Morgunblaðið - 04.09.2021, Side 16

Morgunblaðið - 04.09.2021, Side 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Marktæk aukn- ing hefur verið á fjölda ferða- manna á Þjóð- garðinum á Þing- völlum í sumar, þó svo að langt sé í frá að fjöldinn hafi verið í lík- ingu við það sem var 2018 og 2019. Einar Á. E. Sæ- mundsen þjóðgarðsvörður segir að sumarið hafi gengið vel og hægur stígandi verið í aðsókn í takt við breytingar á sóttvarnaaðgerðum. Af erlendum ferðamönnum hafi Bandaríkjamenn verið áberandi, en eftir því sem liðið hefur á hafi fólki af öðrum þjóðernum fjölgað. At- hyglisvert sé að erlendir ferða- menn virðist frekar nota bíla- leigubíla en rútur. Einar segir að Íslendingar komi jafnt og þétt til Þingvalla, en hverfi aðeins í skugg- ann þegar útlendingum fjölgi. Samkvæmt teljara á Kárastaða- stíg efst í Almannagjá fóru um 1,3 milljónir ferðamanna um Almanna- gjá bæði 2018 og 2019. Hrun varð í gestakomum 2020 þegar heildar- fjöldinn var aðeins 320 þúsund. Þrátt fyrir aukna aðsókn í ár er langt í land að hún nálgist það sem var fyrir heimsfaraldurinn. Er fjöldinn eftirsóknarverður? „Fjölgunin varð mjög snörp og ég velti því fyrir mér hvort sá fjöldi sé eftirsóknarverður á stað eins og Þingvöllum,“ segir Einar. „Í sumar hefur fjöldinn verið viðráðanlegur og afslappað andrúmsloft komið í stað streitu sem fylgdi fjöldanum. Mér finnst þetta umhugsunarefni, en ég stjórna ekki fjölda ferða- manna og hver sem þróunin verður þá höfum við nýtt tímann vel til að bæta aðstöðuna í þjóðgarðinum.“ Einar segir að starfsemi í og við Silfru hafi tekið vel við sér eftir því sem liðið hefur á árið. Hugsanlega hafi fjölgunin þar verið meiri en annars staðar, en 5-6 fyrirtæki eru með starfsemi þar. aij@mbl.is Mikill fjöldi er umhugsunarefni Einar Á.E. Sæmundsen - Afslappað andrúmsloft á Þingvöllum - Fjölgun en árið langt að baki 2018 og 2019 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Sumarið hefur verið einstakt í Ás- byrgi og íslenskir ferðamenn sann- arlega kunnað að meta veðurblíðuna þar og rómaða náttúrufegurð. Á tjaldsvæðinu í Ásbyrgi hafa met ver- ið slegin í aðsókn ferðamanna og marga daga verið uppselt, en hluti gesta staldrar við í styttri tíma. Vegna takmarkana í kórónufar- aldri hefur verið 200 manna hámark á tjaldstæðum frá því undir lok júlí- mánaðar þar sem ekki er hægt að hólfaskipta þeim og hefur það dregið úr fjölda gesta. Þrátt fyrir það má al- mennt segja að áfangastaðir í Vatna- jökulsþjóðgarði hafi tekið vel við sér í ár. Stuttbuxnaveður í langan tíma Það var létt yfir Guðmundi Ög- mundssyni, þjóðgarðsverði í Jökuls- árgljúfrum, þegar rætt var við hann á fimmtudagsmorgun. „Í okkar skilningi hefur verið hitabylgja hér síðan í byrjun júlí og enn er ekki lát á,“ sagði Guðmundur. „Ég man ekki hvenær hitinn náði ekki yfir 20 gráð- ur að degi til og hér hefur verið stutt- buxnaveður í allt sumar. Reyndar renndi ég skálmunum á buxurnar í morgun, en það stefnir í að ég þurfi að taka þær af aftur.