Morgunblaðið - 04.09.2021, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 2021
Frambjóðendur Samfylkingar, VG
og Sjálfstæðisflokks mættust í
Dagmálum, samtalsþætti Morgun-
blaðsins, og ræddu umhverfis- og auð-
lindamál. Frambjóðandi VG og aðstoð-
armaður
umhverfisráðherra,
Orri Páll Jóhannsson,
vill draga þann lær-
dóm af heimsfaraldr-
inum að lífsgæði felist
ekki endilega í tíðum
utanlandsferðum og
varar við „ofboðs-
legri neyslu“ sem sé
ekki endilega ávísun
á velsæld og lífsgæði.
- - -
Frambjóðandi
Samfylking-
arinnar, Þórunn
Sveinbjarnardóttir,
tók í sama streng og
sagði nauðsynlegt að
fólk drægi úr neyslu, keypti minna og
framleiddi minna af einnota vörum og
„drasli“.
- - -
Nú dettur vonandi engum í hug að
hamingjan fáist með óhóflegri
neyslu, en hver á að meta hvað er
hæfilegt? Einum kann að þykja nauð-
synlegt að fara árlega utan og jafnvel
oftar, aðrir kunna vel við að sitja
heima. Fer ekki best á að hver ákveði
þetta fyrir sig frekar en að tekist sé á
um þetta á vettvangi stjórnmálanna?
- - -
Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins,
Teitur Björn Einarsson, varaði
við neyslustýringu stjórnmálamanna.
Hann sagði að draga þyrfti úr losun
gróðurhúsalofttegunda, en „við erum
ekki að fara að biðja almenning um að
draga úr neyslu, minnka launin sín,
draga úr störfum til þess að ná lofts-
lagsmarkmiðum“.
- - -
Og hann sagði að aðstæður á Íslandi
væru þannig að þær gæfu kost á
hnattrænu framlagi án þess að lands-
menn þyrfti að temja sér meinlæti.
Þórunn Svein-
bjarnardóttir
Á að skikka alla
til að sitja heima?
STAKSTEINAR
Teitur Björn
Einarsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Áskrift að pakkanum Viaplay Total hjá streym-
isveitunni Viaplay mun hækka verulega í næsta
mánuði. Áskriftin hefur kostað 1.599 krónur en
hækkar þá í 2.699 krónur á mánuði. Hækkunin
nemur rétt tæpum 69% eða 1.100 krónum.
Í tilkynningu frá streymisveitunni til áskrifenda
er því borið við að þeim standi meira efni til boða
en nokkru sinni fyrr og því verði að hækka verðið.
Keppinautar Viaplay hafa staðhæft að þjónusta
fyrirtækisins hafi verið undirverðlögð þegar
streymisþjónustan kom inn á markaðinn hér á
landi. Bent var á að Viaplay Total hefði kostað þre-
falt meira í hinum norrænu ríkjunum en hér.
Eins og Morgunblaðið hefur greint frá tryggði
Viaplay sér nýlega réttinn að Meistaradeild Evr-
ópu, Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni í
knattspyrnu. Viaplay deilir sýningarréttinum með
Stöð 2 sport. Auk þess sýnir veitan frá þýsku Bun-
desligunni og dönsku Superligunni í knattspyrnu
sem og Formúlu 1 kappakstri.
Viaplay býður einnig upp á einfalda áskrift að
kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum og kostar
sú áskrift 599 krónur á mánuði. hdm@mbl.is
Umtalsverð hækkun hjá Viaplay
- Pakki hækkar um 69%
vegna aukins framboðs
AFP
Vistaskipti Messi verður að vanda í eldlínunni í
Meistaradeildinni en að þessu sinni í treyju PSG.
Sigrún Gísladóttir, fv.
skólastjóri Flataskóla í
Garðabæ, lést á líknar-
deild Landspítalans í
Fossvogi sl. mánudag,
1. september. Sigrún
var fædd 26. september
1944 í Reykjavík, en ólst
upp frá tíu ára aldri í
Garðabæ. Foreldrar
hennar voru Bjarnheið-
ur Gissurardóttir (1913-
2000) og Gísli Ólafsson
(1917-2002) fulltrúi hjá
tollstjóra.
Sigrún gekk í grunn-
skóla í Hafnarfirði en þá
var enginn skóli í Garðahreppi, eins
og byggðin hét þá. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MR 1964 og kennara-
námi ári síðar frá Kennaraskólanum.
Þá var hún á unglingsárum í ballett-
námi og tók þátt í ýmsum sýningum,
m.a. í Þjóðleikhúsinu. Hún hóf
kennslustörf við Öldutúnsskóla í
Hafnarfirði, samhliða því sem hún
var flugfreyja hjá Loftleiðum.
Árið 1966 giftist Sigrún Guðjóni
Ólafssyni lækni. Þau bjuggu á Sauð-
árkróki 1973-74 þegar Guðjón sinnti
starfsskyldum í héraði í læknanámi
sínu. Að norðan fluttu þau til Edin-
borgar í Skotlandi og síðar Stokk-
hólms í áframhaldandi nám, hvar þau
bjuggu til 1980. Eftir heimkomuna
varð Sigrún námsstjóri á Fræðslu-
skrifstofu Reykjanesumdæmis. Tók
haustið 1984 við starfi
skólastjóra Flataskóla í
Garðabæ og gegndi því
til 2004. Jafnhliða því
var Sigrún virk í ýms-
um félagsmálum, meðal
annars á vettvangi
Kvenréttindafélags Ís-
lands og starfaði í ýms-
um nefndum og ráðum
á vettvangi skólamála.
Sigrún var varabæj-
arfulltrúi í Garðabæ
1984-88 og eftir það
bæjarfulltrúi til 1996.
Var þá forseti bæjar-
stjórnar og formaður
skipulagsnefndar í átta ár. Sigrún
flutti árið 2004 til Kaupmannahafnar
þegar Guðjón eiginmaður hennar tók
við starfi Evrópuskrifstofu WHO, Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
Í Kaupmannahöfn sinnti hún lengi-
leiðsögn fyrir íslenska ferðamenn um
miðborgina og söguslóðir Íslendinga.
Eiginmaður Sigrúnar, dr. Guðjón
Magnússon (f. 1944), lést 2009. Synir
þeirra eru Arnar Þór yfirlæknir, f.
1970, og tvíburarnir (f. 1972) Halldór
Fannar, eðlisfræðingur og hugbún-
aðarsérfræðingur, og Heiðar, hag-
fræðingur og forstjóri Sýnar. Barna-
börnin eru alls 11.
Vinur og ferðafélagi Sigrúnar síð-
ustu árin var Júlíus Sæberg Ólafsson,
fyrrverandi forstjóri Ríkiskaupa, en
þau voru samnemendur í MR.
Andlát
Sigrún Gísladóttir