Morgunblaðið - 04.09.2021, Side 21

Morgunblaðið - 04.09.2021, Side 21
Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | Opið alla virka daga kl. 10-17 | www.rut.is | Ljósmyndir Rutar og Silju Barna- og fjölskyldu- myndatökur Einstökminning FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Sex manns særðust í Auckland á Nýja-Sjálandi í gærmorgun þegar maður gekk berserksgang í stór- markaði og réðst að fólkinu með hníf. Maðurinn var fljótlega skotinn til bana af leynilögreglumönnum, en hann hafði verið undir sólarhring- seftirliti nýsjálenskra stjórnvalda um nokkra hríð vegna öfgafullra skoðanna sinna. Maðurinn, sem kom upprunalega til Nýja-Sjálands frá Sri Lanka árið 2011 var sagður undir áhrifum frá Ríki íslams, en hann mun hafa grip- ið hníf sem var til sölu í versluninni og farið að stinga nærstadda. Lög- reglumennirnir sem voru að fylgjast með ferðum hans gripu þá inn í, og leið vart mínúta áður en maðurinn var felldur. Þrjú fórnarlambanna eru á gjörgæslu, og hið fjórða er sagt vera í alvarlegu ástandi. Hafði verið ákærður og sleppt Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, sagði að hún væri miður sín yfir því að maðurinn hefði náð að fremja sína „hatursfullu árás“ þrátt fyrir eftirlitið. „Það sem gerðist í dag var við- urstyggilegt, það var hatursfullt, það var rangt,“ sagði Ardern og bætti við að árásin hefði verið fram- in af einstaklingi, en ekki trúar- brögðum eða menningu, og að ein- staklingurinn bæri einn ábyrgð á verknaði sínum. Hét hún því að rannsakað yrði hvers vegna ekki hefði verið hægt að koma í veg fyrir árásina, en mað- urinn, sem var 32 ára, var ákærður á síðasta ári fyrir að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk með hníf. Dómari málsins mat það hins veg- ar svo að það eitt að skipuleggja árás félli ekki undir þágildandi hegningarlög, og var hann þess í stað dæmdur til að sæta eftirliti í tólf mánuði fyrir að vera með ólög- legan áróður frá Ríki íslams. Ardern sagði í gær að frumvarp hefði verið lagt fram til að tryggja að skipulagning hryðjuverka félli undir þau, en þau eiga enn eftir að fara í gegnum nýsjálenska þingið. Ardern sagði hins vegar ekki hversu margir aðrir væru undir hryðjuverkaeftirliti lögreglu, en sagði að það væru mjög fáir. Andrew Coster, ríkislögreglu- stjóri Nýja-Sjálands, sagði að yfir- völd væru fullviss um að maðurinn hefði verið einn að verki, og að engin frekari hætta væru nú á ferðum. Coster varði lögreglumennina sem skutu árásarmanninn og sagði að þeir hefðu sinnt skyldum sínum af miklu hugrekki. „Raunveruleik- inn er sá, að þegar þú ert að fylgjast með einhverjum í 24 tíma sjö daga vikunnar er ekki alltaf hægt að vera beint við hliðina á þeim.“ Árásin sögð hryðjuverk - Sex særðust í hnífsstunguárás í stórverslun í Auckland - Árásarmaðurinn skotinn til bana - Var undir eftirliti AFP Hryðjuverk Mikill viðbúnaður lögreglu var við verslunarmiðstöðina Lynn- mall eftir að sex manns særðust í árás í stórmarkaði í verslunarmiðstöðinni. Bresk stjórnvöld og Evrópusam- bandið lýstu því yfir í gær að þau hygðust ekki viðurkenna stjórn ta- líbana yfir Afganistan, en að þau myndu engu að síður eiga í sam- skiptum við þá þar sem þörf krefði. „Við þurfum að ræða við nýju rík- isstjórnina í Afganistan, sem er ekki það sama og viðurkenning,“ sagði Josep Borrell, utanríkismálastjóri ESB, í gær en utanríkisráðherrar aðildarríkjanna funduðu þá í Slóven- íu um stöðu mála í landinu. Sagði Borrell að samskipti sam- bandsins við talíbana gætu aukist, en á móti yrðu þeir að uppfylla viss skilyrði, meðal annars að tryggja að Afganistan yrði ekki að bækistöð hryðjuverkahópa. Þá sagði Borrell að talíbanar yrðu að virða réttindi kvenna og setja á laggirnar rík- isstjórn sem væri „opin“ og end- urspeglaði vilja Afgana. Þá yrðu talíbanar einnig að standa við gefin loforð um að erlendir rík- isborgarar og Afganar mættu áfram yfirgefa landið. Heiko Maas, utan- ríkisráðherra Þýskalands, sagði að Evrópusambandið myndi standa fast við skilyrði sín. „Auðvitað lifir enginn í þeirri tálsýn að þetta verði allt uppfyllt 100% á næstu dögum,“ sagði Maas og bætti við að þetta væru markmið til lengri tíma. Þá stefnir Evrópusambandið að því að senda aftur sendifulltrúa til Kabúl til þess að sjá um samskiptin við talíbana, en Borrell sagði að fyrst yrði öryggi þeirra að vera tryggt. Ef það næðist ekki kæmi til greina að setja upp óformlega send- iskrifstofu í Katar, en talíbanar hafa haft þar fulltrúa til að sjá um sam- skipti sín við umheiminn. Dominic Raab, utanríkisráðherra Breta, sagði í heimsókn sinni til Pak- istans að alþjóðasamfélagið yrði að sjá hvort að talíbanar væru „einlæg- ir“ þegar þeir segðust ekki ætla að taka upp sömu siði og þegar þeir ríktu með harðri hendi á 10. ára- tugnum. Ríkisstjórn mynduð fljótlega Talíbanar lýstu því yfir í gær að þeir væru mjög nálægt því að mynda næstu ríkisstjórn Afganistans, á sama tíma og fregnir bárust af hörð- um bardögum í Pansjír-dal, síðasta vígi andspyrnuhópa gegn talíbönum. Brutust um tíma fagnaðarlæti meðal stuðningsmanna talíbana í Kabúl þegar fregnir bárust af því að dalurinn hefði fallið, en þær voru fljótt bornar til baka. Viðurkenna ekki stjórn talíbana - Bardagar geisa í Pansjír-dalnum AFP Bardagar geisa Andspyrnumenn stunda heræfingar í Pansjír-dal.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.