“ Samkvæmt upplýsingum frá Trausta Jónssyni veðurfræðingi byrjuðu hlýindin fyrir norðan í kringum Jónsmessu. Síðan þá hefur hiti náð 20 stigum eða meira í 31 dag í Ásbyrgi. Þetta eru fleiri dagar en nokkuð annað sumar, en mælingar byrjuðu 1999, upplýsir Trausti. Næstflestir urðu svona dagar árið 2004, 22, en fæstir 2015 þegar þeir voru þrír. Starfssvæðum Vatnajökulsþjóð- garðs er skipt upp í nokkur svæði og er Guðmundur þjóðgarðsvörður í Jökulsárgljúfrum. Þar er um sam- heiti að ræða fyrir stærra svæði þar sem er að finna náttúruperlur eins og Ásbyrgi, Hljóðakletta, Hólmatungur og Dettifoss. Mest hafa 17 manns verið að störfum í norðursvæði þjóð- garðsins í sumar, en þeim hefur fækkað undanfarið og margir sum- arstarfsmanna eru nú sestir á skóla- bekk. Síðustu sumur hafa verið erilsöm í Ásbyrgi og í ár komu fleiri ferða- menn þangað heldur en 2019, en það var þriðja árið í röð sem yfir tvær milljónir ferðamanna komu til lands- ins. Þá var barátta við heimsfaraldur kórónuveikinnar ekki í huga nokkurs manns, en mikil breyting varð á í fyrra þegar um hálf milljón ferða- manna kom til landsins. Á tjaldsvæðinu í Ásbyrgi hafa Ís- lendingar verið nánast einir um hit- una í sumar en þeir voru 91,5% gesta á tjaldvæðinu í júlí. Guðmundur seg- ir að hefðbundnir erlendir „útilegu- útlendingar“ hafi ekki verið jafn mik- ið á ferðinni og árin á undan, en þegar rýnt er í tölur kemur þó í ljós að þeir voru umtalsvert fleiri í ár en í fyrra. Ferðafólk enn á ferð Bekkurinn hefur verið þétt setinn frá júlíbyrjun og fram eftir ágúst, nokkra daga fullbókað, og enn eru ferðamenn á ferð fyrir norðan. Ef fjöldatakmarkanir hefðu ekki komið til vegna faraldursins hefði fjöldinn eflaust orðið enn meiri. Í Ásbyrgi komu tæplega 38 þús- und gestir í júlímánuði, mun fleiri en árin á undan, og í ágúst voru gest- irnir 28.385, sem er líka meiri fjöldi heldur en 2019 og 2020. Við Dettifoss að vestanverðu var gestafjöldinn í júlí og ágúst svipaður en þó heldur lægri en 2019. Við Dettifoss að aust- anverðu voru gestir hins vegar tals- vert færri en 2019. Sú aðferð er not- uð við talningu ferðamanna að segulskynjararar mæla bílaumferð og tölur um fjölda gesta eru fengnar með áætlun um fjölda í bíl. Talningin er unnin í samvinnu við Rögnvald Ólafsson og Gyðu Þórhallsdóttur hjá Háskóla Íslands. Guðmundur segir að í Jökuls- árgljúfrum sé stöðugt unnið að því að bæta aðstöðu, aðgengi og öryggi ferðamanna. Í sumar hafi skipt miklu að ný og fullkomin salernisaðstaða hafi verið tekin í notkun við Dettifoss vestanverðan. Guðmundur segir að að með þeim sé loksins komin boðleg aðstaða fyrir gestir, sem áður hafi þurft að notast við gamla kamra. Sprenging í hjólaferðum Í Ásbyrgi er veðursæld og margir koma þangað til að slaka á, en aðrir fara í gönguferðir um fjölbreyttar gönguslóðir eða aka til annarra staða á norðausturhorninu. Þá hefur það færst mjög í aukana að hjólreiðafólk fari um í stórbotinni náttúrunni. „Ásbyrgi og Jökulsárgljúfur hafa lengi verið vinsæl til alls kyns útivist- ar, göngur og hlaup hafa notið vin- sælda og síðustu ár hefur orðið sprenging í hjólreiðum. Slíkt