er mjög svipaður eða frá 8,36-8,4 metrar. Lóðin er um 1.800 fermetrar. Félagið vinnur að nýsmíði, leikmyndagerð, nýsköpun, hönnun og þróun á búnaði fyrir end- urvinnslu á frauðplasti. „Við ætluðum að setja upp leik- myndaverkstæði og lítið stúdíó á lóð- inni en við höfum ekki getað haldið áfram þeim framkvæmdum því það er ekki enn búið að gefa út réttan hæðarkóta. Það kemur ekki til greina að hafa 60 sentimetra hæð- armun á gólfinu inni í húsunum,“ sagði Hilmar. Hann segir að deiliskipulagið geri ráð fyrir því að lóðin sé slétt en borg- in hafi skipt henni upp í misháa hluta. Baklóðin var þannig höfð 60 sentimetrum hærri en framlóðin. Það er engan veginn í samræmi við vilja Loftkastalans eða hagsmuni því þau vilja hafa gólfin í húsunum sem næst í sömu hæð. Þá bendir Loft- kastalinn á að samkvæmt sam- þykktu deiliskipulagi sé lóðin slétt en ekki stölluð eins og borgin hafi ákveðið einhliða. Fyrirspurn lögð fram Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram fyrirspurn um málið á fundi skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar 1. september. Erindinu fylgdi yfirlýsing frá Orra Steinarssyni, arkitekt hjá jvantspij- ker & partners í Rotterdam. Hann vann deiliskipulag fyrir kvikmynda- þorp í Gufunesi fyrir borgina 2016- 2019. Deiliskipulagið var auglýst og staðfest. Það gerði ráð fyrir bland- aðri byggð með áherslum á skapandi iðnað og hagkvæmar íbúðir. „Rekstrarforsendur Loftkastal- ans voru frá upphafi skýrar: að geta rennt stórum hlutum hindrunarlaust á milli húsa. Hvað Loftkastalann varðar var vel upplýst af þeirra hálfu að til stóð að útbúa verkstæði á lóð þeirra, m.a. fyrir framleiðslu á og flutning á stærri leikmyndum og byggingarefni. Þá lét Loftkastalinn hanna stækkun á húsum sem fyrir voru og var ráðgert að svipuð gólf- hæð yrði á öllum fasteignum lóðar- innar,“ segir m.a. í yfirlýsingunni. Hæðarkótarnir eru rangir Einnig skrifar Orri að eitthvað hafi farið úrskeiðis því fyrirhugaðir hæðarkótar í landinu umhverfis lóð Loftkastalans séu ekki í samræmi við þessar rekstrarforsendur, né heldur í samræmi við samráðsfundi eða kynningar sem haldnar voru með Loftkastalanum. Þar segir einn- ig að hlutaðeigandi aðilar hafi kvart- að yfir þessu lengi vel og því sé mik- ilvægt að brugðist verði við mistökunum sem allra fyrst. „Þetta er valdníðsla á hæsta stigi“ - Loftkastalinn er ekki sáttur við framkomu Reykjavíkurborgar - Lóð í Gufunesi breytt þvert gegn vilja eigandans - Bygging leikmyndaverkstæðis og stúdíós hefur tafist vegna afstöðu borgarinnar Morgunblaðið/Eggert Gufunes Breytingarnar samræm- ast ekki deiliskipulagi svæðisins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.