Morgunblaðið - 04.09.2021, Side 4

Morgunblaðið - 04.09.2021, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 Aðventufegurð við Bodensee sp ör eh f. Hrífandi aðventuferð þar sem glæstar borgir, litlir bæir og spennandi aðventumarkaðir skapa notalega jólastemningu. Fyrri hluta ferðar er dvalið í Freiburg sem er yndisleg á þessum árstíma og býður upp á fallega jólamarkaði. Seinni hluta ferðar verður dvalið við Bodensee vatn í Þýskalandi og förum við m.a. til miðaldaborgarinnar Ravensburg og til hins einstaklega jólalega bæjar Lindau. 27. nóvember - 4. desember Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 209.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! „Vonandi fáum við sem fyrst aðgang að bóluefnum sem sérstaklega hafa verið hönnuð gegn þeim afbrigðum sem mest eru í gangi hverju sinni, en þau ættu að verða aðgengi- leg í síðasta lagi fyrir lok þessa árs,“ segir Björn Rúnar Lúðvíks- son, yfirlæknir ónæmisfræði- deildar Landspít- alans, í grein sinni í Læknablaðinu. Þá segir Björn ótrúlegt að þau bóluefni sem komin eru á markað virki gegn Delta-afbrigði kórónuveir- unnar þar sem það framleiði margvís- legrar sameindir til að koma í veg fyrir ræsingu ónæmissvars og einnig til að bæla beint það ónæmissvar sem þó á sér stað. „Öll þau bóluefni sem nú eru á markaði voru hönnuð með upphafs- afbrigði veirunnar í huga og er það í raun ótrúlegt að þau skuli einnig virka gegn verulega umbreyttu Delta-formi hennar,“ segir í greininni. Álíka smitandi og hlaupabóla Í greininni kemur einnig fram að kórónuveiran umbreyti sér með tíðum stökkbreytingum með þeim afleiðing- um að ný afbrigði hennar, eins og Delta, fara af stað en nú hafa fjögur af- brigði hennar verið skilgreind sem hættuleg og fjögur önnur sem við- sjárverð. „Nýlega birti Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna gögn sem benda til þess að Delta-afbrigði veirunnar sé meira smitandi en inflúensa, MERS, SARS og ebóla og álíka smitandi og hlaupabóla,“ segir í greininni. Þá segir Björn árangur bólusetn- inga ótvíræðan þar sem algengi smita meðal óbólusettra sé um 2,6 sinnum hærra en meðal bólusettra 16 ára og eldri og nefnir að flestir innlagðra væru 50 ára og eldri og oft með aðra undirliggjandi áhættuþætti sem eru þekktir að því að draga úr áhrifum bólusetninga almennt. 150 125 100 75 50 25 0 júlí ágúst Staðfest smit 7 daga meðaltal H ei m ild :c ov id .is kl .1 1. 0 0 íg æ r 43 ný innan- landssmit greindust sl. sólarhring 2.045 einstaklingar eru í sóttkví Fjöldi innanlands- smita frá 12. júlí 685 eru í skimunarsóttkví776 eru með virkt smit og í einangrun 10 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, enginn á gjörgæslu Ný bóluefni við afbrigðum Covid-19 - Ótrúlegt að bóluefni hafi virkað við Delta-afbrigðinu - Fjögur afbrigði Covid-19 skilgreind hættuleg Björn Rúnar Lúðvíksson „Ég skil að fólk hafi uppi ákveðnar spurningar vegna greiðslu gerenda, en Stígamót styðja þær leiðir sem brotaþolar velja sér til að ná fram réttlæti,“ segir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir talskona Stígamóta. Upplýst var í vikunni að Kolbeinn Sigþórsson knattspyrnumaður að hann hefði greitt þrjár milljónir króna til samtakanna Stígamóta, sem hefðu verið hlut af sáttarferli vegna meints áreitis hans gagnvart Þórhildi Gyðu Arnarsdóttir á skemmtistaðnum B5 haustið 2017. „Ég kannaðist ekki við að hafa áreitt þær eða beitt ofbeldi og neitaði sök. Hegðun mín var hins vegar ekki til fyrirmyndar og baðst ég afsök- unar á henni. Ég iðraðist og tók á því ábyrgð og var tilbúinn að leita sátta Þær höfðu uppi kröfu um afsökunar- beiðni og greiðslu sem ég féllst á,“ segir Kolbeinn í yfirlýsingu nú í vik- unni. Árni Þór Sigmundsson, fv. aðstoð- aryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, lagði í gær orð í belg á Facebook um greiðslu Kolbeins til Stígamóta. „Er eðlilegt að samtök sem hafa barist ötullega fyrir réttindum þolenda, þiggi þrjár milljónir í styrk úr hendi ætlaðs ger- anda?