fer ekki alltaf saman og við höfum því unnið að því að lagfæra leiðir og aðgreina umferðina á helstu álagsstöðum til að tryggja öryggi og góða upplifun gesta,“ segir Guðmundur, spurður um þessa þróun. Breytt hlutföll á suðursvæði Á suðursvæði þjóðgarðsins eru meðal annars náttúruperlurnar í Skaftafelli og Jökulsárlón á Breiða- merkusandi. Steinunn Hödd Harð- ardóttir er þjóðgarðsvörður á suð- ursvæði og segir hún að sumarið hafi verið gott. Þannig komu um og yfir 85 þúsund gestir í Skaftafell bæði í júlí og ágúst í sumar. Nokkru færri en 2019, en aukning frá síðasta ári. Sömu sögu er að segja af Jökulsár- lóni, fjölgun frá síðasta sumri, en færri heldur en 2019. Steinunn Hödd segir að veður hafi verið gott á suðursvæði þjóðgarðsins í sumar, milt lengst af og sólin hafi alls ekki gleymt þessum hluta lands- ins. Tjaldsvæðið hafi verið vel sótt frá upphafi sumars, en fjöldatak- markanir frá júlílokum hafi sett strik í reikninginn. Ekki hafi verið hægt að hólfaskipta tjaldsvæðinu þar sem aðeins eitt salernishús er fyrir gesti á tjaldsvæðinu. Þá sé ekki enn boðið upp á hraðpróf í þjóðgarðinum. Hún segir að meirihluti gesta í ár hafi verið Íslendingar eins og í fyrra, trúlega um 75% gesta, en fyrir far- aldur voru íslenskir gestir innan við 10% af heildinni. „Fólk er enn á ferð- inni og töluvert að gera þó svo að ekki sé lengur fullt á tjaldsvæð- inu,“segir Steinunn Hödd. Bekkurinn þétt setinn í Ásbyrgi - Íslendingar nánast einir um hituna á tjaldstæðinu í Ásbyrgi - Einstök hlýindi og þjóðgarðsvörður í stuttbuxum í margar vikur - Áfangastaðir í Vatnajökulsþjóðgarði hafa tekið vel við sér í sumar Heimildir: Vatnajökuls-, Snæfellsjökuls- og Þingvallaþjóðgarðar Fjöldi gesta (þúsundir), Vatnajökuls-, Snæfellsjökuls- og Þingvallaþjóðgarðar Aðsókn ferðamanna að vinsælum ferðamannastöðum í júní, júlí og ágúst Þingvellir – Almannagjá 200 150 100 50 0 júní júlí ágúst Skaftafell 120 90 60 30 0 júní júlí ágúst Dettifoss að vestanverðu 50 40 30 20 10 0 júní júlí ágúst Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull 80 60 40 20 0 júní júlí ágúst Ásbyrgi 40 30 20 10 0 júní júlí ágúst Jökulsárlón 150 120 90 60 30 0 júní júlí ágúst 2019 2020 2021 Guðmundur Ögmundsson Steinunn Hödd Harðardóttir Eins og annars staðar í þjóðgörðunum hefur gestafjöldi tekið við sér í ár í Snæfellsjökulsþjóðgarði. Í ár komu þangað 114 þúsund gestir sumarmánuðina júní, júlí og ágúst. Það er nokkur aukning frá síðasta ári þegar 103 þúsund gestir heimsóttu þjóðgarðinn, en sumarið 2019 voru gestirnir tvöfalt fleiri eða rúmlega 206 þúsund. Samkvæmt upplýsingum frá Jóni Björnssyni þjóð- garðsverði er athyglisvert að gestir virðast fara hægar yfir nú en oft áður. Áfangastaðir virðist setnari, gestir dvelji lengur og skoði meira. Sem dæmi komu 25.500 gestir við á Saxhóli frá júníbyrjun til ágústloka eða um 23% af heild- arfjölda gesta í þjóðgarðinum á móti 15-16% af heildarfjölda fyrri ára. Dvelja lengur og skoða meira ÞJÓÐGARÐURINN SNÆFELLSJÖKULL Jón Björnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.