Morgunblaðið - 04.09.2021, Side 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021
Rústirnar á Landnámsýningunni í
Aðalstræti 16 í Reykjavík voru nú í
vikunni hreinsaðar og lagfærðar af
forvörðum. Rústirnar sem fundust
við framkvæmdir árið 2000 eru uppi-
staða sýningarinnar sem var opnuð
árið 2007, sem sýnir vel varðveittan
skála frá landnámi ásamt veggbroti
sem hlaðið var fyrir 874. Forvörslu-
aðferðir fyrir opnun sýningarinnar á
sínum tíma voru flóknar en hafa
dugað vel.
Nokkuð af torfbrotum rúst-
arinnar hafa losnað á síðustu árum,
bæði má þar kenna um tímanum og
fikti forvitinna gesta. Í þeirri vinnu
sem unnin er þessa dagana, er rústin
hreinsuð, laus brot límd niður og að
lokum er rústin vökvuð með kísilefni
sem að bindur torfið til framtíðar.
Við vökvunina verður mikil upp-
gufun etanóls og því hefur sýningin
verið lokuð síðustu daga, en verður
opnuð aftur á morgun, 5. september.
Í starfi síðustu daga var mold-
arveggur, sem fannst við fornleifa-
uppgröft nærri aldamótum, spraut-
aður með efni sem heitir Teos. Efnið
bindur jarðveg og þéttir. Í sýning-
unni eru rústir bæjar, sem öskulög
staðfesta að var byggður fyrir árið
874. Þá hófst landnám Norðmanna á
Íslandi, þegar Ingólfur Arnarson og
Hallveig Fróðadóttir komu fyrst og
byggðu sér bæ í Reykjavík, segja
heimildir. sbs@mbl.is
Ryksuga landnáms-
rústir og forverja
Ljósmynd/Birna María Ásgeirsdóttir
Landnám Ingibjörg Áskelsdóttir forvörður ryksugar rústir landnámsbæj-
arins sem eru einhverjar merkustu fornminjar sem fundist hafa á Íslandi.
- Vökvað er og bundið með kísilefni
HAUSTFAGNAÐUR
FERÐASKRIFSTOFU ELDRI BORGARA
Ferðakynning fyrir 2022
ÁVARP: GUÐNI ÁGÚSTSSON
KVÖLDVERÐUR
Veislustjóri: Gísli Jafetsson
FIMM STJÖRNU ABBA SÝNING
GISTING Í SUPERIOR HERBERGI
MORGUNVERÐUR
HÓTEL GRÍMSBORGUM – SUNNUDAGINN 10. OKTÓBER 2021
VERÐ:
28.900 kr.* á mann*
Netklúbbsfélagar 25.900 kr.* á mann**
*Aukagjald fyrir eins manns herbergi er 11.000 kr.
** Nánar um netklúbbinn á heimasíðu
INNIFALIÐ:
Ferðakynning, kvöldverður, ABBA sýning
Gunnars Þórðarsonar, dans, fimm stjörnu
gisting á Hótel Grímsborgum og morgunverður.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is
eða í símum 783-9300 og 783-9301 Niko ehf. | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Nýjar
haustvörur
„Þjóðhátíð hefur verið stærsta fjár-
öflun ÍBV og það er eiginlega óyf-
irstíganlegt þegar hún bregst tvö ár í
röð,“ sagði Haraldur Pálsson, fram-
kvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags.
Hann segir að í Vestmannaeyjum
búi einungis 4.400 íbúar. „Samt er-
um við með yngri flokka starf í öllum
flokkum karla og kvenna í handbolta
og fótbolta. Við höfum niðurgreitt
æfingagjöldin og mætt á mjög mörg
mót úti um allt land og niðurgreitt
ferðir og annan þátttökukostnað
heimilanna í bænum.
Auk þess höfum við verið með
fjögur lið í efstu deildum karla og
kvenna í handbolta og fótbolta og
verðum það vonandi áfram. Það
fylgir því mikill kostnaður að búa hér
svo langt frá öðrum þegar kemur að
þátttöku í þessum deildum.“
Haraldur sagði að það hefði verið
rætt að draga úr niðurgreiðslum
vegna æfingagjalda og ferðakostn-
aðar. Það mundi koma sér mjög illa
fyrir tekjulágar barnafjölskyldur og
gæti dregið úr fjölda iðkenda. Það
yrði mjög vond niðurstaða að öllu
leyti. Vestmannaeyjabær kom til
móts við félagið í fyrra svo ekki
þurfti að grípa til niðurskurðar þá.
Haraldur kvaðst hafa rætt við
yfirmann almannavarna í Vest-
mannaeyjum og lýst áhyggjum af
áhrifum opnunar landamæranna
fyrr í sumar. Þær áhyggjur voru
taldar ástæðulausar en niðurstaðan
varð samt sú að útihátíðir um versl-
unarmannahelgina voru bannaðar.
Hann kveðst hafa upplýsingar um að
stjórnvöld í Noregi og Svíþjóð hafi
komið til móts við útihátíðir sem
voru felldar niður þar og bætt þeim
upp tekjutap að miklu leyti. Nú sé
því beint til íslenskra stjórnvalda að
grípa til svipaðra ráða.
Ræddu við þrjá ráðherra
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
Vestmannaeyja, kynnti nýlega bæj-
arráði drög að minnisblaði frá ÍBV
um fjárhagsstöðu félagsins vegna
áhrifa Covid á tekjur þess. Ljóst er
að tekjutap vegna niðurfellingar
þjóðhátíðar tvö ár í röð hefur mikil
áhrif á rekstur félagsins, sérstaklega
barna- og unglingastarf.
Fulltrúar ÍBV og bæjarstjóri hafa
kynnt menntamálaráðherra, sveitar-
stjórnarráðherra og fjármálaráð-
herra þá alvarlegu stöðu sem ÍBV er
í vegna takmarkana sem ríkisstjórn-
in setti og komu í veg fyrir að
þjóðhátíð væri haldin. gudni@mbl.is
ÍBV finnur mikið
fyrir tekjutapinu
- Stærsta fjáröflunin brást tvö ár í röð
Morgunblaðið/Ófeigur
Þjóðhátíð Aðaltekjulind ÍBV hefur
ekki skilað neinu tvö ár í röð.