“ segir Árni Þór sem hættur er störfum í lögreglunni. Við styðjum brotaþola Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir segir leiðir þolenda kynferðisbrota til réttlætis séu margar, sérstaklega í samfélagi þar sem réttarkerfið bregst þeim ítrekað. „Við styðjum brotaþola, svo sem ef þeir setja ger- endum mörk og vilja forðast þá. Hluti af réttlætinu getur líka verið að krefja geranda um stuðning við samtök eins og Stígamót,“ segir Steinunn. sbs@mbl.is Greiðsla til Stíga- móta hluti réttlætis Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Árni Þór Sigmundsson Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Staðan núna er einfaldlega sú að myndinni hefur verið frestað,“ segir Leifur B. Dagfinnsson, framleiðandi hjá Truenorth. Ekkert verður af tökum á kvik- myndinni Suddenly sem ráðgerðar voru hér á landi í haust. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum er Truenorth meðal framleiðenda myndarinnar sem átti að skarta Hollywoodstjörnunni Jake Gyl- lenhaal og hinni þekktu bresku leik- konu Vanessu Kirby í aðal- hlutverkum. Leifur segir í samtali við Morgun- blaðið að ekki sé óalgengt í kvik- myndaheiminum að áform um tökur breytist með litlum fyrirvara. Hann segir ennfremur að ekki sé búið að slá verkefnið út af borðinu. „Það er verið að horfa til þess að taka upp þráðinn að nýju á næsta ári og mynda þetta næsta vor.“ Suddenly er byggð á frönsku bók- inni Soudain Seuls eftir Autissier. Til stóð að myndin yrði að mestu leyti tekin upp hér á landi. Tökurnar áttu meðal annars að fara fram á Höfn í Hornafirði og átti að notast við fræga leikmynd sem Baltasar Kormákur lét byggja árið 2009 fyrir vík- ingamynd sem hann ætlaði að gera en hefur aldrei orðið að veruleika. Sam- kvæmt upplýs- ingum blaðsins hafði verið ráðist í endurbætur á leikmyndinni fyrir tökur á Suddenly. Alls voru áformaðir um 50 töku- dagar á myndinni hér á landi. Fjöl- margir úr kvikmyndabransanum höfðu munstrað sig í verkefnið svo ljóst er að þarna er um nokkrar bú- sifjar að ræða fyrir bransann. Greint var frá því í fjölmiðlum í júlí að Gyllenhaal og Kirby hefðu verið hér á landi við undirbúning myndarinnar. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins gekk sam- starf Gyllenhaal og leikstjórans Thomas Bidegain stirðlega og ljóst varð eftir vinnulotu á Höfn í Horna- firði að það gæti ekki gengið. Því hefði verið ákveðið að fresta gerð hennar og leita að nýjum karlleikara í aðalhlutverkið. Leifur vill ekki tjá sig um ástæður þess að tökum var frestað. Tökum á Hollywoodmynd á Höfn í Hornafirði frestað - 50 tökudagar voru áformaðir - Samstarfið gekk ekki Skjáskot/RÚV Víkingaþorp Tökur áttu að fara fram á Höfn í Hornafirði í haust. Leifur Dagfinnsson Jake GyllenhaalVanessa Kirby Landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar var sett í Silfurbergi í Hörpu í gær. Á sama tíma var undirrit- aður samningur um nýsmíði á þremur björgunar- skipum sem er mikilvægt fyrsta skref á þeirri vegferð félagsins að endurnýja öll björgunarskipin í kringum landið. Fulltrúar finnsku skipasmíðastöðvarinnar KEWATEC voru viðstaddir athöfnina ásamt Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra, Áslaugu Örnu Sigur- björnsdóttur dómsmálaráðherra og Sigurði Inga Jó- hannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Á myndinni er einnig Þór Þorsteinsson, formaður Lands- bjargar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Undirrituðu samning um þrjú ný skip

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.